Engar viðræður hafa verið milli oddvita bæjarstjórnarflokkanna í Hafnarfirði síðan í gær, þegar tilkynnt var um að slitnað hefði upp úr viðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, sem á sama tíma átti í viðræðum við Viðreisn og Samfylkinguna. Hildur Rós Guðbjargardóttir oddviti Samfylkingarinnar segist hafa átt í óformlegum samtölum bæði við oddvita Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar síðan í gær. Hún segir samstarf við Miðflokkinn, sem fékk einn bæjarfulltrúa kjörinn á laugardaginn, ekki koma til greina. Það sama gildi um Framsókn sem hafi brugðist trausti sem hafi leikið tveimur skjöldum með því að vera í viðræðum við fleiri en einn flokk. Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, sagðist búast við að heyra í oddvitum Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar seinna í dag. Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði í samtali við fréttastofu að menn væru enn að átta sig á atburðum gærdagsins og litlar líkur á að meirihluti yrði myndaður um helgina. Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar sagðist tilbúinn til samtals við alla flokka og sagðist ekkert útiloka.