Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vinnu­markaðslíkanið „greini­lega brotið“

Read Full Article →

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að Ísland geti muni aldrei geta tekið upp evruna nema að laga vinnumarkaðslíkanið hér á landi fyrst. Í viðtali við Innherja segir hann að vinnumarkaðslíkanið sé „greinilega brotið“. Spurður hvort líkur séu á því að aðstæður á vinnumarkaðnum batni sjálfkrafa við að taka upp evru svaraði Ásgeir: „Nei, það þarf að gerast áður.“ „Eins og sést þegar litið er til hinna Norðurlandanna hafa þjóðirnar þar búið við mismunandi tegundir peningastefnu, en vinnumarkaðslíkanið hefur verið svipað. Það ræður miklu um það hvernig þeim gengur að ná árangri í peningastefnunni og viðhalda stöðugu verðlagi.“ Ásgeiri og Þórarni G. Péturssyni, varaseðlabankastjóra peningastefnu, hafa verið tíðrætt um miklar launahækkanir á íslenskum vinnumarkaði sem hafi leitt til innlends verðbólguþrýstings. Ásgeir hefur sagt að slíkar launahækkanir sjáist ekki hjá neinu samanburðarríki Íslands. Á ársfundi Seðlabanks í síðasta mánuði sagði Ásgeir að vandamál á íslenskum vinnumarkaði leysist ekki sjálfkrafa við breytingar í gjaldeyrismálum. Hann benti þar á að strangar reglur gildi um upptöku evru samkvæmt hinu svo kallaða ERM-II ferli þar sem ný aðildarríki verða að sýna með óyggjandi hætti fram á að þau geti haldið þjóðhagslegu jafnvægi. Sjá einnig Hætta á sárs­auka­fullri aðlögun án breytts módels „Ég leyfi mér því að efast um að við getum tekið upp evru án þess að tryggja þjóðfélagssáttmála á vinnumarkaði. Og ef svo færi að evran yrði gjaldmiðill hér í kjölfar aðildar að Evrópusambandinu og Íslendingar héldu uppteknum hætti við að hækka laun sín umfram það sem þekkist hjá öðrum þjóðum, þá myndi það leiða til mjög alvarlegra efnahagserfiðleika og sársaukafullrar aðlögunar,“ sagði Ásgeir á ársfundi Seðlabankans 9. apríl.

Share this article