Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vilja bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.8.2026 | 19:07 Vilja bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði Aðgerðarhópur verður stofnaður sem á að þróa fræðsluefni, verkfæri og aðgerðir fyrir vinnustaði. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Dómsmálaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, Samtökin '78, Samtök atvinnulífsins og heildarsamtök launafólks undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf sem er ætlað að efla jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Stjórnarráðsins . „Það hallar á efnahagslega stöðu hinsegin fólks á Íslandi. Ljóst er að hluti vandans er mismunun á vinnumarkaði,“ er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í tilkynningunni. „Sem ráðherra jafnréttismála stend ég þétt við bakið á hinsegin fólki á Íslandi. Samstarf verkalýðshreyfingarinnar, atvinnulífsins og stjórnvalda mun skipta sköpum við að tryggja raunverulegt jafnrétti á vinnumarkaði.“ Undirritunin fór fram í Iðnó á viðburði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ í tilefni Hinsegin daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson Aðgerðarhópur þrói verkfæri fyrir vinnustaði Þar segir einnig að með viljayfirlýsingunni sé markvisst unnið að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði og verður sérstakur aðgerðarhópur stofnaður sem á að þróa fræðsluefni, verkfæri og aðgerðir fyrir vinnustaði ásamt því að auka þekkingu með rannsóknum og greiningum. „ Aðgerðarhópurinn mun meðal annars byggja á þeirri reynslu og þekkingu sem skapast hefur í gegnum Hinsegin vottun Samtakanna '78 og leiðbeiningar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um inngildingu hinsegin fólks á vinnumarkaði,“ segir í tilkynningunni. Markmiðið sé að starfsfólk finni öryggi og líði vel á vinnumarkaði. „Með þessari yfirlýsingu skuldbindum við okkur til að vinna saman að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Baráttan fyrir jafnrétti er viðvarandi verkefni og ég er stoltur af því að fá að taka þátt í henni. Ég er sannfærður um að vinnan fram undan muni skila raunverulegum árangri,“ er haft eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, í tilkynningunni. Það var fjölmennt í Iðnó í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valur – Víkingur R., staðan er 0:0 Vilja bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði Íslandsmeistarinn náði forystunni á degi tvö Dagbjartur með afgerandi forystu Ási og Katrín ástfangin í Smáralind Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Samningur rann út 1. ágúst Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning „Það er meira eyðilagt, verið að grúska og tæta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann „Evran gæti orðið meira en gildra“ Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Valur – Víkingur R., staðan er 0:0 Vilja bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði Íslandsmeistarinn náði forystunni á degi tvö Dagbjartur með afgerandi forystu Ási og Katrín ástfangin í Smáralind Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar 14 ára drengur skaut átta til bana í Taílandi Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann ESB mun semja fyrir okkur Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann „Evran gæti orðið meira en gildra“ Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar

Share this article