Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Gyrðum okkur í bók!“

  • What: Authors' association criticizes education funding
  • Impact: Education system funding concerns
Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.5.2026 | 9:40 „Gyrðum okkur í bók!“ Rithöfundasambandið harmar þá vanrækslu og fjársvelti sem viðgengist hefur við framleiðslu námsefnis fyrir íslenska grunnskólanemendur. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Námsgögn fjársvelt í áratugi » Fleiri tengdar fréttir Rithöfundasamband Íslands skorar á ríkisstjórn Íslands að bæta fyrir áratuga vanrækslu og margfalda framlög til framleiðslu námsgagna. Rithöfundasambandið harmar þá vanrækslu og fjársvelti sem viðgengist hefur við framleiðslu námsefnis fyrir íslenska grunnskólanemendur, og skorar á ríkisstjórn Íslands að bæta úr því tafarlaust, svo vitsmunalegir innviðir íslensku þjóðarinnar grotni ekki niður meira en orðið er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rithöfundasambandinu. Þar kemur fram að samkvæmt nýrri skýrslu Þróunarsjóðs námsgagna hafi fjármagn til þróunar námsefnis í íslenskum skólum rýrnað um 60 prósent á undanförnum tveimur áratugum, og sé nú aðeins um fjórðungur af því sem lægst gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Frétt af mbl.is Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Áfellisdómur yfir ráðamönnum menntamála „Þessi niðurstaða er áfellisdómur yfir öllum ráðamönnum í menntamálum þjóðarinnar undanfarna áratugi, og setur allar fréttir um versnandi niðurstöður íslenskra nemenda í PISA-könnunum, hrakandi lestrarfærni þeirra og slælegan árangur kennarastéttarinnar í nýtt samhengi.“ Í tilkynningunni segir að kennarar hafi verið neyddir til að taka námsgagnaframleiðsluna á sig að miklu leyti til að sjá nemendum sínum fyrir nothæfu námsefni, og hafi það bæst ofan á annir þeirra, sem voru nægar fyrir. Rithöfundasamband Íslands þekkir dæmi þess að metnaðarfullir og duglegir kennarar mati gervigreindarforrit á höfundaréttarvörðu efni eins og textum og myndum úr vinsælum bókum íslenskra höfunda til að útbúa námsefni fyrir nemendur sína. Slík framleiðsla er ólögleg, og brýtur ekki aðeins á rétti höfunda og myndhöfunda til greiðslu fyrir notkun á höfundaverkum sínum, heldur eykur hún hættuna á því að gervigreindarfyrirtæki komist yfir verk þeirra og nýti þau í leyfisleysi til að þróa gervigreindarforrit sín, að því er segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Grefur undan rétti barna til mannsæmandi náms „Sú vanræksla og fjársvelti sem viðgengist hefur við þróun námsgagna grefur þannig ekki aðeins undan rétti barnanna okkar til mannsæmandi náms, starfskjörum kennara og samkeppnishæfni þjóðarinnar, heldur líka undan undirstöðum íslenskrar tungu og menningar, og möguleikum íslenskra rit- og myndhöfunda til að hafa lifibrauð af verkum sínum og verja þau ágangi gervigreindarfyrirtækja.“ Rithöfundasamband Íslands skorar á ríkisstjórn Íslands að auka nú þegar framlög til þróunar námsgagna til að bæta fyrir andvaraleysi og vanrækslu undanfarinna áratuga og tryggja að íslensk börn og kennarar þeirra hafa aðgang að sambærilegu námsefni og á hinum Norðurlöndunum. Skilaboð Rithöfundasambandsins eru: „Gyrðum okkur í bók!“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Námsgögn fjársvelt í áratugi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sex stiga skjálfti á Hawaii „Gyrðum okkur í bók!“ Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Líf „lækaði“ óvart Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Afleit reynsla af Skattinum Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Sex stiga skjálfti á Hawaii „Gyrðum okkur í bók!“ Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Líf „lækaði“ óvart Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aukið eftirlit yfir helgina Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Afleit reynsla af Skattinum Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article