Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Læsi er ekki áhugamál“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.9.2026 | 23:42 „Læsi er ekki áhugamál“ Rithöfundar vilja styrkja starfsemi bókasafna. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn Drengir þurfi að sjá hvað þeir græða á lestrinum Jákvætt að borgarbörnin skori betur PISA í brennidepli: Danir tala um stórslys Stjórnvöld sofnað á verðinum » Fleiri tengdar fréttir Stjórn Rithöfundasambands Íslands sendir stjórnvöldum tóninn í ályktun sem samþykkt var í dag eftir að niðurstöður PISA-könnunarinnar voru kynntar. Segir í ályktuninni að börn sem alist ekki upp við bóklestur verði ekki lesendur sjálf. Því þurfi að treysta stoðir námsbókaútgáfu og styðja við bókasöfn. „Alvaran skein úr andliti menntamálaráðherra í morgun þegar kynntar voru nýjustu niðurstöður PISA-könnunarinnar. Vitnisburðurinn var falleinkunn; við erum að bregðast börnunum okkar. Þrátt fyrir að hver PISA-könnun skili nýju áfalli hefur ekki tekist að ná tökum á ástandinu. Við lok grunnskóla mælast um 44% nemenda ekki með grunnfærni í lesskilningi. Tungumálið okkar stendur á bjargbrún,“ segir í ályktun stjórnar Rithöfundasambandsins. Þar segir jafnframt að þær aðgerðir sem kynntar hafi verið á blaðamannafundinum séu þó aðeins lítill hluti af heildarmyndinni sem líta þurfi til. „Tungumál lifir ekki í undirbúningi fyrir próf, það þrífst í lifandi málsamfélagi, þar sem málið er í stöðugri notkun og stöðugri þróun. Heilbrigt bókmenntalíf er frumforsenda þess að hér þrífist lifandi málsamfélag, fullt af virkum lesendum og málnotendum. Það gerist ekki nema stutt sé við hérlenda sköpun og listamönnum gert kleift að lifa af verkum sínum. Læsi er ekki áhugamál. Læsi er grunnur þess að geta tekið þátt í samfélaginu og að skilja tilveru sína, samtíma og fortíð. Læsi er lykill að framtíðinni. Hér er allt undir. Taka þarf niðurstöðunum alvarlega Stjórn Rithöfundasambands Íslands skorar á stjórnvöld að taka þessum niðurstöðum alvarlega. Þær kalla á breytingar, ekki bara innan skólakerfisins heldur í samfélaginu öllu og þeim áherslum sem þar eru lagðar. Börn sem alast ekki upp við bóklestur verða ekki lesendur sjálf. Stjórn Rithöfundasambands Íslands skorar á stjórnvöld að grípa strax til aðgerða. Tryggja verður öfluga útgáfu metnaðarfullra námsbóka á íslensku. Styðja verður við almennings- og skólabókasöfn og tryggja aðgengi allra grunnskólanema að öflugum skólasöfnum. Leggja þarf áherslu á að rækta skapandi atvinnugreinar, bókmenntir og listir og skapa þeim hagstæð skilyrði til vaxtar. Þá er mikilvægt að leiðrétta hlut höfunda og þýðenda í fjárlögunum fyrir árið 2027 og festa bókasafnssjóð í sessi þannig að hann sé ekki berskjaldaður gagnvart blindum niðurskurði á hverju einasta ári. Þannig gæti ríkisstjórnin sýnt í verki að henni sé alvara með áhyggjum sínum af íslenskri tungu, lestri og íslenskri menningu. Tungumálið stendur á bjargbrún – ætlum við að kippa því upp á fast land eða hrinda því fram af?“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn Drengir þurfi að sjá hvað þeir græða á lestrinum Jákvætt að borgarbörnin skori betur PISA í brennidepli: Danir tala um stórslys Stjórnvöld sofnað á verðinum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bannar innflutning á áfengi frá Kanada Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn „Læsi er ekki áhugamál“ Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni Fór grátandi af velli eftir óvænt tap Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skattar ýta ríkissjóði yfir núllið Kveikti í húsi í miðbænum og komst undan Jákvætt að borgarbörnin skori betur Kristrún um gjaldtöku: „Við lifum í breyttum heimi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Nýjast á mbl.is » Bannar innflutning á áfengi frá Kanada Menntamálin ekki sést hjá Samfylkingu og Viðreisn „Læsi er ekki áhugamál“ Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni Fór grátandi af velli eftir óvænt tap Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bókun 35, gegnsæi í sjávarútvegi og ný öryggislög Þórunn: Mál að linni Þetta boðar Inga til að bæta árangurinn í PISA Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni

Share this article