Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Tafir á umferð vegna þriggja bíla áreksturs

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Tafir á umferð vegna þriggja bíla árekst­urs Ragnhildur Helgadóttir Umferðartafir mynduðust á Reykjanesbraut við Breiðholt eftir þriggja bíla árekstur sem varð um þrjúleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var áreksturinn minniháttar og enginn fluttur á sjúkrahús. Fyrir 17 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Segir æru­meið­andi og rangar full­yrð­ing­ar í dómnum „Í rökstuðningi héraðsdóms er alvarlega snúið út úr málavöxtum með þeim hætti að sú atvikalýsing er í engu samræmi við það sem raunverulega gerðist,“ skrifar Tómas Guðbjartsson læknir. Hann segir furðu sæta að hann hafi ekki verið látinn bera vitni. Fyrir 35 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Opnuðu flott­asta næt­ur­klúbb átt­unn­ar á Rás 2 árið 2026 Það var heldur betur stemning í Partýverkunum á dögunum þegar Gleymdar Perlur áttunnar hópurinn opnaði flottasta næturklúbb níunda áratugarins á Rás 2, í eitt 80's klúbbakvöld. Doddi, DJ Johnny og Biggi Veira úr GusGus léku fyrir dansi. Fyrir 37 mínútumÍÞRÓTTIR Skólahreysti Ís­lands­meist­arar í hreystig­reip mætast: Hvor nær að hanga lengur? Einvígið í hreystigreip nær hámarki í úrslitum Skólahreystis í kvöld. Saga Björgvinsdóttir og Dagbjört Lilja Oddsdóttir hafa skipst á að slá íslandsmetið og allar líkur eru á að metið verði slegið enn einu sinni í kvöld. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Óveru­leg­ar fjár­fest­ing­ar“ í ótengd­um rekstri „Þrátt fyrir að þetta kunni að hljóma sem stórar tölur þá í samhengi hluta þá eru þær það svo sannarlega ekki,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Hagfræðistofnun HÍ birti í gær skýrslu um eignarhald stærstu útgerðanna. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Telja nauð­syn­legt að fleiri komi að þróun náms­gagna Bókaútgefendur telja nauðsynlegt að fleiri hafi aðkomu að þróun námsgagna og að mið sé tekið af fyrirkomulagi nágrannaríkja. Niðurstaða skýrslu Þróunarsjóðs námsgagna sé skýr. Mikill skortur sé á námsefni og þörf sé á breytingum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Smokk­ar, ferskj­ur og egg­ald­in vegna HM Toronto-borg mun útdeila tugþúsundum smokka fyrir áhorfendur sem munu flykkjast til borgarinnar vegna heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Alls er búist við 300.000 manns og fór borgin frumlega leið í hönnun. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Skýrsl­an sýni ekki heild­ar­mynd­ina Dagur B. Eggertsson þingmaður segir nýja skýrslu um eignarhald útgerðanna varpa ljósi á þróun sem hafi átt sér stað mjög hratt. „Það er strax ljóst að þetta er alls ekki heildarmynd,“ segir hann. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Sam­runi Warner Bros. og Para­m­ount óum­flýj­an­leg­ur Lítið annað hefur verið talað um í Hollywood síðustu mánuði en samruna Warner Bros. Discovery og Paramount Skydance, sem vann yfirtökustríð við Netflix í febrúar. Heimskviður kynntu sér samrunann, áhrif hans og sögu kvikmyndaveranna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Aflýsa fimm flugum í dag – tveim­ur vegna mann­eklu Icelandair hefur þurft að aflýsa fimm flugum í dag, tveimur vegna áhafnarskorts. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir þetta ekki tengjast neins konar verkfallsaðgerðum. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Pistill Tví­ær­ing­ur­inn af­hjúp­ar saum­ana í sam­fé­lög­um Vangaveltur um heimsvaldastefnu, tortímingu jarðar og menningarheima eru til umfjöllunar á Feneyjatvíæringnum en afhjúpunin á sér ekki stað með öskri, segir Nína Hjálmarsdóttir, menningarrýnir Víðsjár, heldur með því sem áður var ýtt til hliðar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Fleiri Ís­lend­ing­ar fara þegar stór­mót­in eru haldin nær Sérferðir héðan á íþróttastórmót eru frekar bundin því að Ísland sé að spila. Ekki er búist við mörgum Íslendingum á HM í fótbolta í sumar, ekki síst vegna fjarlægðar og kostnaðar. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Úr­slita­leik­ur Meist­ara­deild­ar í fót­bolta Í dag mætast Barcelona og Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og er sýndur á RÚV. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Frede­rik­sen fær stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð á ný Dagný Hulda Erlendsdóttir Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna í Danmörku og starfandi forsætisráðherra, fékk rétt í þessu stjórnarmyndunarumboð á ný. Leiðtogar flokkanna á danska þinginu hafa í morgun komið á fund Friðriks konungs, einn af öðrum, og nú hefst þriðja lota stjórnarmyndunarviðræðna. Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hafði umboðið þar til upp úr slitnaði í gær. Þingkosningar voru 24. mars og aldrei áður hefur tekið svo langan tíma í Danmörku að mynda stjórn. Frederiksen heitir því að hafa hraðar hendur við stjórnarmyndunina næstu daga. Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna og starfandi forsætisráðherra Danmerkur. Friðrik konungur hefur falið henni á ný að reyna að mynda ríkisstjórn. EPA / Emil Nicolai Helms Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Bíósu­mar­ið 2026: Það er upp­sveifla í kort­un­um Þau Ásgeir Kolbeins og Júlía Margrét Einarsdóttir fóru yfir bíósumarið í Miðstöðinni. Það er uppsveifla í kortunum eftir erfið ár í Hollywood. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Drónar sinna lög­gæslu í Hrísey og Gríms­ey Tveir löggæsludrónar verða teknir í notkun í Hrísey og Grímsey á næstu vikum. Yfirlögregluþjónn segir drónana mikilvæg hjálpartæki í dreifðari byggðum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Sótt að Vladí­m­ír Pútín á heima­velli Vinsældir Rússlandsforseta fara þverrandi, árásum á Moskvu fjölgar og í skýrslu evrópskrar leyniþjónustu sem lak er fullyrt að Pútín óttist að sér séu brugguð launráð. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hildur ræður ráðum sínum Enn er verið að meta stöðuna varðandi hugsanlega meirihlutamyndun í Reykjavík. Óvíst er með frekari fundahöld í dag. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Úrelt náms­gögn end­ur­spegla ekki sam­fé­lag­ið og nú­tím­ann Umsjónarkennari í 5. bekk í Laugarnesskóla segir sum gömul námsgögn ekki endurspegla raunveruleika og samfélag nemenda. Framlög til þróunar námsgagna eru innan við helmingur þess sem þau voru fyrir tveimur áratugum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Hefur ekki tekið ákvörð­un um næstu skref: „Það er lífs­stíll að vera bæj­ar­stjóri“ Ásthildur Sturludóttir lætur af störfum sem bæjarstjóri á Akureyri eftir 8 ár í starfi í lok næstu viku. Ásthildur segir ákvörðun nýs meirihluta á Akureyri ekki hafa komið á óvart. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Veitur segj­ast taka mengun í Varmá al­var­lega Veitur segjast taka mengun í Varmá alvarlega en litarmengun vegna framkvæmda hefur sett mark sitt á ána síðustu daga. Framkvæmdir voru stöðvaðar nýlega í stuttan tíma á meðan gerðar voru úrbætur. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leiklist „Fólk er með svo ákveðn­ar hug­mynd­ir um brúðu­leik­hús“ „Þú getur gert allt í brúðuleikhúsi. Ef þú getur hugsað um það þá er leið til þess að gera það,“ segir leikstjóri brúðusöngleiksins Rót sem verður sýndur á Listahátíð í Reykjavík. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið NATO ekki ein­göngu til vernd­ar Evrópu heldur líka Banda­ríkj­un­um Evrópuþjóðir þurfa að taka aukinn þátt í varnarútgjöldum Atlantshafsbandalagsins að mati framkvæmdastjóra NATO. Fundi utanríkisráðherra bandalagsins lauk í Helsingborg í Svíþjóð í gær. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tekn­ir grun­að­ir um að hafa ekið á gang­andi veg­far­anda Tveir voru handteknir í gær grunaðir um að hafa ekið á gangandi vegfaranda á Bíldshöfða fyrr um kvöldið. Nokkuð var um ölvunarakstur í flestum umdæmum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Víða milt en dá­lít­il væta suð­aust­an til Ragnar Jón Hrólfsson Milt veður verður víðast hvar í dag en þó dálítil væta suðaustan til. Austlæg gola eða kaldi og víða skýjað en úrkomulítið. Síðdegis og í kvöld bætir aðeins í vind og fer að rigna, fyrst sunnan til á landinu. Þá snýst í sunnan og suðvestan vindátt. Á morgun er svo útlit fyrir skúraveður en að mestu þurrt og bjart á Austfjörðum. Væntanlega verður hlýjast þar á landinu og mun hiti ná allt að 15 stigum. Hægari vindur á mánudaginn en vestan átt á bilinu 8 til 13 metrar á sekúndu við suðurströndina síðdegis. Víða skúrir, sérstaklega síðdegis. Hiti á bilinu 7 til 13 stig. Búast má við vætu víða yfir helgina. RÚV / Víðir Hólm Ólafsson Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Pútín heitir hefnd­um eftir að hafa sakað Úkra­ínu­menn um árásir á stúd­enta­garða Rússar segja að Úkraínumenn hafi gert árásir á stúdentagarða í Starobilsk í Lugansk-héraði í gær. Úkraínumenn hafna því alfarið og segja að herinn hafi gert árás á hernaðarlega innviði í borginni og segja Rússa dreifa röngum upplýsingum. 23. maí 2026 kl. 6:00INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Sagan af þyrlu Ratclif­fes og rörinu á kókó­mjólk­inni: „Hann svífur bara hér skýjum ofar“ Enski milljarðamæringurinn Jim Ratcliffe hefur stundað viðskipti í Vopnafirði og nærsveitum í áratug. Hvernig eru áhrif hans á þessar fámennu byggðir? 23. maí 2026 kl. 4:10ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Átta banda­rísk­ir þing­menn heim­sækja Græn­land og Sval­barða Þingmennirnir heimsækja meðal annars Háskólann í Tromsø – Háskóla norðurslóða í Noregi. Ein skipuleggjenda ferðarinnar, Lisa Murkowski, hefur látið sig málefni Grænlands og Norðurslóða miklu varða. 23. maí 2026 kl. 3:10ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Dana­kon­ung­ur fundar með for­mönn­um í dag Brynja Dögg Friðriksdóttir Friðrik Danakonungur fundar með formönnum flokkanna í Amalienborg í dag. EPA / Sebastian Elias Uth Friðrik Danakonungur hefur boðað formenn allra tólf stjórnmálaflokkanna í Danmörku til fundar frá klukkan 11 í fyrramálið. Þar með hefst þriðja stjórnarmyndunarlota í landinu. Troels Lund Poulsen formaður Venstre átti fund með Danakonungi í gærkvöld þar sem hann skilaði stjórnarmyndunarumboðinu. Formanninum tókst ekki að mynda hægri stjórn með flokki sínum Venstre, Frjálslynda

Share this article