Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Þriggja bíla árekstur við Gullinbrú Grétar Þór Sigurðsson Grafarvogur og Gullinbrú. RÚV / Ragnar Visage Einn var fluttur til skoðunar á slysadeild eftir árekstur við Gullinbrú í Reykjavík í kvöld. Þrír bílar urðu fyrir tjóni í árekstrinum að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu. Tilkynning um slysið barst á tíunda tímanum í kvöld. Þá var einn dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sendur í Vesturbæinn í Reykjavík eftir tilkynningu frá vegfaranda sem heyrði í reykskynjara og fann brunalykt. Í ljós kom að um eldamennsku var að ræða. Fyrir 38 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Tveimur drengjum bjargað úr húsarústum í Venesúela Tugum hefur verið bjargað á lífi úr húsarústum í Venesúela um helgina. Vonin um að ná fólki lifandi úr húsarústum dvínar með hverri klukkustund sem líður og íbúar eru ósáttir við það hversu hægt björgunarstörfum miðar. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelsher eyðileggur göng Hezbollah Ísraelski herinn hefur eyðilagt göng sem Hezbollah-samtökin höfðu grafið í Suður-Líbanon. Að sögn ísraelskra stjórnvalda fundust þar hundruð vopna auk skotstaða sem áttu að nýtast til árása á Ísrael og ísraelska borgara. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Yngri kynslóðir eldast líffræðilega hraðar og eru í meiri krabbameinsáhættu Ný rannsókn sýnir að líffræðilegur aldur ungs fólks mælist oft hærri en raunverulegur árafjöldi þess segir til um. Þessi öldrunarhraði er sagður skýra aukningu á snemmbúnum krabbameinum. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Suður-Afríka - Kanada Kanada mætti Suður-Afríku í 32-liða úrslitum á HM í kvöld. Eftir fremur bragðdaufan leik kom sigurmarkið loks í uppbótartíma seinni hálfleiks og Stephen Eustaquio reyndist hetjan. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Kanadamenn á leið í 16-liða úrslit eftir dramatík í lokin Kanada mætti Suður-Afríku í 32-liða úrslitum á HM í kvöld. Eftir fremur bragðdaufan leik kom sigurmarkið loks í uppbótartíma seinni hálfleiks og Stephen Eustaquio reyndist hetjan. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Serbía Serbneskir námsmenn mótmæla áfram Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í serbnesku borginni Kraljevo í dag, degi eftir að forseti Serbíu tilkynnti að hann myndi segja af sér. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur 8 þúsund tonn af malbiki Verktakar á vegum Vegagerðarinnar hafa malbikað um 80 þúsund fermetra á höfuðborgarsvæðinu það sem af er sumri. Gott veður gerir það að verkum að vinnan gengur afar vel. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Skora á stjórnvöld að bjarga endurhæfingunni á Kristnesi Starfsfólk endurhæfingardeildarinnar á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit hefur áhyggjur af skertri þjónustu við folk í endurhæfingu, þegar húsinu verður lokað vegna myglu. Ekki hafa fengist svör við því hvort til standi að hefja starfsemi það að nýju. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lýðheilsa Stór hluti framhaldsskólanema spilar fjárhættuspil – kallað eftir auknum forvörnum Rúmlega helmingur stráka í framhaldsskóla hefur spilað fjárhættuspil síðastliðið ár. Þetta kemur fram í nýrri könnun. Einmanaleiki ungmenna eykst og fjórðungur segist eiga í erfiðleikum með samskipti við jafnaldra. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Keflavík lagði KR á heimavelli Fjórir leikir voru í tólftu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Keflavík hafði betur gegn KR í markaleik. KR heldur öðru sætinu og nýliðar Keflavíkur í sjöunda. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Óvissa ríkir um skipaumferð í Hormússundi Forsvarsmenn skipafélaga segja ringulreið ríkja um skipaumferð í Hormússundi vegna áframhaldandi átaka milli Bandaríkjanna og Írans þrátt fyrir yfirlýst vopnahlé. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Segist ekki ætla að stefna áhöfn í hættu Paul Watson hótar að stöðva hvalveiðar með öllum ráðum, án þess að stofna nokkrum í hættu. „Ætlun okkar er að hindra Kristján Loftsson í að drepa hvali.“ Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Sigurmark Kanada kom í uppbótartíma Suður-Afríka og Kanada mættust í 32-liða úrslitum HM. Kanada vann 1-0 og sigurmarkið kom í uppbótartíma. Kanada heldur í 16-liða úrslit og Suður-Afríka er á heimleið. Hér fylgdumst við með leiknum og birtum helstu atvik. SAMANTEKT Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Gæslan á leið að hvalveiðiskipunum: „Við munum vernda líf og limi“ Varðskipið Þór er á leið að hvalveiðiskipum Hvals hf. Ástæðan eru hótanir Paul Watson og samtaka hans. Forstjóri Gæslunnar segist munu gæta lífa og lima allra. Viðbúnaðurinn var undirbúinn í samráði við dómsmálaráðherra. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Tennis Tenniskempur tóku titlana Íslandsmótinu utanhúss í tennis lauk í dag með úrslitaleikjum í einliðaleik. Leikið var í Fossvogi. Rafn Kumar Bonifacius og Sofia Sóley Jónasdóttir báru sigur úr býtum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Holland Hitabylgja í Evrópu: „Ég hef aldrei séð annað eins“ Íslendingur í Hollandi segist aldrei hafa upplifað neitt í líkingu við þrumuveðrið sem skall á þar í landi í gær Hitabylgja hefur geisað í Evrópu undanfarna daga. Von er á því að hitinn lækki næstu daga. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu „Stríðið hefur eyðilagt allt sem við köllum eðlilegt líf“ Úkraínsk baráttukona segir að þrátt fyrir mikla seiglu úkraínsku þjóðarinnar séu þau ekki gerð úr stáli. Úkraínumenn búi nú við gríðarlega óvissu alla daga og stríðið hafi eyðilagt allt það sem kalla mætti eðlilegt líf. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Mótorsport Spennandi mótorkrosskeppni á Akranesi Mótókrossmót helgarinnar sem haldin var á Akranesi bauð upp á spennandi keppni, harða baráttu og góða skemmtun fyrir keppendur og áhorfendur. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Mótorsport Þrefaldir Íslandsmeistarar voru í miklu stuði í miðsumarralli Önnur umferð Íslandsmótsins í rallakstri fór fram í gær. Daníel og Ásta Sigurðsbörn gerðu vel þegar þau settu Íslandsmet í 4 af 6 sérleiðum. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Russell sótti sigur í Austurríki en Antonelli heldur toppsætinu Anna Sigrún Davíðsdóttir George Russell stóð uppi sem sigurvegari í Formúlu 1 kappakstrinum í Austurríki í dag. Þetta er hans annar sigur á tímabilinu. Russell var á ráspól og nýtti það vel. Hann kláraði 1,611 sekúndum á undan Max Verstappen sem endaði annar. Anotnelli varð þriðji en hann heldur engu að síður toppsætinu í keppninni enda með öflugt forstkot. Hann trónir á toppnum með 156 stig og þar á eftir er Hamilton með 115. Russell er svo í þriðja sæti með 106 stig. Russell keyrir fyrir Mercedes. EPA / ANNA SZILAGYI Fyrrum heimsmeistarinn Verstappen hefur ekki átt draumabyrjun á tímabilinu en hann er í 7. sæti með 55 stig. Næsta keppni verður í Bretlandi sunnudaginn 5. júlí. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Hitamet slegið í Þýskalandi þriðja daginn í röð Alexander Kristjánsson Hitamet var slegið í Þýskalandi í dag þegar 41,7 stiga hiti mældist á veðurstöð í Coschen, nærri pólsku landamærunum. Metið var slegið rétt um klukkan fjögur að staðartíma. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem hitamet er slegið í landinu. Fyrir það var hæsti hiti í landinu frá upphafi mælinga 41,2 stig, en sá hiti mældist í júlí 2019. Þá hafði hiti aldrei náð 40 stigum í landinu í júní. Krákur og menn svala sér í gosbrunni í Berlín. Um 150 kílómetrum suðaustan við höfuðborgina var hitamet slegið í dag. EPA / CLEMENS BILAN Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Bandero farið að deila staðsetningu Áhöfn skipsins Bandero er farin að deila staðsetningu sinni með Landhelgisgæslunni. Skipið sigldi inn í lögsöguna í gær en hafði fyrst um sinn hunsað kröfu Landhelgisgæslunnar. 28. júní 2026 kl. 13:43INNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Bæði Baldur og Herjólfur sigla á takmörkuðu afli Smávægileg vélarbilun er í Baldri sem siglir einnig milli lands og eyja. Hann fer því þrjár ferðir í dag í stað sex. Færri ferðir í vetur hafa meðal annars valdið því að það þarf að hækka verðmiðann í Herjólf um 4%. 28. júní 2026 kl. 13:15ÍÞRÓTTIR Fótbolti Bikarvakt: Breiðablik slær Íslandsmeistarana úr leik og fer í úrslit Breiðablik og Víkingur mættust í undanúrslitum bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Blikar unnu 3-0 sigur og eru á leið í úrslitin. Þar mætir liðið annað hvort Aftureldingu eð Fylki. Þau lið mætast 21. júlí. Víkingur er á toppi Bestu deildarinnar og Breiðablik í fjórða sæti. Hér fylgdumst við með leiknum og birtum helstu atvik og viðbrögð eftir leik. SAMANTEKT 28. júní 2026 kl. 13:03ERLENDAR FRÉTTIR Sádi-Arabía 14 látnir eftir þyrluslys í Sádi-Arabíu Fjórtán fórust þegar þyrla í eigu sádiarabísks olíurisa hrapaði nærri austurströnd Sádi-Arabíu í morgun. 28. júní 2026 kl. 12:49ERLENDAR FRÉTTIR Veður Nærri þúsund eldingar á hálftíma Kona slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir eldingu syðst í Svíþjóð í morgun. Tæplega eitt þúsund eldingar mældust nærri Malmö á um hálftíma. 28. júní 2026 kl. 12:06ERLENDAR FRÉTTIR Frakkland 11 fórust í flugslysi í Frakklandi Ellefu manns eru sagðir hafa farist þegar lítil flugvél hrapaði nærri bænum Tomblaine í norðausturhluta Frakklands. 28. júní 2026 kl. 12:06INNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Hafa ekki gefið upp staðsetningu sína þvert á kröfu Gæslunnar Áhöfnin á skipi Paul Watson sem komið er inn í efnahagslögsöguna hefur ekki orðið við kröfu Landhelgisgæslunnar um að tilkynna reglulega um staðsetningu skipsins. 28. júní 2026 kl. 11:03ERLENDAR FRÉTTIR Bretland 10 ár frá Brexit: Sannfærður um að Bretar gangi aftur í ESB Fyrir Brexit kenndu Bretar Evrópusambandinu um allt sem aflaga fór í Bretlandi. Tíu árum síðar hefur ástandið frekar versnað en hitt og nú er Brexit kennt um allt, segir Jón Daníelsson prófessor. Nú vill meirihluti Breta aftur inn í Evrópusambandið. 28. júní 2026 kl. 11:00INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hnífstunguárás á Riddaranum í Engihjalla Mist Þormóðsdóttir Grönvold Maður var stunginn með hníf á barnum Riddaran