Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íran flytur HM-búðir sínar frá Bandaríkjunum til Mexíkó

Read Full Article →

Óvissa hefur ríkt um þátttöku Írans á HM karla í fótbolta sem hefst nú í júní en FIFA hefur þó staðfest þátttökuna. Íranska landsliðið verður reyndar með æfingabúðir sínar í Mexíkó þó svo að leikir liðsins verði í Bandaríkjunum. FIFA samþykkti beiðni Írana um að færa búðirnar frá Arizona í Bandaríkjunum til borgarinnar Tijuana í Mexíkó. Ákvörðunin var tekin eftir áhyggjur Írana af vegabréfsáritunum, ferðalögum og öryggismálum í aðdraganda mótsins. Forseti íranska knattspyrnusambandsins, Mehdi Taj, sagði að staðsetningin í Tijuana myndi auðvelda ferðalög liðsins þar sem borgin er rétt við landamæri Bandaríkjanna og í stuttri fjarlægð frá leikstöðum þeirra í Los Angeles. Íran mætir Nýja-Sjálandi, Belgíu og Egyptalandi í riðlakeppni HM. Tveir fyrstu leikirnir fara fram í Los Angeles og sá þriðji í Seattle. Tijuana er aðeins um klukkutíma flug frá Los Angeles, sem talið er gera undirbúning liðsins einfaldari. Undanfarnar vikur hefur óvissa ríkt um þátttöku Írans á HM vegna pólitískrar spennu í kjölfar innrásar Bandaríkjanna í Íran og erfiðleika tengda ferðalögum til Bandaríkjanna. FIFA hefur þó ítrekað staðfest að liðið verði með á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

Share this article