Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkin veita íranska liðinu meira svigrúm

Read Full Article →

Lið Írana á heimsmeistaramóti karla í fótbolta hefur mikið verið rætt að undanförnu. Bandaríkjastjórn sneið liðinu ansi þröngan stakk hvað dvalarleyfi í landinu varðar en nú hefur liðinu verið gefið meira svigrúm. Íranska liðinu er nú heimilt að koma inn í landið tveimur dögum fyrir leikdag. Áður mátti liðið einungis koma daginn fyrir leik. Þó er það enn þannig að liðinu er gert að yfirgefa landið á leikdegi. „Íranska liðinu verður samt sem áður skylt að yfirgefa völlinn daginn sem leiknum lýkur. Öryggisráðstafanir og verklagsreglur eru þær sömu. Við erum staðráðin í því að halda öruggasta mótið sem völ er á fyrir leikmenn, starfsfólk og aðdáendur,“ segir talsmaður heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna. Íranska liðið hefur dvalið í Mexíkó leikir liðsins í G-riðli eru allir í Bandaríkjunum. Íran er með tvö stig eftir fyrstu tvo leiki sína í riðlinum. Liðið mætir Egyptalandi í lokaleik sínum í G-riðli aðfararnótt laugardags. Egyptar eru í efsta sæti riðilsins með fjögur stig og Íranir koma þar á eftir og hafa góðan möguleika á því að komast í 32-liða úrslit. Takist liðinu að vinna leik sinn við Egypta mun liðið enda á toppi riðilsins.

Share this article