Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Besta frammistaðan í körfubolta á Íslandi

Read Full Article →

Grindvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Sauðárkróki fyrir viku þegar þeir unnu Tindastól 102-109 í fjórða leik liðanna í úrslitakeppni Bónusdeildar karla, og unnu þar með einvígið 3-1. Það ráku margir spekingarnir upp stór augu þegar Grindvíkingar ákváðu að láta frá sér frábæran leikmann, Khalil Shabazz, á miðju tímabili og fá í staðinn hinn fertuga Jeremy Pargo. Það klórar sér þó enginn í höfðinu núna enda sýndi Pargo það í þessari úrslitakeppni að hann er mögulega besti körfuboltamaðurinn sem spilað hefur á Íslandi. Svali Björgvins hefur fylgst náið með Íslenskum körfubolta í 50 ár eða svo og hann renndi yfir nokkur dæmi um eftirminnilegustu frammistöðu körfuboltafólks á landinu.

Share this article