Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 3 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Hitamet fallið í Bretlandi Þorgils Jónsson Hitamet var slegið í Bretlandi í dag þar sem mælar í Heathrow fóru allt upp í 33,5 stig í hádeginu, það mesta sem mælst hefur í maí þar í landi. Fyrra met var frá árinu 1944. Ekki er útilokað að enn bæti í hitann síðdegis sem gæti farið allt upp í 35 stig. EPA / ANDY RAIN Hitabylgja gengur sömuleiðis yfir meginland Evrópu þar sem búast má við að hitamet falli í Frakklandi, Portúgal og á Spáni. EPA / ANDY RAIN Uppfært: Hitinn fór upp í 34,8 stig í Kew Gardens í Lundúnum síðar, sem er tveimur stigum heitara en gamla metrið frá 1944. Fyrir 15 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Danadrottning lögð inn á sjúkrahús í annað sinn á tveimur vikum Margrét Þórhildur Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús í annað sinn á tveimur vikum, í þetta sinn vegna blóðsöfnunar í mjöðm í kjölfar falls. Mary Danadrottning segir hana þegar hafa gengist undir aðgerð. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kona flutt á sjúkrahús eftir að fíkniefnapakkning sem hún hafði innvortis rofnaði Kona á fimmtugsaldri var flutt á sjúkrahús í gær eftir að fíkniefnapakkning sem hún hafði reynt að smygla innvortis rofnaði. Líklega var kókaín í pakkningunum. Kona á sjötugsaldri var flutt á sjúkrahús fyrr í mánuðinum við svipaðar kringumstæður. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Afríka WHO varar nágrannaríki Kongó við frekari útbreiðslu ebólu Mist Þormóðsdóttir Grönvold Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hvetur lönd sem liggja að Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó til að ráðast í tafarlausar aðgerðir til að sporna gegn frekari útbreiðslu ebóluveirunnar. Í yfirlýsingu sem stofnunin sendi frá sér í dag segir að nágrannaríki Kongó séu í mikilli hættu vegna ebólufaraldursins sem þar geisar. Hann breiðist sérstaklega hratt út og geti valdið alvarlegum blæðingum og líffærabilun sem leitt geta til dauða. WHO hefur skráð tíu staðfest dauðsföll af völdum veirunnar frá 15. maí en grunur er um 220 dauðsföll til viðbótar sem ekki hafa verið staðfest. Einn hefur látist í Úganda, nágrannaríki Kongó, vegna veirunnar. AP / Moses Sawasawa Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Besta frammistaðan í körfubolta á Íslandi Doddi fékk körfuboltaspekinginn Svala Björgvinsson til að fara yfir bestu frammistöðu körfuboltafólks á Íslandi eftir ótrúlegan leik Jeremy Pargo, 40 ára gamals leikmanns Grindavíkur gegn Tindastól í Síkinu á dögunum. Sportrásin á Rás 2. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar hyggja á áframhaldandi árásir á Kyiv Mist Þormóðsdóttir Grönvold Rússnesk stjórnvöld hafa sagt erlendum ríkisborgurum og starfsmönnum sendiráða í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, að yfirgefa borgina sem allra fyrst vegna áframhaldandi loftárása rússneska hersins. „Árásirnar beinast bæði að ákvarðanatökumiðstöðvum og stjórnstöðvum“ segir í yfirlýsingu rússneska utanríkisráðuneytisins. Að minnsta kosti einn var drepinn og 20 særðust í árásum Rússa á Kyiv í nótt. Úkraínsk stjórnvöld og bandaríska sendiráðið hafa varað íbúa borgarinnar við hugsanlegum loftárásum og ráðlagt þeim að halda sig í loftvarnabyrgjum. AP / Evgeniy Maloletka Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Tvö banaslys við fallhlífarstökk á tveimur mánuðum Maður á fertugsaldri lést í fallhlífarstökki á dönsku eyjunni Læsø í gær. Þetta er annað banaslysið við fallhlífarstökk á tveimur mánuðum í Danmörku en ungur Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Óðinsvéum í apríl. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tékkland Tékkar hætta aðlögun að evrunni Áform tékkneskra stjórnvalda að hætta aðlögun að evrusvæðinu, með það í huga að skipta um gjaldmiðil, er ekki síst talin pólitísk ákvörðun en efnahagsleg. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kýpur Afsprengi nýnasistaflokks þriðji stærsti flokkurinn Hægri flokkar báru sigur úr býtum í þingkosningum á Kýpur í gær. Harðlínuflokkur á hægri vængnum jók fylgi sitt töluvert og er nú sá þriðji stærsti á þingi. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Telur líklegt að einhverjir Sjálfstæðismenn verði fúlir með niðurstöðuna, sama hver hún verður Prófessor í stjórnmálafræði segir eðlilegt að flokkar taki sér tíma við myndun meirihluta eftir kosningar. Engar formlegar viðræður eru hafnar í Reykjavík og oddviti Sjálfstæðismanna er enn að meta stöðuna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Mikill kaupendamarkaður sem heldur áfram að kólna Dregið hefur úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum. Lengri tíma tekur að selja íbúðir og fleiri eru seldar á undirverði. Sérfræðingur segir hækkandi stýrivexti og takmarkað lánaframboð skýra þessa þróun að mestu leyti. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Í gæsluvarðhald vegna skotárásar í Kópavogi Maður á fertugsaldri var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag vegna rannsóknar á alvarlegu máli í Kópavogi í gær þar sem maður kom illa haldinn með skotsár inn á bakarí. Sá særði er ekki í lífshættu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Verkfall háseta og bátsmanna hófst á hádegi Ótímabundið verkfall háseta og bátsmanna í Sjómannafélagi Íslands á þremur skipum Eimskips hófst í dag. Verkfallið hefur áhrif á siglingaáætlun og þjónustu félagsins. Viðræður um laun og kjör standa enn yfir með milligöngu ríkissáttasemjara. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ekki alveg sami fílingur í Hveragerði og í Berlín Daði Freyr hefur komið sér vel fyrir í Hveragerði ásamt fjölskyldunni sinni. Miðstöðin fór í heimsókn í nýja heimastúdíóið hans þar í bæ. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Samningur ekki í augsýn í Íran Hallgrímur Indriðason Frá Tehran, höfuðborg Írans, í morgun. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Samningur milli Írana og Bandaríkjamanna um stríðslok í Íran er ekki í augsýn þó að samist hafi um stóran hluta ágreiningsefna. Þetta sagði Esmail Baghaei talsmaður utanríkisráðuneytis Íran á blaðamannafundi í morgun. Marko Rubio hafði sagt í gærkvöld að von væri um samning í dag. Donald Trump gaf þó þau skilaboð að flýta sér hægt í samningsgerðinni - tíminn ynni með Bandaríkjamönnum. Hann sagði á Truth Social í morgun að samningur við Íran yrði annaðhvort frábær og þýðingarmikill, eða að það yrði enginn samningur. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Páfastóll Páfi varaði við vopnvæðingu gervigreindar Leó Páfi kynnti sitt fyrsta páfabréf í dag. Þar varar hann við uppgangi gervigreindar og vopnvæðingar tækninnar. Hann baðst auk þess afsökunar á hlut kaþólsku kirkjunnar í þrælahaldi fyrri tíma. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL HM í fótbolta 2026 Shakira setur tóninn fyrir HM í fótbolta með lagi mótsins Kólumbíska tónlistarkonan Shakira hefur gefið út opinbert lag HM í fótbolta. Lagið er unnið í samstarfi við nígeríska söngvarann Burna Boy. Rúmar tvær vikur eru þar til flautað verður til leiks. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Íslendingar eignast færri börn en nokkru sinni Íslendingar fresta barneignum og eignast færri börn en fyrr. Ástæðurnar eru margþættar en að óbreyttu stefnir í fólksfækkun. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sviss Svisslendingar kjósa um hvort takmarka eigi íbúafjölda Í næsta mánuði kjósa íbúar Sviss um hvort takmarka eigi íbúafjölda landsins við tíu milljónir. Tillagan, sem var lögð fram af Svissneska þjóðarflokknum, hefur verið gagnrýnd harðlega af öðrum stjórnmálaflokkum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Yfir 100 ásakanir um ofbeldi og nauðganir í frönskum skólum Grunur leikur á að skólaliðar víða um Frakkland hafi beitt börn margvíslegu ofbeldi. Foreldrar segja að mistök hafi verið gerði í ráðningarferli skólaliða, sem og eftirliti, sem hafi gert þeim kleift að halda áfram misnotkuninni. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rigning og skúrir í flestum landshlutum Búast má við skúrum víða um land í dag. Á fimmtudag gæti kólnað talsvert á Norðurlandi. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg 92 ára listmálari frá Eyrarbakka gefur ekkert eftir Þrátt fyrir að Jón Ingi Sigurmundsson á Selfossi sé orðinn 92 ára gefur hann ekkert eftir í málaralistinni. Hann var að opna málverkasýningu á Eyrarbakka með 56 verkum. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Sund Um 140 erlendir keppendur á sundknattleiksmóti í Reykjavík Hið árlega sundknattleiksmót Ármanns var í Laugardalslaug um helgina. Auk tveggja íslenskra liða mættu um 140 erlendir keppendur á mótið, sumir í fyrsta skipti en aðrir segja þetta eitt skemmtilegasta mót ársins og missa helst ekki af því. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Bensínstöðvum fækkar hratt Árið 2012 voru 1.200 bensínstöðvar í Noregi en áætlað er að þær verði aðeins 730 árið 2034. Nær allir nýskráðir bílar eru rafbílar. 25. maí 2026 kl. 5:44INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Jarðskjálfti af stærðinni 3,8 í Bárðarbungu Brynja Dögg Friðriksdóttir Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 03:50 í nótt. Google map / Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Jarðskjálfti af stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 03:50 í nótt. Um 25 eftirskjálftar hafa fylgt samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Jarðskjálftar af þessari stærðargráðu eru nokkuð reglulegir í eldstöðinni. Síðast varð skjálfti af sömu stærð í Bárðarbungu þann 31. mars. 25. maí 2026 kl. 3:48ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Hundruð fanga mótmæla í fangelsi Fangar gerðu uppreisn vegna pyndinga og illrar meðferðar í Barinas-fangelsinu í Venesúela. Þeir krefjast þess að fangelsisstjórinn verði rekinn. 25. maí 2026 kl. 3:45INNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Kunnugleg stef í Iðnó Þekkt stef úr dagskrá Ríkisútvarpsins voru blásin nýju lífi – í bókstaflegri merkingu – í Iðnó í kvöld, þar sem þau voru í flutningi margra færustu saxófónleikara þjóðarinnar. 25. maí 2026 kl. 2:29ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Drengurinn fundinn heill á húfi Brynja Dögg Friðriksdóttir Google map Tveggja ára drengur sem leitað var að í Svíþjóð í gær er fundinn heill á húfi. Hann var nokkuð kaldur en við góða heilsu þegar hann fann