Bretar hafa ekki lifað jafnmarga daga þar sem hitinn fer yfir 30 stig frá 1995. Það sem af er ári hefur hitinn á Bretlandseyjum farið yfir 30 stig í 35 daga alls. Þegar hitinn fór í 30,6 gráður í þorpinu Frittenden í Kent í gær, sunnudag, féll því rúmlega þrítugt 34 daga met. Veðurfræðingar spá nýrri hitabylgju í komandi viku og búist er við allt að 36 stigum í hluta Austur-Anglíu og á suðaustanverðu Englandi. Heilbrigðisöryggisstofnun Bretlands hefur gefið út gula viðvörun fyrir stærstan hluta landsins næstu daga þar sem hætta getur verið á hitatengdum heilsufarsvanda. Tvær methitabylgjur hafa gengið yfir Bretlandseyjar í sumar, í maí og júní, sem leiddu af sér 2.800 fleiri andlát en á meðalári. Júlí var þurrasti mánuður á Englandi og í Wales frá því mælingar hófust og það hefur valdið bændum miklum búsifjum. Varað hefur verið við vöruskorti af þeim sökum. Eldar hafa líka kviknað víða í skraufþurrum gróðrinum. Hins vegar féll jafngildi hálfsmánaðar úrkomu í norðvestanverðu Skotlandi síðustu tvo sólarhringana að sögn bresku veðurstofunnar.