Ísold Einarsdóttir er markaðsstjóri hjá OK þar sem hún sér um markaðsmál, viðburði og ýmis verkefni tengd vörumerkinu. Hún býr í Garðabæ ásamt tveimur dætrum sínum. Hún viðurkennir að hún sé ekki með mikla bíladellu en segir að bílaáhuginn hafi þó aukist eftir að hún fékk sér Teslu Model Y í fyrra. Hver var fyrsti bíllinn þinn? „Ég keypti mér ekki fyrsta bílinn minn fyrr en ég var 26 ára en fram að því var ég á rekstrarleigubílum. Ástæðan er að þegar ég var yngri sagði amma mér að bílalán væru ekki góð lán og að ég ætti helst ekki að taka bílalán. Ég var föst á því að taka ekki bílalán og ákvað að kaupa fyrstu íbúð og svo bíl fyrir afganginn. Fyrsti bíllinn sem ég keypti var 2018-árgerð af Toyota Yaris og ég elskaði hann mjög mikið. Hann var í mjög sérstökum gráum lit sem var ekki týpískur silfurgrár. Ég sagði alltaf að hann væri eins og kennaratyggjó á litinn. Það hljómar kannski ekki vel en mér fannst hann mjög flottur." Hver er uppáhaldsbíllinn sem þú hefur átt? „Eins mikið og ég elskaði Yarisinn minn og hélt meira að segja að ég myndi eiga hann þangað til dætur mínar fengju bílpróf, þá endaði ég á að kaupa mér Tesla Model Y í nóvember 2025 og er það uppáhaldsbíllinn minn í dag. Ástæðan var meðal annars sú að ég var að flytja á nýjan stað þar sem ég var ekki lengur með bílastæði í bílakjallara. Þá fór ég að hugsa að það væri kannski þægilegt að geta hitað bílinn upp og sleppt því að skafa snjó á veturna og þess vegna fór ég að spá í Teslu. Þar sem ég veit ekki mikið um bíla spurði ég samstarfsfélaga mína sem hafa mikið vit á bílum og allir sem ég talaði við sem áttu Teslu voru mjög ánægðir með hana. Ég ákvað því að panta mér Tesla Model Y og valdi fjórhjóladrifna, þar sem mér fannst það henta vel fyrir íslenskan vetur. Veturinn var síðan eiginlega bara snjólaus. Alveg týpískt. „Það sem er kannski pínu fyndið er að ég pantaði bílinn í ágúst og átti að fá hann afhentan í október. Þá var ég samt ekki búin að selja íbúðina mína og hugsaði með mér að ef ég myndi ekki flytja væri alveg eins gott að halda áfram á Yarisnum. Starfsmaðurinn hjá Tesla sagði að ég gæti alltaf hætt við ef ég myndi skipta um skoðun. Íbúðin seldist og ég ákvað að taka Tesluna, en þegar ég fékk skilaboð um að bíllinn væri kominn til landsins og hvaða bílnúmer hann væri með fékk ég smá bakþanka. Þetta var ekkert hræðilegt bílnúmer en mér fannst það bara ekki alveg passa og ákvað að bíða eftir næstu sendingu. Þegar ég fékk síðan skilaboð um að næsti bíll væri kominn og að bílnúmerið væri ATT99 hugsaði ég með mér að það væri miklu betra og tók hann. Fólk hefur hlegið mikið að því hvað bílnúmerið hafði mikil áhrif á ákvörðunina." Ísold við Tesluna sem hún festi kaup á í fyrra. © Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk Ægisdóttir) „Það sem kom mér mest á óvart við bílinn er hvað hann er ótrúlega þægilegur í akstri. Mér finnst sérstaklega þægilegt í umferðinni að þurfa ekki endalaust að vera að skipta á milli inngjafar og bremsu heldur nægir oftast að taka fótinn af inngjöfinni. Það sem hafði alltaf heillað mig við Tesluna var hvað hún er einföld og stílhrein bæði að utan og innan. Mér finnst líka algjör snilld að þurfa ekki að vera með lykla og að bíllinn læsist sjálfur þegar ég labba frá honum. Það er mjög þægilegt þegar ég er að koma heim með stelpurnar, leikskólapoka og matvörur. Annað sem ég elska við hann er að ég finn aldrei fyrir mengun inni í bílnum, sama hversu mikil umferðin er. Áður þurfti ég oft að slökkva á loftræstingunni þegar ég var að skutla stelpunum í leikskólann því annars kom mengun inn í bílinn. Eldri dóttir mín varð líka oft bílveik á leiðinni í leikskólann en við höfum ekki fundið fyrir því síðan við fengum Tesluna. Við elskum líka að hlusta á tónlist í bílnum og stelpunum mínum finnst mjög skemmtilegt að ljósin inni í bílnum breyti um lit eftir tónlistinni. Það er líka hægt að stilla þannig að ljósin hreyfist í takt við lögin og þær myndu helst vilja hafa þá stillingu alltaf á. Mér finnst það samt aðeins of mikil stemning fyrir morgunumferðina. Mér finnst líka algjör snilld hvað það er mikið geymslupláss í honum. Golfpokinn kemst auðveldlega fyrir og golfkerran kemst meira að segja í geymsluhólfið undir skottinu. Síðan er annað sem ég á eftir að prófa, en það er hægt að kaupa Tesla-kælibox og Tesla-loftdýnu sem væri kannski gaman að prófa á ferðalagi, að geta haldið mat og drykk köldu og sofið í bílnum þar sem það er sérstök svefnstilling. Ég hef samt yfirleitt verið meira fyrir að gista á hótelum en í tjaldi en það væri samt frekar fallegt að sofna undir stjörnubjörtum himni í gegnum glerþakið." Hver er eftirminnilegasta bílferðin? „Eftirminnilegasta bílferðin mín var líklega þegar ég var að skutla stelpunum mínum í leikskólann einn morguninn. Eldri dóttir mín elskaði alltaf að fara í kapp við mig niður stigann á meðan ég fór með yngri stelpuna í lyftunni niður í bílakjallarann. Þennan morgun fattaði ég í lyftunni að ég hafði gleymt tölvunni minni uppi og sagði henni að bíða niðri á meðan ég sótti hana. Þegar ég kom aftur niður var hún horfin. Ég varð auðvitað stressuð og fann hana loksins við aðalinnganginn. Ég var orðin allt of sein og í öllu stressinu gleymdi ég tölvunni ofan á bílþakinu. Þegar ég mætti síðan fyrir utan skrifstofuna hjá OK fann ég tölvuna hvergi í bílnum. Þá rann allt í einu upp fyrir mér hvað hafði gerst. Ég brunaði til baka í von um að hún hefði dottið strax af bílnum í bílakjallaranum eða fyrir utan húsið, en fann hana hvergi. Rétt fyrir utan hverfið mitt sá ég síðan glitta í eitthvað silfurlitað neðst í brekku og þar lá tölvan á hvolfi í vegkantinum. Ég var viss um að hún væri ónýt en þegar ég opnaði hana var skjárinn heill og tölvan virkaði eðlilega. Hún var auðvitað rispuð eftir að hafa kastast af bílnum og út í kant, ekki einu sinni í hulstri. Þetta var HP EliteBook-tölva en hún er gerð úr mjög sterkum efnum eins og magnesíum og áli, sem er sennilega ástæðan fyrir því að ég er enn að nota hana í dag." Ísold gleymdi HP-tölvunni sinni uppi á þaki Toyota Yaris-bílsins síns en hún skemmdist sem betur fer ekki þrátt fyrir að hafa dottið af þaki bílsins á ferð. Hver er besti bílstjórinn (fyrir utan sjálfa þig)? „Besti bílstjórinn er líklega ein af systrum mínum. Það er erfitt að útskýra það en mér líður alltaf mjög vel með henni í bíl og hún keyrir mjög mjúklega og örugglega. Versti bílstjórinn er aftur á móti líka önnur systir mín, en ég ætla ekki að nefna nein nöfn. Hún er samt alveg góður bílstjóri en það er stundum eins og að vera farþegi í kappakstursbíl þegar maður situr hjá henni. Yngsta systir mín sleppur samt frá þessari umræðu, þar sem hún er ekki komin með bílpróf." Hvað hlustarðu helst á í bílnum? „Ég elska alls konar tónlist og það fer alveg eftir því hvert ég er að fara og hvernig skapi ég er í og hvað ég set á, hvort sem ég er á leiðinni í vinnuna, ræktina eða golf. Ég er samt mjög þakklát fyrir að flest lögin sem stelpurnar biðja um eru lög sem ég fíla líka, þannig að við getum allar sungið saman í bílnum." Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgdi Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .