Í síðustu viku afhenti Tesla bíl númer 10.000 Íslandi, samkvæmt opinberum skráningartölum. Tesla er fyrsta bílamerkið á Íslandi til að ná því að skrá 10.000 rafbíla, en um 2,5% íbúa á Íslandi aka nú um á Tesla rafbílum. Samkvæmt tilkynningu frá Tesla eru yfir 7.200 af þessum 10.000 bílum af gerðinni Model Y, en fjórhjóladrifsútgáfan trónir þar hæst. Model Y kom á markað snemma árs 2025 og var jafnframt söluhæsti bíll landsins sama ár. Þar að auki var Model Y söluhæsti bíll á Íslandi bæði árin 2022 og 2023 en yfir fimm milljónir Model Y-bíla hafa verið framleiddir á heimsvísu í verksmiðjum Tesla í þremur heimsálfum. Tesla rekur í dag 14 Supercharger-hraðhleðslustöðvar á Íslandi sem eru á 143 stöðum á landinu. Hraðhleðslunetið nær hringinn í kringum landið, en nýlega bættist við Supercharger-hraðhleðslustöð í Vestmannaeyjum.