Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.5.2026 | 22:50 Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er Bubbi Morthens á sviðinu í Háskólabíói í vikunni þar sem hann renndi í gegnum þriggja tíma prógramm. mbl.is/Eggert Jóhannesson Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Nú eru rúmar tvær vikur í að Bubbi Morthens fagni sjötugsafmæli sínu með tvennum stórtónleikum í Laugardalshöll. Gestir mega eiga von á því að sjá Bubba í sínu allra besta formi enda hefur hann æft stíft með hljómsveit sinni að undanförnu og mun gera það fram að tónleikum. Til þess þótti ekki minna duga en að taka Háskólabíó á leigu í heilan mánuð svo hægt væri að líkja sem best eftir því hvernig stemningin verður á sviðinu. Morgunblaðinu var boðið í heimsókn á æfingu í vikunni og geta fulltrúar blaðsins vottað að ekki er að sjá að það sé sjötugur maður sem stendur á sviðinu og rennir í gegnum þriggja tíma prógramm með afar þéttu bandi. Þar eru bæði gamlir samstarfsmenn og nýir og greinilegt var á þeim klukkutíma sem við sáum að menn ná vel saman. Bubbi settist niður með okkur þegar æfingu var lokið og hann var búinn að kveðja samstarfsfólk sitt. Honum var að sjálfsögðu hrósað fyrir frammistöðuna, bæði fyrir það að ekki var feilnóta slegin en ekki síður fyrir það að hoppa og skoppa í gegnum prógrammið eins og ungur maður væri þar á ferð. „Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er. Þetta voru bara 20 prósent af því sem ég er með! Núna er ég rétt byrjaður að fikra mig áfram í físíkina.“ Frétt af mbl.is Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Lúxusútgáfa á sviðinu Hann segir að aldrei hafi annað komið til greina en að 060626-tónleikarnir yrðu alveg einstakur viðburður. „Þú verður að bjóða fólki upp á lúxusútgáfu af þér í hvert einasta skipti sem þú ferð á svið. Þú getur ekki hugsað að þú ætlir að ná í pening og fara auðveldlega í gegnum þetta. Þetta er bara upp á líf og dauða.“ Og því munu gestir í Höllinni taka eftir, segir Bubbi. „Þegar þú yfirgefur sviðið mun fólk ekki segja: djöfull var þetta gott. Það mun segja: hvernig er þetta hægt?“ Bókaði Höllina eftir 20 ár Hann kveðst vera svo mikill keppnismaður að hugurinn einblíni á þetta. „Hausinn á mér er þarna. Ég fer á svið og það verður ekki hægt að bera mig saman við neinn innanlands.“ Hjá Bubba er einnig mikilvægt að skrokkurinn sé í toppstandi og þar er enginn afsláttur gefinn. „Ég er að fara á æfingu núna, fer beint í gymmið,“ segir hann. Bubbi hefur lýst því yfir að þetta verði stóru tónleikarnir hans. Ísólfur Haraldsson umboðsmaður hans skýtur inn í að Bubbi hafi allur færst í aukana þegar ljóst varð hversu vel tónleikunum var tekið. Þá hafi hann sagst stefna að því að verða 100 ára og meira tónleikahald væri í pípunum. „Já, við erum búnir að bóka Höllina eftir 20 ár. Það er markmiðið,“ segir Bubbi í léttum dúr. „Nei, þetta eru sennilega seinustu stóru tónleikarnir og þeir verða þannig að ekkert mun jafnast á við þá. Þegar fólk kemur í Laugardalshöllina er það að fara að upplifa eitthvað sem það hefur aldrei séð áður á Íslandi. Aldrei. Ég fullyrði það. Þetta verður alveg brjálæðislega gaman. Við erum líka að spila mjög stórt prógramm með lögum sem fólk vill heyra.“ Tónleikarnir 2006 þóttu nú ekki slæmir. Síðan eru liðin 20 ár og ansi margar plötur hafa komið út. Hvernig gekk að velja lögin? „Þetta var mjög erfitt og þurfti margar atlögur en við reyndum að einblína á lög sem hafa skorið sig úr, lög sem eru orðin goðsagnir meðal laga ef svo má segja. Þetta eru þrír klukkutímar af hitturum.“ Vann með afa bassaleikarans Með Bubba á sviðinu verður Guðmundur Pétursson gítarleikari sem hefur lengi spilað með honum en að öðru leyti er þar talsvert yngra fólk sem spilar nú með honum í fyrsta sinn. Einn þeirra er Valdimar Olgeirsson bassaleikari og þó hann og Bubbi hafi ekki spilað mikið saman er sterk tenging við fjölskyldu Valdimars. „Afi hans var skipstjórinn minn sumarið þegar ég var 16 ára í Bolungarvík. Pabbi hans var með mér um borð og skipið var kallað Unglingaheimilið. Svo kemur barnabarn Hávarðar og er að spila með mér núna. Ætli Hávarður hefði nú trúað því 1971 þegar hann var að biðja mig um að spila á munnhörpuna á stíminu inn, og lá og hummaði með einhverja írska ræla, að barnabarnið hans ætti nánast sextíu árum seinna eftir að verða með mér á sviði. Þetta er lyginni líkast.“ Þótt nýtt fólk sé með honum í brúnni nú hefur Bubbi ekki áhyggjur af því. „Við erum allir vinir og erum búnir að æfa það mikið að þetta er komið í dna-ið.“ Hertekur Háskólabíó í mánuð Bubbi segist ekki aðspurður vita til þess að það hafi áður gerst að einhver leigi Háskólabíó eða viðlíka sal í mánuð til æfinga. Það sýni vel metnaðinn. „Ég held að við séum að fara að gera eitthvað einstakt. Alveg eins og með 06.06.06 sem voru tónleikar sem brutu blað í sögunni hér heima. Nú held ég að við séum að fara að gera það sama og ég held að það verði mjög langt í að einhverjir hafi getuna til að gera svona tónleika eins og við erum að fara að gera.“ Hljómsveitin á afmælistónleikum Bubba: Guðmundur Pétursson – gítar Halldór Gunnar Pálsson – gítar Valdimar Olgeirsson – bassi Magnús Magnússon – trommur Gunnar Leó – slagverk Halldór Smárason – píanó Baldvin Hlynsson – píanó Elísabet Ormslev – bakraddir Stefanía Svavarsdóttir – bakraddir Snorri Sigurðarson – trompet Haukur Gröndal – baritónsax Björgvin Ragnar Hjálmarsson – tenórsax Eiríkur Rafn Stefánsson – trompet Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þrenn systrapör hjá Kelfavík Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er Dró sér fé og keypti rándýran húsbíl Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Ég sagði bara takk, guð minn góður“ Umræðan Í dóm þjóðarinnar Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir rangfærslur og ærumeiðingar í dómnum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Óveruleg fjárfesting í stóra samhengi hlutanna Vona að þau hafi haft góð áhrif Mest lesið Í gær Í vikunni Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Þurfa að láta aflífa hundinn Slydda eða snjókoma í kortunum Bárðarbunga nötraði og skalf í nótt Reyndist í endurkomubanni og hafði breytt um nafn Hafði dvalið í bíl sínum í nokkra daga Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Annarri ferð aflýst Myndskeið: Lögreglan leiddi mann út í járnum Jarðskjálftahrina hafin á Reykjaneshrygg Maðurinn kominn í leitirnar Lögregluaðgerð á Laugavegi í morgun Einn með skotáverka og annar handtekinn „Icelandair ber algjörlega ábyrgð“ Sérsveitin og lögreglan við aðgerðir á Kársnesi „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ Blóðugur reikningur á Tenerife Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Þrenn systrapör hjá Kelfavík Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er Dró sér fé og keypti rándýran húsbíl Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Ég sagði bara takk, guð minn góður“ Umræðan Í dóm þjóðarinnar Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enn mikil hætta í Kaliforníu Enn líkur á verstu mögulegu sviðsmynd Hefja formlegar viðræður í Hafnarfirði Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Mest lesið Í gær Í vikunni Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Þurfa að láta aflífa hundinn Slydda eða snjókoma í kortunum Bárðarbunga nötraði og skalf í nótt Reyndist í endurkomubanni og hafði breytt um nafn Hafði dvalið í bíl sínum í nokkra daga Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Annarri ferð aflýst Myndskeið: Lögreglan leiddi mann út í járnum Jarðskjálftahrina hafin á Reykjaneshrygg Maðurinn kominn í leitirnar Lögregluaðgerð á Laugavegi í morgun Einn með skotáverka og annar handtekinn „Icelandair ber algjörlega ábyrgð“ Sérsveitin og lögreglan við aðgerðir á Kársnesi „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ Blóðugur reikningur á Tenerife Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article