Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hlut­hafar Icelandair æfir út í flug­menn

Read Full Article →

Umræða er meðal hluthafa í Icelandair hvort ekki sé rétt að skoða grundvallarbreytingar á rekstri Icelandair í ljósi aðgerða flugmanna, sem hluthafar telja skýrt brot á kjarasamningi og því ólöglegar. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins. Bogi Nils Bogason hefur fullyrt að flugmenn hafi undanfarið haft samantekin ráð um að mæta ekki til vinnu og því hafa fjölmörg flug félagsins síðustu vikur fallið niður eða allt fimm flug á einum degi. Forstjórinn hefur sagt að framganga flugmanna sé „sorgleg“. Kostnaðurinn af aðgerðum flugmanna er mikill. Bæði vegna endurbókana, hótelkostnaðar og uppihalds flugfarþega auk þess sem flugfarþegar veigra sér við að kaupa flugmiða með flugfélögum sem eru í þessari stöðu. Hluthafar Icelandair hafa rætt nokkrar leiðir. Ein þeirra er sala eða sameining við erlent flugfélag þar sem laun og hlunnindi starfsmanna eru mun skaplegri en hér á landi, auk þess sem það tangarhald sem allar þrjár flugstéttir félagsins, flugmenn, flugfreyjur og flugvirkjar, hafa á rekstrinum muni hverfa. Önnur leið er hreinlega að flytja allan rekstur flugfélagsins út fyrir landsteinana og losna þannig undan samningum við flugstéttirnar þrjár. Þriðja leiðin er hreinlega að leysa félagið upp, en Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair ræddi þann möguleika í febrúar við Jóhannes Bjarna Guðmundsson flugstjóra og þáttastjórnanda í Flugvarpinu. Hluthafar eru sérstaklega ósáttir við að flugmenn skuli fara í þessar aðgerðir á sama tíma og flugfélög um allan heim eiga mjög erfitt og sum talin ramba á barmi gjaldþrots. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er stjórn Icelandair samstiga í viðbrögðum við aðgerðir flugmanna og stendur öll þétt að baki Boga Nils Bogasyni forstjóra. Blaðið hefur ekki upplýsingar um hvort umræðurnar meðal hluthafa hafi einnig verið ræddar í stjórn. Mikil hækkun á þotueldsneyti vegna átakanna við Persaflóa hefur gert flugfélögum erfitt fyrir undanfarnar vikur. Mörg flugfélög hafa af þessari ástæðu fellt niður flug þar sem nýtingin er léleg. Þeirra á meðal er easyJet. Gengi Icelandair er í lægstu lægðum og stendur í 0,73 krónum á hlut.

Share this article