Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Læknar tróna á toppnum yfir launa­hæstu ríkis­starfs­mennina

Read Full Article →

Af 250 launahæstu starfsmönnum, embættismönnum og kjörnum fulltrúum hér á landi eru 158 læknar. Til viðbótar eru 16 sérfræðingar hjá heilbrigðisstofnunum og þrír hjúkrunarfræðingar. Þetta kemur fram í minnisblaði fjármálaráðuneytisins sem unnið var að beiðni efnahags- og viðskiptanefndar í tengslum við frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna. Læknarnir á listanum eru með um 3,0-3,4 milljónir króna í laun á mánuði. Launahæstu læknarnir eru tveir yfirlæknar Heilbrigðisstofnunar Austurlands með tæplega 6,1 milljón króna á mánuði hvor um sig. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða er launahæsti einstaklingurinn á listanum með 6,6 milljónir króna á mánuði. Í hópi 50 launahæstu eru einnig tveir flugstjórar, einn flugvirki, forseti Íslands, og framkvæmdastjórar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Sjúkrahússins á Akureyri.

Share this article