Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB kostar ómannað loftfar til eftirlits við Ísland

Read Full Article →

Landhelgisgæsla Íslands tekur ómannað loftfar til notkunar í vikunni sem ætlað er til eftirlits á hafsvæðinu umhverfis landið næstu mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að loftfarið verði gert út frá Hornafjarðarflugvelli og sé af gerðinni Tekever AR5. Það verði nýtt við löggæslu, leit, björgun og mengunareftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Styrkir stöðumynd Landhelgisgæslunnar á hafinu „Tilkoma loftfarsins mun styrkja stöðumynd Landhelgisgæslunnar á hafinu umhverfis Ísland og efla öryggi við leit og björgun á sjó. Um er að ræða samstafsverkefni EMSA, Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, og Landhelgisgæslunnar,“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar. Þá segir að verkefnið sé unnið í samstarfi við Samgöngustofu, Isavia, Avians, ECOI og tollasvið Skattsins. Fjármagnað af Evrópusambandinu „Það er fjármagnað af Evrópusambandinu og skipulagt í samstarfi við EMSA, sem annast samninga við tæknifyrirtækið Tekever. Þetta er í þriðja sinn sem ómannað loftfar er gert út í þessum tilgangi frá Íslandi með stuðningi EMSA,“ segir Landhelgisgæslan. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í september.

Share this article