Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ómannað loftfar reyndist Gæslunni vel við eftirlit

Read Full Article →

Ómannað loftfar, sem gert var út frá Höfn í Hornafirði í sumar, reyndist Landhelgisgæslunni vel við eftirlit á Íslandsmiðum. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar. Þar segir að verkefnið með ómannaða loftfarið hafi verið unnið í samstarfi við EMSA, Siglingaöryggisstofnun Evrópu. Það hafi falist í að nýta loftfarið við fjölbreytt eftirlitsverkefni á suðausturhluta hafsvæðisins umhverfis landið. Reynslumiklar áhafnir frá portúgalska fyrirtækinu Tekever hafi annast stjórn loftfarsins og því verið flogið í alls 300 klukkustundir í sumar. Sannreyna og fylgja eftir ábendingum frá gervihnattavöktun „Loftfarið var meðal annars notað til að sannreyna og fylgja eftir ábendingum frá gervihnattavöktun EMSA, til dæmis vegna hugsanlegrar olíumengunar í sjó, auk þess sem það var nýtt til að staðfesta staðsetningu skipa á hafi,“ segir á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar. Loftfarið hafi þannig aukið eftirlitsgetu Landhelgisgæslunnar á hafi og stuðlað jafnframt að auknu öryggi sjófarenda. Búið búnaði sem getur varpað björgunarbáti í sjó „Í flugferðunum greindi loftfarið og fylgdist með fjölbreyttri skipaumferð og mannvirkjum á sjó, þar á meðal skemmtibátum á leið til landsins, flutningaskipum, fiskiskipum, farþegaskipum, eldiskvíum og skipum sem gáfu ekki upp staðsetningu sína. Loftfarið var einnig búið búnaði sem gerði því kleift að varpa björgunarbáti í sjó.“ Frá sjávarmáli upp í 3.000 til 5.000 feta hæð Hið ómannaða loftfar er af gerðinni Tekever AR5. „Það hefur sjö metra vænghaf, flýgur á um 60 hnúta hraða og er búið ýmsum hátæknibúnaði og skynjurum, þar á meðal ADS-B og SSR (Mode C) ratsjársvörum. Fjarflugmenn Tekever stýrðu loftfarinu frá Höfn í Hornafirði um gervihnattatengingu. Vegna verkefnisins voru skilgreind og auglýst sérstök svæði fyrir flug loftfarsins, frá sjávarmáli upp í 3.000 til 5.000 feta hæð,“ segir á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar. Þakkir til samstarfsaðila Síðan kemur fram að Landhelgisgæslan, EMSA og Tekever færi öllum þeim sem komu að verkefninu kærar þakkir fyrir gott samstarf í sumar, þar á meðal Samgöngustofu, Fiskistofu, Fjarskiptastofu, Umhverfis- og orkustofnun, Avians og Isavia innanlandsflugvöllum.

Share this article