Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Novo Nor­disk leggur niður lofts­lags­ráð

Read Full Article →

Novo Nor­disk hefur lagt niður innra lofts­lags­ráð sem stofnað var fyrir fjórum árum til að styrkja vinnu félagsins að grænni um­breytingu og veita stjórn­endum utan­aðkomandi aðhald. Þetta kemur fram í um­fjöllun Finans. Ráðið, sem bar heitið Susta­ina­bility Advis­ory Council, var skipað sér­fræðingum á sviði lofts­lags- og sjálf­bærnimála og átti meðal annars að ögra félaginu og veita ráðgjöf um sjálf­bærni­stefnu þess. Novo Nor­disk stað­festir við Finans að ráðið hafi verið lagt niður í byrjun árs 2026. Félagið hafnar því þó að ákvörðunin endur­spegli minni metnað í lofts­lags­málum og segir skuld­bindingar sínar í sjálf­bærnimálum óbreyttar. Henrik Skou Han­sen, lektor við Copen­hagen Business Academy og sér­fræðingur í ESG-skýrslu­gjöf, segir ákvörðunina engu að síður skipta máli. „Í grunninn eru þau að fjar­lægja mikilvægan gagn­rýninn sam­talsaðila,“ segir hann við Finans. Fréttin kemur skömmu eftir að Novo Nor­disk birti upp­gjör sitt, en þar kom meðal annars fram að losun gróður­húsa­loft­tegunda hjá félaginu jókst á ný árið 2025. Novo Nor­disk er eitt stærsta lyfja­fyrir­tæki heims og hefur vaxið hratt undan­farin ár, meðal annars vegna mikillar eftir­spurnar eftir sykursýkis- og of­fitu­lyfjum félagsins. Sá vöxtur hefur aukið um­svif félagsins og sett meiri þrýsting á inn­viði, fram­leiðslu og birgja­keðjur. Sam­kvæmt Finans var lofts­lags­ráðið stofnað með þeim metnaði að hjálpa félaginu að takast á við slíkar áskoranir og tryggja að sjálf­bærnimál væru rædd með aðkomu sér­fræðinga utan fyrir­tækisins. Nú hefur Novo Nor­disk hins vegar ákveðið að leggja ráðið niður og vinna áfram að sjálf­bærnimálum innan annarra ferla félagsins. Félagið segir að ákvörðunin breyti ekki mark­miðum þess eða áherslum í mála­flokknum.

Share this article