Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Hugrún Hannesdóttir Diego Lögregla og sjúkrabílar hafa verið kölluð til vegna áreksturs á Reykjanesbraut nærri verslunarmiðstöðinni Smáralind í Kópavogi. Þrír fólksbílar rákust saman á fjórða tímanum. Engin slys urðu á fólki, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Fréttin hefur verið uppfærð. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Vona að nýjar ráðstafanir komi í veg fyrir litabreytingar í Varmá Boranir Veitna hefjast á ný í Skammadal í Mosfellssveit í dag. Gripið var til ráðstafana eftir litabreytingar í Varmá vegna framkvæmdanna. Framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðiseftirlitsins vonar að þær dugi til að koma í veg fyrir frekari mengun. Fyrir 37 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Kannast ekki við samkomulag um ESB-umræðu Stjórnarandstaðan hótar því að láta ekki af umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, þvert á samkomulag sem meirihlutinn telur vera í gildi. Fyrir 56 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Setja skjólshús aftur á sölu vegna mótmæla nágranna Samtökin Geðhjálp telja sig nauðbeygð til að setja húsnæði sem þau höfðu hugsað sem skjólshús, athvarf fyrir fólk sem glímir við andlegar áskoranir, aftur í sölu. Íbúar í nágrenninu mótmæltu því að fá starfsemina í hverfið. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Aukinn þrýstingur á EES ríkin að innleiða reglugerðir og tilskipanir Íslenskir og norskir embættismenn finna fyrir auknum þrýstingi frá Evrópusambandinu á að taka upp og innleiða reglugerðir og tilskipanir samkvæmt EES-samningnum. Búist er við að þetta verði aðal umræðuefnið á ráðherrafundi EES á morgun. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar saka Bandaríkjamenn um að hafa brotið vopnahlé Írönsk stjórnvöld segja Bandaríkin hafa framið gróf brot á vopnahléi milli ríkjanna síðustu tvo sólarhringa. Bandarísk stjórnvöld séu ábyrg fyrir öllum afleiðingum sem brotið kunni að hafa í för með sér. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vonandi hægt að opna um Hornafjarðarfljót í júní Nýtt hringtorg og veðrið í vetur hafa ýtt aftur verklokum á nýjum vegi um Hornafjarðarfljót. Vegurinn sem átti að vera tilbúinn fyrir áramót verður vonandi opnaður í júní segir upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Segist hafa fengið morðhótanir og aukna gæslu Fráfarandi borgarstjóri segir að hún hafi fengið alls konar hótanir síðustu misseri. Hún segir að Íslendingar verði að velta fyrir sér hvernig þeir tali um kjörna fulltrúa. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Menntamál Hvað ef hún hefði ekki orðið fyrir einelti? Foreldrar barna sem lenda á jaðrinum heyja oft harða baráttu fyrir að börn þeirra fái þjónustu við hæfi. Þjónustu sem á að vera til staðar en er það ekki. Skólafólk vill fleiri úrræði fyrir þann fjölbreytta hóp sem er í grunnskólum landsins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Landhelgisgæslan notar dróna við eftirlit á hafinu Landhelgisgæslan hefur komið dróna fyrir á Hornafjarðarflugvelli. Hann verður notaður til eftirlits á hafinu umhverfis landið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Framkvæmdir við SAk hefjast í júní Framkvæmdir hefjast í júní við nýbyggingu Sjúkrahússins á Akureyri. Kostnaður við fyrsta áfanga verður ríflega 40% minni en gert var ráð fyrir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björgunarskip til aðstoðar aflvana fiskibáti Brynjólfur Þór Guðmundsson Lítill fiskibátur óskaði eftir aðstoð í morgun þegar vél bátsins bilaði og rafmagnið fór af honum. Báturinn var þá við Syðrahraun í Faxaflóa. Björgunarskipið Jóhannes Briem var kallað út og sigldi frá Reykjavík til aðstoðar. Það kom að fiskibátnum rétt fyrir klukkan tólf. Báturinn var tekinn í tog og verður dreginn til Hafnarfjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu er engin hætta á ferðum. Viðbúið er að björgunarskipið og báturinn komi til hafnar milli eitt og tvö í dag. Jóhannes Briem á leið að fiskibátnum. Slysavarnafélagið Landsbjörg Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Læknar nær einráðir á lista þeirra launahæstu Forsetinn og forsætisráðherrann eru einu kjörnu fulltrúarnir sem ná inn á lista yfir 250 launahæstu starfsmenn og embættismenn ríkisins. Læknar eru 89 prósent þeirra launahæstu. Flugstjórar og flugvirkjar Landhelgisgæslunnar eru næstfjölmennastir. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Samfélagsmiðlar eins slæmir og reykingar fyrir ungt fólk Læknar í Bretlandi líkja samfélagsmiðlanotkun ungmenna við reykingar. Margir þeirra taka á móti að minnsta kosti einu barni á viku sem hefur hlotið líkamleg meiðsl eða upplifir andlega vanlíðan vegna samfélagsmiðlanotkunar. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Belgía Fjórir látnir eftir að skólarúta varð fyrir lest Fjórir létust þegar skólarúta varð fyrir lest í Buggenhout í Belgíu í morgun. Rútan keyrði út á lestarspor, framhjá öryggislá þegar slysið varð Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla MAST kærir mann fyrir hótanir og ærumeiðingar Matvælastofnun hefur kært mann til lögreglu og segir hann bæði hafa hótað starfsfólki og boðið því greiðslu fyrir verk í sína þágu. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Fara í úrslit í fyrsta sinn síðan 1999 eftir burst Anna Sigrún Davíðsdóttir Það var leikið í NBA-deildinni í nótt og New York Knicks komu sér í úrslit deildarinnar með öruggum sigri á Cleveland Cavaliers á útivelli, 130-93. Knicks hefur spilað afar vel í úrslitakeppninni og unnu þetta einvígi til að mynda 4-0. Þar með var sigurinn í austurdeildinni í höfn. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1999 sem New York Knicks leikur í úrslitum. Þar mun liðið hitta fyrir annaðhvort Oklahoma City Thunder eða San Antonio Spurs úr vestri. Staðan í því einvígi er 2-2 en vinna þarf fjóra leiki til að komast sigra. Fimmti leikur liðanna fer fram í nótt. Liðið fagnar sigri í austurdeildinni í nótt. EPA / DAVID MAXWELL Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Belgía Nokkrir létust þegar rúta varð fyrir lest Árekstur varð milli lestar og lítillar rútu í Buggenhout í Belgíu í morgun. Nokkrir eru sagðir hafa farist í slysinu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Fimm drepnir í loftárás á Gaza Brynjólfur Þór Guðmundsson Heilbrigðisyfirvöld á Gaza segja að minnst fimm hafi verið drepnir í loftárás Ísraela á Al-Maghazi á Gaza í dag. Þar að auki hafi fjöldi fólks særst í árásinni. Heilbrigðisyfirvöld sögðu að Ísraelar hefðu ráðist á hóp almennra borgara. Starfsfólk á Al-Aqsa staðfesti að þangað hefði verið komið með látna og særða. Í það minnsta 904 Palestínumenn hafa verið drepnir síðan vopnahlé tók gildi 10. október, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu á Gaza. Á sama tíma hafa fimm ísraelskir hermenn verið drepnir að sögn þarlendra yfirvalda. Fólk skoðar verksummerki annarrar árásar á Al-Maghazi í síðustu viku. AP / Abdel Kareem Hana Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Netflix hefur fjárfest 16.500 milljarða króna síðasta áratuginn Streymisrisinn Netflix setti á dögunum í loftið vefsíðu þar sem hægt er að rýna í ýmis töluleg gögn um fyrirtækið eins og áhorfstölur, umsvif fjárfestinga og áhrif þess á kvikmyndaframleiðslu víða um heim. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Persaflóaríki ekki lengur skjöldur fyrir herstöðvar Brynjólfur Þór Guðmundsson Mojtaba Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, sagði í dag að Bandaríkjamenn gætu aldrei aftur notað ríkin við Persaflóa sem skjól fyrir herstöðvar sínar. Þetta sagði hann í skriflegri yfirlýsingu sem fjölmiðlar greindu frá. Khamenei hefur ekki sést opinberlega síðan hann tók við embætti af föður sínum sem var drepinn í árásum Bandaríkjamanna og Ísraela í upphafi stríðsins. Íranski byltingarvörðurinn sagðist í dag hafa skotið niður bandarískan dróna og skotið að bandarískri herþotu sem reyndi að komast inn í íranska lofthelgi. Ekki kom fram hvenær það hefði gerst. Bandaríkjamenn sögðust í gær hafa ráðist á íranskar eldflaugastöðvar. Mojtaba Khamenei hefur ekki sést opinberlega. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ræða áfram um þjóðaratkvæðagreiðslu Brynjólfur Þór Guðmundsson Þingfundur hefst á Alþingi klukkan hálf tvö í dag. Tvö mál eru á dagskrá: óundirbúnar fyrirspurnir og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður. Þetta verður fjórði dagur seinni umræðu um hvort halda eigi þjóðaratkvæði um viðræðurnar. Stjórnarliðar leggja til að þjóðaratkvæðagreiðslan verði haldin 29. ágúst og ef það á að ganga eftir þarf að ljúka umræðunni í þessari viku og meirihluti þingheims að samþykkja þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæði. Minnihlutinn í utanríkismálanefnd leggur til að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram 17. október. Stefnt er á að ljúka umræðu í dag og greiða atkvæði um tillöguna á morgun. Úr þingsal. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Svíar niðurgreiða almenningssamgöngur um helming vegna Íransstríðsins Sænska ríkisstjórnin kynnir í dag áform sín um að niðurgreiða almenningssamgöngur. Markmiðið er að stórlækka fargjöld. Aðgerðirnar eru viðbrögð við hækkandi eldsneytisverði vegna stríðs Bandaríkjanna og Írans. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Hlynnt því að framhaldsskólar hefjist ekki of snemma Það kæmi vel til greina að hafa það sveigjanlegra hvenær framhaldsskólar hefja kennslu á morgnana, segir mennta- og barnamálaráðherra. Rannsóknir benda til að hægt væri að ná fram jákvæðum breytingum með seinkun skóladags. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menning Tónlist frá landnámi til líðandi stundar Heimur íslenskrar tónlistar breiðir út faðminn á veglegri sýningu í Hörpu í sumar. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Ýmist skúrir eða skýjað Lítill sumarbragur verður á landinu í dag því útlit er fyrir skúrir og ský víðast hvar um landið. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Eldur í rafhlaupahjóli í Fellahverfi