Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Þriggja bíla árekst­ur á Reykja­nes­braut Hugrún Hannesdóttir Diego Fjarlægja þurfti tvo bíla af Reykjanesbraut um klukkan fjögur síðdegis eftir þriggja bíla árekstur. Þetta kemur fram í upplýsingapósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að engin slys hafi orðið á fólki en að fjarlægja þurfti tvo bíla af þremur með kranabíl. Fyrir 4 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Salah og fé­lag­ar mæta Ástr­al­íu 32-liða úrslit heimsmeistaramóts karla í fótbolta eru senn á enda því þeim lýkur í nótt. Þrír leikir eru á dagskrá. Fyrst er það leikur Egyptalands og Ástralíu. Svo taka Argentína og Grænhöfðaeyjar við klukkan tíu. Loks mætast Kólumbía og Gana klukkan hálf eitt í nótt. Hér fylgjumst við með leik Egyptalands og Ástralíu og birtum helstu atvik. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og Stofan hitar upp frá 17:30. FRÉTTAVAKT Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Grunar MAST um að upp­ljóstra um stað­setn­ing­ar hval­veiði­skip­anna Forstjóri Hvals hf. segir að fyrirtækið hafi stefnt veiðum sínum á ógjöfulli mið vegna þess að í eftirlitsskýrslum MAST hafi verið gefin upp nákvæm hnit veiða. Hann segist hafa rökstuddan grun um að upplýsingarnar hafi borist skipinu Bandero. Fyrir 43 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Menning „Brúð­kaup ald­ar­inn­ar“ í New York: Taylor Swift og Travis Kelce í Madi­son Square Garden Myndavélar allra helstu bandarísku fjölmiðlanna beinast nú að Madison Square Garden-höllinni í New York. Búist er við að brúðkaupsveisla Taylor Swift og Travis Kelce verði þar í kvöld. Fyrir 45 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Minnsti grunn­skóli lands­ins leitar að kenn­ara Árneshreppur á Ströndum leitar að grunnskólakennara fyrir næsta vetur. Aðeins þrjú börn eru á skólaaldri í sveitarfélaginu og Finnbogastaðaskóli sá fámennasti á landinu. Fyrir 57 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Vest­ur­bæj­ar­laug opnar á ný Ragnhildur Helgadóttir Vesturbæjarlaug var opnuð klukkan 15 síðdegis. Hún hafði verið lokuð frá 23. júní vegna viðhalds. „Viðhaldsframkvæmdir hafa gengið vel. Opnun laugarinnar var þó frestað um nokkra daga til að tryggja að málning á barnalauginni hefði náð fullnægjandi þurrki áður en vatni var hleypt á hana,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. Aðallaugin er full en hefur enn ekki náð fullum hita. Gert er ráð fyrir að hún verði komin í hefðbundið hitastig á morgun. „Við opnun laugarinnar í dag verða því barnalaug, heitir pottar, kaldi potturinn, eimbað og sánur öll opin gestum. Aðallaugin verður einnig opin en ekki í réttu hitastigi.“ Aðallaugin er sögð ná fullu hitastigi á morgun. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Átta Tún­isar féllu á lyfja­prófi Áfram heldur saga Túnisa á heimsmeistaramótinu að taka áhugaverðar beygjur. Nú hefur komið í ljós að átta leikmenn liðsins hafi fallið á lyfjaprófi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Slæmar sam­göng­ur hafa ekki áhrif á Go­s­loka­há­tíð Neikvæð umræða um samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hefur ekki áhrif á fjölda gesta á Goslokahátíð, segir bæjarstjóri. Von er á þúsundum gesta um helgina. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Rýmkuð lög um þung­un­ar­rof taka gildi Í upphafi júlí tóku gildi ný lög um þungunarrof í Færeyjum. Það er nú heimilt út tólftu viku meðgöngu en var áður aðeins heimilt í undantekningartilfellum. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Listin, tæknin og reglu­bók lífs­ins Breski listamaðurinn Mat Dryhurst ræðir um stöðu listarinnar á tímum gervigreindar, höfundarétt, Instagram og reglu-list Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Band­ero ekki komist nálægt hval­veiði­skip­un­um Ragnhildur Helgadóttir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, enn ekki hafa komist í grennd við hvalveiðiskipin tvö. Samtökin héldu því fram í færslu á samfélagsmiðlum í gær að Bandero væri nú á leiðinni á hvalamið. „Við höldum áfram að vakta skipið en það hefur ekki verið í grennd við eða ógnað hvalveiðiskipunum,“ segir Ásgeir. Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða í gær eftir að hafa legið við bryggju í nokkra daga vegna slæms veðurs. Bandero er vestan við landið fyrir utan landhelgina. Skipverjar um borð í Bandero vilja stöðva hvalveiðar við Íslandsstrendur. RÚV / Vefsíða Captain Paul Watson Foundation Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Tennis Sveigja regl­urn­ar fyrir Serenu: Nær hún að spila? Tennisstjörnurnar Serena og Venus Williams eru skráðar til leiks í tvímenningi á Wimbledon mótinu sem er nú í gangi. Serena laut í lægra haldi fyrir tvítugu Mayu Joint í vikunni og sneri sig á hné. Skipuleggjendur gera allt til að hún nái að keppa. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Súdan Ísland kall­aði eftir brýnni umræðu um Súdan í mann­rétt­inda­ráði SÞ Brýn umræða um Súdan var í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Ísland var meðal ríkja sem kölluðu eftir umræðunni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Af­rétt­ir ekki sér­stak­ur áhættu­þátt­ur fyrir riðu Niðurstöður nýjustu rannsókna á riðu voru kynntar á fundi í Húnaveri. Þar kom meðal annars fram að afréttir og sameiginlegar réttir eru ekki sérstakir áhættuþættir í riðusmiti í íslenska sauðfjárstofninum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Engum sam­skipta­mál­um út­vi­stað en fékk vina­greiða hjá al­manna­tengli Borgarstjóri segir að samið hafi verið við tvo starfsmenn fram að áramótum í kjölfar uppsagna upplýsingafulltrúa. Engum verkefnum hafi verið útvistað en hún hafi notið liðsinnis almannatengils við skrifin. Ekki verði greitt fyrir greiðann. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lá utan við Straums­vík í tvo daga Skipið Koznitza, sem notað var í stærsta kókaínsmygl Íslands, lá utan við Straumsvík í tvo daga áður en það var tekið inn til hafnar. Ekki er útilokað að á þeim tíma hafi kafari sótt fíkniefnin úr sjókistu skipsins. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Mesta hættan að steypu­brot gætu fallið á gesti Rífa á stóran hluta stúku Laugardalslaugar. Stúkan, sem er þekkt kennileiti í höfuðborginni, er talin hættuleg þar sem hrunið gæti úr henni. Verkfræðingar hvetja til tafarlausra aðgerða. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Loka vegi yfir Kjöl eftir að rúta fest­ist í aur­bleytu Vegagerðin hefur lokað hluta vegarins yfir Kjöl vegna rútu sem situr föst í aurbleytu. Fjallvegir eru víða blautir og óvíst hvenær hægt verður að opna leið yfir Sprengisand. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Funda í kjara­deilu smá­báta­sjó­manna í dag Kjaraviðræður Sjómannasambands Íslands við Landssamband smábátaeigenda og Samtök smærri útgerða eru á byrjunarreit, segir formaður SSÍ. Smábátasjómenn hafa verið samningslausir í 12 ár. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Quang Lé áfram í far­banni Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi farbann yfir Quang Lé, sakborningi í stærsta mansalsmáli sem upp hefur komið á Íslandi. Hann hefur sætt farbanni í rúm 2 ár en það styttist í lok rannsóknar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Aldrei mælst jafn mikið flóð í Blöndu Innrennsli í Blöndulón í lok apríl hefur aldrei mælst jafn mikið. Flóðið var tvöfalt stærra en nokkur annað sem Landsvirkjun á gögn yfir. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Borgin situr uppi með millj­arðs­kostn­að vegna barna með fjöl­þætt­an vanda Ríkið greiðir aðeins fyrir þjónustu við fimm reykvísk börn með fjölþættan vanda en 57 falla utan nýrrar skilgreiningar ríkisins. Borgarráð lýsir þungum áhyggjum og segja ríkið brjóta samkomulag. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Ég þurfti að hlaupa í sókn en kær­ast­an mín lá í gólf­inu eftir mig“ Svandís Anna og Sólveig Helga voru andstæðingar á körfuboltavellinum en það vissi enginn að utan vallar væru þær kærustupar. Þegar varnarmaðurinn Svandís ýtti harkalega við kærustunni sinni sem var í sókn, þurftu þær að láta sem ekkert væri. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Al­ex­andra ráðin bæj­ar­stjóri Suð­ur­nesja­bæj­ar Suðurnesjabær hefur ráðið Alexöndru Jóhannesdóttur sem bæjarstjóra. Hún hefur starfað sem sveitar- og hafnarstjóri á Skagaströnd undanfarin átta ár. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fjögur bíla­stæð­a­fyr­ir­tæki sektuð Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki sem sinna gjaldheimtu fyrir bílastæði. Neytendastofa taldi að upplýsingar um gjöld, greiðsluleiðir og merkingar væru villandi eða ekki nægilega skýrar fyrir ökumenn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti „Nú þurfa menn ekki Öskju­hlíð­ar til að koma sér saman um eitt­hvað“ Framkvæmdastjóri FÍB segir með ólíkindum hve stórtæk olíufélögin hafi verið í álagningu á eldsneyti. Hann segir þau verða að skýra muninn á álagningu hér og erlendis. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Erfið og flókin verk­efni fram­und­an fyrir Íra í for­mennsku ráð­herra­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins Flókin verkefni bíða Íra sem tóku í fyrradag við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins. Viðræður um næstu fjárlög ESB þurfa að þokast áfram næstu mánuðina og stækkunarmál verða áberandi á komandi vetri. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Pétur G. Markan ráðinn bæj­ar­stjóri Grinda­vík­ur Pétur G. Markan, fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Grindavíkur. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Indónesía Skjálfti 6,2 að stærð ekki talinn hafa valdið tjóni Brynja Dögg Friðriksdóttir Jarðskjálfti af stærðinni 6,2 varð í Austur-Indónesíu skömmu fyrir hádegi að staðartíma. Skjálftinn átti upptök sín á 120 kílómetra dýpi, um 58 kílómetra vestur af Tobelo. Hans varð vart í allt að 114 kílómetra fjarlægð. Ekki er talin hætta á flóðbylgju og þá hafa ekki hafa borist fregnir af manntjóni eða eyðileggingu af völdum skjálftans. Skjálftinn varð vestur af Tobelo. Skjáskot / Google Maps Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Bjart og hlýtt sunnan heiða en skú­ra­kennt norð­aust­an­til Í dag verður skúrakennt norðan- og austantil en yfirleitt bjart

Share this article