Hagnaður Brims á fyrsta ársfjórðungi meira en þrefaldaðist milli ára og nam 34,2 milljónum evra eða tæplega 3,5 milljörðum króna. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir í uppgjörstilkynningu að afkoman á tímabilinu hafi verið góð en horfur framundan séu blendnar. „Eins og fyrri daginn skiptast á skin og skúrir í rekstri félagsins. Við þurfum í senn að nýta vel meðbyr þegar hann gefst en einnig vera vel undirbúin þegar á móti blæs.“ Sala Brims á fjórðungnum jókst um 20% frá sama tímabili í fyrra og nam 121 milljón evra eða um 17,6 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) jókst um 129% og nam 34,2 milljónum evra eða tæplega 5 milljörðum króna. Guðmundur rekur góða rekstrarniðurstöðu til þess að skip félagsins veiddu vel af loðnu eða 26 þúsund tonn í samanburði við 850 tonn á sama tíma í fyrra. Auk þess sé verð á bolfiski hátt á alþjóðamörkuðum í dag. „Við getum búist við að verð á bolfiski verði áfram hátt en óvissa ríkir um úthlutun aflaheimilda fyrir flestar fisktegundir á næsta ári þar sem Hafró hefur enn ekki skilað tillögum þar um til atvinnuvegaráðherra. Þó liggur fyrir að heimildir okkar í Brimi til veiða á makríl á þessu ári hafa verið skornar niður um 70% frá fyrra ári.“ Guðmundur segir jafnframt að framleiðslukostnaður innanlands hafi aukist sem skýrist meðal annars af háu gengi krónunnar og hækkun skatta og gjalda. Eignir Brims námu samtals 144,8 milljörðum króna í lok mars, skuldir 70,3 milljarðar og eigið fé 74,5 milljarðar.