Útgerðarfélagið Brim hagnaðist um 18,7 milljónir evra, eða um 2,7 milljarða króna, á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 3,2 milljóna evra hagnað á sama tímabili í fyrra. „Ánægjulegt er að sjá að þrátt fyrir minni afla aukast tekjur. Verð á botnfiskafurðum okkar á erlendum mörkuðum, einkum þorski, ýsa og ufsa var hátt. Góð sala var á uppsjávarafurðum og á fjórðungnum var innleyst afkoma vegna framleiðslu fyrri tímabila,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, í afkomutilkynningu . Velta Brims á öðrum ársfjórðungi jókst um 45% milli ára og nam 119,3 milljónum evra eða um 17,1 milljarði króna. EBITDA-hagnaður meira en tvöfaldaðist milli ára og nam 25,5 milljónum evra eða tæplega 3,7 milljörðum króna. Afli bolfiskskipa félagsins var á tímabilinu 10.240 tonn en var 12.000 tonn á sama tímabili árið áður. Brim gerði út fimm skip á bolfiskveiðar á tímabilinu, en þau voru sjö fyrir ári síðan. Veiðar á ýsu jukust en veiðar minnkuðu á gulllaxi og þorski. Mynd tekin úr fjárfestakynningu Brims. Guðmundur ánægður með kaupin á Lýsi: „Hver er sinnar gæfu smiður“ Brim gekk á dögunum frá 20 milljarða króna kaupum á Lýsi. Guðmundur segir að kaupin marki tímamót í rekstri Brims sem muni færa sig lengra í virðiskeðju sjávarafurða á næstu misserum. „Það eru spennandi tímar framundan fyrir félagið og með þessum kaupum skapast tækifæri á framleiðslu á nýjum vörum sem boðnar eru á nýjum mörkuðum sem félagið hefur ekki áður starfað á. Markmið viðskiptanna eru m.a. að auka virði afla Brims og skapa ný tækifæri með þeirri þekkingu og þeim mannauði sem Lýsi býr að. Þá styrkjast fjárhagsstoðir Lýsis og öflun aðfanga verða tryggari sem skapa möguleika á að auka framleiðslu og verðmætasköpun Lýsis. Ný stoð verður til í rekstri Brims og mun þessi fjárfesting þegar fram líða stundir auka framlegð rekstrar og hagnað félagsins. Í mínum huga skapa kaupin á Lýsi mikil tækifæri fyrir Brim til að þróa og auka úrvinnslu og verðmætasköpun á því góða og heilnæma sjávarfangi sem bátar og skip færa að landi.“ Sjá einnig Grænt ljós á 20 milljarða kaup Brims á Lýsi Brim gekk jafnframt frá samkomulagi um sölu á helmingshlut sínum í Polar Seafood Denmark í lok maí 2026 fyrir 17,8 milljarða króna. Öllum fyrirvörum hefur verið aflétt og verður söluverðið greitt í september. „Nú sem endranær tekst Brim á við þau skilyrði og aðstæður sem náttúran, lög og erlendir markaðir móta. Brim mun halda áfram að skapa sína eigin framtíð. Hver er sinnar gæfu smiður. Það gildir um Brim sem og um okkur öll,“ segir Guðmundur.