Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þórður Þórarinsson nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði

Read Full Article →

Innlent | Kosningar | mbl | 26.5.2026 | 18:03 | Uppfært 18:28 Þórður Þórarinsson nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði Þórður Þórarinsson, nýráðinn bæjarstjóri Hafnarfjarðar. mbl.is/Karítas Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hefur ákveðið að ráða Þórð Þórarinsson í embætti bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Flokkarnir kynntu í dag nýjan málefnasáttmála undir kjörorðunum „Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði“. Þórður var lengi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, áður framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins og þar áður hjá upplýsingadeild Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndinni. Hann er kvæntur Mörtu Maríu Ástbjörnsdóttur sálfræðingi. Málefnasamningur nýja meirihlutans kveður á um tilteknar aðgerðir á ýmsum málefnasviðum, en þar er lögð áhersla á lægri álögur, hagræðingu í rekstri, aukna uppbyggingu og fjölskylduvænni bæ. Sköttum haldið í skefjum Meirihlutinn boðar rekstrar- og stjórnsýsluúttekt á bæjarfélaginu, með það að markmiði að gera stjórnsýsluna skilvirkari og ákvarðanatöku skýrari og skjótari. Hagræða á í rekstri og lækka skuldir bæjarins, án þess að til þjónustuskerðingar komi. Þá er sérstaklega tekið fram að útsvar verði ekki hækkað á kjörtímabilinu og að fasteignagjöld hækki ekki umfram verðlag. Barnafjölskyldur fá talsvert vægi í samningnum. Heimgreiðslur eiga að hækka í allt að 230 þúsund krónur til 24 mánaða aldurs barns og niðurgreiðslur til dagforeldra í sömu fjárhæð frá 12 mánaða aldri. Jafnframt verður sett þak á gjaldskrá dagforeldra. Börn og ungmenni að 18 ára aldri eiga að fá ókeypis í Strætó frá 1. janúar 2027. Besti bær landsins Í atvinnumálum vill nýr meirihluti gera Hafnarfjörð að „besta bæ landsins“ til að reka fyrirtæki. Boðaðar eru fleiri lóðir fyrir atvinnuuppbyggingu, ný atvinnustefna og markaðssetning Hafnarfjarðar gagnvart fyrirtækjum, frumkvöðlum og ferðamönnum. Í skipulagsmálum er meðal annars boðað að skipuleggja lóðir fyrir sérbýli, fjölbýli og atvinnustarfsemi, stytta leyfisveitingaferli og hefja viðræður við nágrannasveitarfélög um vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins. Þá á að hefja undirbúning að nýrri höfn í Straumsvík og finna lausn á umferð að Suðurhöfn. Í velferðarmálum er boðuð uppbygging lífsgæðakjarna fyrir eldra fólk við Sólvang, hjúkrunarheimila í Hamranesi, Hrafnistu og Vatnshlíð og fjölgun félagslegra íbúða. Þá vill meirihlutinn endurskoða samgöngusáttmálann, ráðast í úrbætur á Flóttamannavegi og hækka frístundastyrk í 75 þúsund krónur frá árinu 2027. Fulltrúar flokkanna kynntu nýjan málefnasamning. mbl.is/Karítas Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KR – Valur kl. 19.15, bein lýsing Þórður Þórarinsson nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði Gera kvikmynd um ránið ótrúlega Sakaður um að ráðast á dóttur sína Ekki lengur liðið að gera lítið úr tilfinningum samstarfsmanna Umræðan Evran er varanleg lausn Tala nú um engar „óafturkræfar breytingar“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áfram í varðhaldi eftir manndrápstilraun Kannast ekki við samkomulag um lok ESB umræðu Þórður Þórarinsson nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði Örtröð á Landspítalanum hamlar smitvörnum Mest lesið Í gær Í vikunni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Myndir: Svona gæti Sæbrautarstokkur litið út Regluverkið kallað „blýþung gullhúðun“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Þurfa að láta aflífa hundinn Slydda eða snjókoma í kortunum Bárðarbunga nötraði og skalf í nótt Reyndist í endurkomubanni og hafði breytt um nafn Hafði dvalið í bíl sínum í nokkra daga Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Nýjast á mbl.is » KR – Valur kl. 19.15, bein lýsing Þórður Þórarinsson nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði Gera kvikmynd um ránið ótrúlega Sakaður um að ráðast á dóttur sína Ekki lengur liðið að gera lítið úr tilfinningum samstarfsmanna Umræðan Evran er varanleg lausn Tala nú um engar „óafturkræfar breytingar“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Regluverkið kallað „blýþung gullhúðun“ Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Mest lesið Í gær Í vikunni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Myndir: Svona gæti Sæbrautarstokkur litið út Regluverkið kallað „blýþung gullhúðun“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Þurfa að láta aflífa hundinn Slydda eða snjókoma í kortunum Bárðarbunga nötraði og skalf í nótt Reyndist í endurkomubanni og hafði breytt um nafn Hafði dvalið í bíl sínum í nokkra daga Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson

Share this article