Þórður Þórarinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, verður næsti bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þetta kemur fram í tilkynningu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í dag, þar sem farið er yfir áherslur nýs samstarfssáttmála meirihlutans í bænum. Í tilkynningunni segir að sjálfstæðisstefnan sé „áberandi“ í nýjum samstarfssáttmála meirihlutans, þar sem ábyrg fjármál, frelsi einstaklinga og öflugt atvinnulíf séu í forgrunni. Þar segir jafnframt að samkomulagið byggi á traustum rekstri sveitarfélagsins, einfaldari stjórnsýslu og aukinni skilvirkni án þjónustuskerðinga. Samkvæmt tilkynningunni verður útsvar ekki hækkað á kjörtímabilinu og fasteignagjöld munu ekki hækka umfram verðlag. Þá verður ráðist í rekstrar- og stjórnsýsluúttekt til að tryggja betri nýtingu fjármuna bæjarbúa. Í samstarfssáttmálanum verður einnig lögð sérstök áhersla á fjölskyldur og aukið valfrelsi, meðal annars með hækkun heimagreiðslna og auknum stuðningi við dagforeldra. Sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólar fái áfram stuðning og unnið verði að því að einfalda daglegt líf fjölskyldna. Þá segir í tilkynningunni að atvinnulíf og verðmætasköpun verði sett í öndvegi. Það verði gert með því að halda álögum á fyrirtæki í lágmarki, tryggja lóðaframboð og bæta þjónustu við fyrirtæki og frumkvöðla. Áhersla verði einnig lögð á öflugt skipulag, uppbyggingu innviða og ábyrga stefnu í málefnum hælisleitenda með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi. Tilkynningin endar á því að nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar verði Þórður Þórarinsson.