Innlent | Morgunblaðið | 26.5.2026 | 20:40 Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Tryggvi Tómas Tryggvason nýtur sín enn í starfi eftir 50 ár. Á veggnum sjást merki eftir hann. Morgunblaðið/Karítas Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Flest viljum við vera í takt við tímann í tilverunni og einn farsælasti hönnuður landsins, Tryggvi Tómas Tryggvason, á ekki í vandræðum með það en hann fagnaði á dögunum 50 ára starfsafmæli í grafískri hönnun, hönnunarstjórn og auglýsingagerð á auglýsingastofum. Auglýsingafagið er í huga margra vettvangur fyrir fólk í yngri kantinum vegna þess að stöðugt þurfi að fylgjast með straumum og stefnum í markaðsmálum, tæknibreytingum og alls kyns nýjungum. „Það var oft viðloðandi auglýsingageirann að þar væri mikið um yngra fólk og sjálfur byrjaði ég 22 ára. En á mínum vinnustað er fólk frá tvítugu og upp að mínum aldri,“ segir Tryggvi sem starfar hjá Pipar/TBWA. Eftir hálfa öld sem grafískur hönnuður er hann því 72 ára en er hvergi nærri hættur. Minnkaði reyndar starfshlutfallið niður í fjóra daga í viku í heimsfaraldrinum og hefur haldið því síðan. „Ég vil meina að það sé kostur þegar fólk á ýmsum aldri blandast saman í fyrirtækjum og þannig var það þegar ég hóf störf hjá Auglýsingastofu Kristínar Þorkelsdóttur eftir að ég lauk námi árið 1976. Ég vandist því strax að vera í vinnuumhverfi þar sem er blandaður aldur og fannst það sjarmerandi. Stundum segist unga fólkið læra af mér en ég vil meina að það sé akkúrat öfugt og ég sé að læra af því. Þannig heldur maður sér gangandi. Kristín var í fararbroddi sem helsti merkjahönnuður landsins á þeim tíma og þannig fékk ég gott veganesti fyrir framhaldið,“ segir Tryggvi og neitar því ekki að viðfangsefnin á auglýsingastofum hafi breyst mjög í tímans rás með breyttri fjölmiðlun og upplýsingamiðlun. Hannaði mörg þekkt merki Ef til vill mætti segja að Tryggvi sé sérhæfður í að hanna merki (lógó) fyrir fyrirtæki og stofnanir. Mörg þeirra hafa lifað lengi, sem segir væntanlega sitt um hversu snjall Tryggvi er á sínu sviði. Á vef Pipars eru í því samhengi nefnd merki Landsbankans, ORA, Mjólkursamsölunnar, Íslandspósts, Hitaveitu Suðurnesja og Tryggingastofnunar en auk þess hefur Tryggvi hannað merki fyrir stóra viðburði og þar má taka 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar árið 1986 sem dæmi. Er hægt að tala um einhverjar vinnureglur þegar hanna þarf merki? „Markmiðið er alltaf að merki séu einföld í formi og helst auðskilin. Landsbankamerkið er gott dæmi um það en þá var haldin samkeppni um nýtt merki sem ég vann. Eldra merki bankans var fallegt en flókið og því reyndi ég að fanga karakterinn úr því en hafa nýja merkið einfaldara og þjálla í notkun. Fyrir vikið finnst mér það lifa góðu lífi enn þann dag í dag en þetta var 1986,“ segir Tryggvi sem heldur sínu striki. „Sumir segja að fólk brenni út eftir sjö ár í auglýsingabransanum en ég væri ekki ennþá í þessu nema vegna þess að ég hef gaman af starfinu. Um leið er hönnunin og þetta fag einnig áhugamál.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skilur ekkert í barnsmóður sinni eftir sambandsslit Vill vera áfram í Lundúnum KR - Valur, staðan er 3:1 Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Tjáði sig um ömurlega tíma í Manchester Umræðan Evran er varanleg lausn Tala nú um engar „óafturkræfar breytingar“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Íþyngjandi gullhúðun: „Búið að vera gríðarlega þungbært“ Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Mest lesið Í gær Í vikunni Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Myndir: Svona gæti Sæbrautarstokkur litið út Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Þurfa að láta aflífa hundinn Slydda eða snjókoma í kortunum Bárðarbunga nötraði og skalf í nótt Reyndist í endurkomubanni og hafði breytt um nafn Hafði dvalið í bíl sínum í nokkra daga Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Skilur ekkert í barnsmóður sinni eftir sambandsslit Vill vera áfram í Lundúnum KR - Valur, staðan er 3:1 Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Tjáði sig um ömurlega tíma í Manchester Umræðan Evran er varanleg lausn Tala nú um engar „óafturkræfar breytingar“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vona að þau hafi haft góð áhrif 80 ára met féll: „Leið eins og ég væri í Taílandi“ Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Örtröð á Landspítalanum hamlar smitvörnum Mest lesið Í gær Í vikunni Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Myndir: Svona gæti Sæbrautarstokkur litið út Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Þurfa að láta aflífa hundinn Slydda eða snjókoma í kortunum Bárðarbunga nötraði og skalf í nótt Reyndist í endurkomubanni og hafði breytt um nafn Hafði dvalið í bíl sínum í nokkra daga Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“