Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Það er ekki hægt að sjá eftir neinu“

Read Full Article →

Tveir af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar ætla að sameina krafta sína og halda tónleikaröð sem þau kalla Helgi & Ragga syngja og spjalla. Þar ætla þau Ragnhildur Gísladóttir og Helgi Björnsson að flytja mörg af þeim lögum sem Íslendingar þekkja og hafa tekið ástfóstri við og rifja upp eftirminnileg augnablik úr litríkri vegferð sinni í tónlist. „Það er svo gaman að brjóta upp og gera eitthvað öðruvísi. Við erum búin að þekkjast lengi og búin að fara í gegnum alls konar, bæði bíó og leikhús og sungið saman við ýmis tækifæri,“ sagði Helgi en þau Ragnhildur voru gestir í Mannlega þættinum á Rás 1. Var með blæðandi magasár tvær sýningar Þau léku til að mynda ástfangið par í leiksýningunni Kysstu mig Kata með Leikfélagi Akureyrar. Helgi minnist þess að hafa fengið blæðandi magasár eina sýningarhelgina en fór samt upp á svið. „Ég hékk eiginlega bara utan í Röggu, þú hélst mér uppi.“ „Hann átti að vera ógeðslega vondur við mig, mikið að reyna að temja mig en ég var bara að reyna að lappa upp á hann,“ segir Ragnhildur. Eftir þetta fór Helgi upp á spítala og lá þar í viku. Oft hafi það gerst að þau Helgi og Ragnhildur hafi farið veik upp á svið eða í viðtöl. Helgi minnist þess að hafa leikið í Iðnó eitt sinn þar sem hann hljóp út á milli atriða og kastaði upp fyrir utan. Eitt sinn mætti Ragnhildur með flensu í sjónvarpsviðtal með syndandi augu. „Fólk hélt að ég væri svakalega illa haldin af neyslu.“ Langaði að hverfa ofan í jörðina Ragnhildur hefur alltaf verið með einkennandi fatastíl, þannig að eftir honum sé tekið. Sjálfri þykir henni gaman að sauma og grípur gjarnan í handverk á milli þess sem hún semur á tölvuna. „Þá fer hausinn í annan gír og hvílist líka. Maður kemur betur að því.“ „Það er svo aðdáunarvert hvað Ragga er góður hönnuður líka, hún tekur einhverjar flíkur og snýr þeim öfugt og saumar eitthvað á þær af annarri flík,“ segir Helgi. „Ég var að hugsa um það á tímabili að reyna að taka stílinn hennar.“ Eitt sinn olli hann þó hrikalegu slysi sem skemmdi klæðnað Ragnhildar. Hann langaði að endurvekja gjörning sem SSSól gerði við tónlistarmyndbandið Vertu þú sjálfur þar sem þeir máluðu mótmælaspjöld og gáfu öllum blóm. Hann og Ragnhildur voru að halda tónleika í Húnaveri og þá fékk hann krakkana í sveitinni til að mála skilti rétt fyrir gigg og stillti þeim upp á sviðinu. „Ragnhildur Gísladóttir er komin í geðveikan búning, rosalega flottan, og veit náttúrulega ekki af því að það er einhver rennblaut málning þarna. Hún varð brjáluð.“ „Ég var bara að bíða og fara yfir setlistann. Svo finn ég bara að það togast aðeins í mig, ég er að klessast við lakkið. Þetta var agalegt,“ svarar Ragnhildur og Helgi segist hafa viljað hverfa ofan í jörðina. Ekki hægt að sjá eftir ákvörðunum sínum Fyrsta leiklistarverkefni Ragnhildar var kvikmyndin Með allt á hreinu en síðan þá hefur hún sett á sig leikarahattinn fjölmörgum sinnum, bæði á sviði og hvíta tjaldinu. Hún varði líka heilu ári við LAMDA-listaháskóla í London. „Það var ógeðslega gaman. Þá bara uppgötvaði ég Shakespeare og hvað það er geggjað.“ Helgi útskrifaðist úr leiklistarnámi 1983 og segist hafa leikið stíft næstu tíu árin á ýmsum sviðum. Hann hafi þó sinnt tónlistinni jöfnum höndum og hafi ætlað sér svo gjörsamlega að „meika það“. „Ég var að leika Ljós heimsins í Borgarleikhúsinu og svo bara stökk ég út í bíl og keyrði í hagléli upp á Skaga og spilaði þar til fjögur og svo var sýning daginn eftir. Eftir þá sýningu fór maður til Keflavíkur á Volvoinum. Þetta var náttúrulega alveg fáránlegt, harkið á þeim tíma.“ „En svo kom meikið, það átti að meika það. Þá sagði ég nei við mjög flottum hlutverkum í Þjóðleikhúsinu til dæmis sem bjuggu nú til ýmsa leikara. Þá var bara London og heimsfrægðin.“ Hann hugsaði með sér að hann gæti snúið sér að leiklistinni aftur seinna. Hann sér ekki eftir þeirri ákvörðun. „Það er ekki hægt að sjá eftir neinu. Ég er ekki þannig. Sú ákvörðun sem maður tekur á þeim tíma sem maður tekur hana, hún er bara rétt.“ Það eyðileggi sálartetrið að vera með eftirsjá. Ragnhildur tekur undir þessi orð og segir að maður verði að taka ábyrgð á ákvörðunum sínum og muna að það þurfi ekki endilega að klára allt sem maður fari af stað með. „Þú getur aldrei klárað neitt eða fullkomnað þig í einhverju. Ég hugsa alltaf að ég geri bara mitt besta og hugsa þetta eins og á, reyna að stífla hana ekki.“ Ef fólk vill meira er kannski hægt að gera meira Þau Helgi og Ragnhildur eru búin að halda eina tónleika á Selfossi en um næstu helgi koma þau fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði og Bíóhöllinni á Akranesi. „Þetta eru kannski bara þessi hús sem eru lítil og nett og hafa gott samband við áhorfendur. Við bara ákváðum að vera ekkert að gera allt of mikið,“ segir Helgi. „Við tökum þessar tvær helgar og síðan sjáum við bara til. Ef það er gaman og gengur vel og fólk vill meira þá getum við kannski gert meira.“ Með þeim á sviðinu verða Tómas Jónsson hljómborðsleikari og Stefán Már Magnússon sem leikur á gítar, bassa og trommur. Saman séu þeir tveir eins og heil hljómsveit og spili á allt mögulegt. Sjálf verða þau Helgi og Ragnhildur með blævæng og nokkrar hreyfingar. „Þetta er bara flæði. Það er svo gaman að leyfa þessu bara að flæða,“ segja þau um lagavalið og sögurnar sem þau ætla sér að segja, enda úr miklu að moða. Þau Ragnhildur Gísladóttir og Helgi Björnsson ætla að halda tónleika þar sem þau flytja sína helstu smelli og segja sögur. Þau eru sammála um að það sé eyðileggjandi að vera með eftirsjá og að maður verði að standa með sínum ákvörðunum. Rætt var við Ragnhildi Gísladóttur og Helga Björnsson í Mannlega þættinum á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article