Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Mótvindur í ferðaþjónustu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.5.2026 | 10:40 Mótvindur í ferðaþjónustu Íslensk náttúra heillar en hátt verðlag hér er gagnrýnt. mbl.is/Eyþór Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Ferðamaðurinn er enn ófundinn Þýskur vorboði á Ísafirði Íslenskir fossar fá afleita dóma frá ferðamönnum „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Telja ferðamenn örugga við jökulinn » Fleiri tengdar fréttir Sævar Skaptason, stjórnarformaður Ferðaþjónustu bænda, segir skýr merki um samdrátt í íslenskri ferðaþjónustu. „Ástand heimsmála hefur náttúrlega áhrif. Við erum að sjá að það er meira hik á fólki, meðal annars í Bandaríkjunum. Fólk er að bíða og sjá hvernig málin þróast. Óáreiðanleiki í flugáætlun, meðal annars hjá Icelandair, hefur líka sitt að segja. Þannig að það er alveg greinilegur samdráttur á milli ára.“ Of snemmt að ræða veturinn Hvað með haustið og veturinn? „Svona er útlitið eins langt og við sjáum. Það er hins vegar of snemmt að fara að tala um veturinn. Vetrarferðir seljast enda yfirleitt með styttri fyrirvara.“ Eru einhverjar vísbendingar um að þetta sé tímabundið ástand og að greinin verði fljót að jafna sig? „Það eru tvær lykilbreytur í þessu. Annars vegar auðvitað ástand heimsmála og hins vegar að við erum orðin ansi dýr áfangastaður. Ég ætla ekki að vera með einhverjar dómsdagsspár langt fram í tímann en það er ljóst að það er samdráttur í sumar. Ástandið á mörgum mörkuðum er mjög ótryggt. Ferðamenn virðast líka vera að taka ákvörðun með styttri fyrirvara. Þeir eru að bíða og sjá hvernig ástandið verður og kannski detta bókanir inn þegar á reynir.“ Ágætar horfur Friðrik Pálsson, hótelhaldari á Hótel Rangá, tekur ekki í sama streng. „Sumarið og haustið líta ágætlega út hjá okkur. Stór hluti viðskiptavina okkar kemur frá Bandaríkjunum. Við höfum fjárfest mikið í markaðssetningu á undanförnum árum og virðumst hafa sterka stöðu þar. Það telja margir að það sé meiri samdráttur í vændum í komum ferðamanna frá Bandaríkjunum en við höfum ekki orðið vör við það. Hins vegar berast fréttir frá Bandaríkjunum um að millistéttin sé varkár þessa dagana og telji ýmislegt í heimsviðburðum þess eðlis að ástæða sé til þess að sýna varkárni í fjármálum og þar með ferðalögum. Það hefur, að því er virðist, ekki snert okkur ennþá,“ segir Friðrik. Samverkandi þættir Sérfræðingur í íslenskri ferðaþjónustu, sem vildi ekki koma fram undir nafni, segir nokkra þætti skýra lakari horfur í íslenskri ferðaþjónustu. Í fyrsta lagi hafi spenna í heimsmálum sitt að segja en verð flugmiða hafi hækkað eftir að Íransstríðið hófst. Í öðru lagi sé samkeppnin á ferðamarkaði heimsins meiri en nokkru sinni en það hafi mikið að segja þegar eftirspurnin gefur eftir. Í þriðja lagi, og þessu tengt, sé Ísland ekki nógu sýnilegt á markaðnum sem áfangastaður fyrir ferðalög. Í fjórða lagi sé gengi krónu hátt og fyrir vikið sé Ísland orðið dýrara heim að sækja. Vegna þessara samverkandi þátta hafi erlendum ferðamönnum fækkað fyrstu fimm mánuði ársins. Sagan sé því að endurtaka sig frá því í fyrra þegar ferðamönnum fækkaði fyrstu fimm mánuði ársins, sumarið var gott og svo aftur fækkun síðustu fjóra mánuði ársins. Þaulreyndur ferðaskipuleggjandi tók undir þessa greiningu en nefndi einnig auknar álögur á skemmtiferðaskip og kílómetragjald. Skattstefna stjórnvalda væri letjandi. Þá hefðu önnur Norðurlönd kynnt sig betur. Fækkun í Keflavík Farþegar á Keflavíkurflugvelli voru ríflega 170 þús. færri fyrstu fjóra mánuði þessa árs en sömu mánuði í fyrra Ein skýringin er að flugfélagið Play hætti starfsemi í lok september í fyrra en með því dró úr flugframboði til landsins Síðan hefur Íransstríðið aukið óvissu í ferðaþjónustu um heim allan Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Ferðamaðurinn er enn ófundinn Þýskur vorboði á Ísafirði Íslenskir fossar fá afleita dóma frá ferðamönnum „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Telja ferðamenn örugga við jökulinn » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tvennt grunað í sérstæðu norsku manndrápsmáli Helga og Jón Júlíus keyptu 206 milljóna hús Daninn þarf að hætta vegna alvarlegra meiðsla Mótvindur í ferðaþjónustu Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot á Múlaborg Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Kannast ekki við samkomulag um lok ESB umræðu Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Þorgerður óttast „Brexit-augnablik“ á Íslandi Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Tvennt grunað í sérstæðu norsku manndrápsmáli Helga og Jón Júlíus keyptu 206 milljóna hús Daninn þarf að hætta vegna alvarlegra meiðsla Mótvindur í ferðaþjónustu Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot á Múlaborg Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Örtröð á Landspítalanum hamlar smitvörnum Óbærileg ár fram undan Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Þorgerður óttast „Brexit-augnablik“ á Íslandi Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article