Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslendingar draga saman seglin en ferðamenn ekki

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 27.5.2026 | 16:05 Íslendingar draga saman seglin en ferðamenn ekki Útlitið fyrir sumarið er nokkuð gott og stendur ágúst þar upp úr. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Mótvindur í ferðaþjónustu Ferðamaðurinn er enn ófundinn Þýskur vorboði á Ísafirði Íslenskir fossar fá afleita dóma frá ferðamönnum „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ » Fleiri tengdar fréttir Þrátt fyrir minna framboð af flugi um Keflavíkurflugvöll það sem af er ári hafa álíka margir erlendir ferðamenn farið um flugvöllinn og á sama tíma í fyrra, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Fram kemur hins vegar í hagsjá Landsbankans að á sama tíma hafi utanlandsferðir Íslendinga dregist saman um rúmlega 15%. Þá hefur fjöldi tengifarþega um völlinn sömuleiðis dregist saman. Samhliða hefur verð á flugfargjöldum til og frá landinu hækkað nokkuð og verið að meðaltali um 20% hærra en á fyrstu mánuðum síðasta árs. Minna framboð og hærra verð virðist því hingað til hafa haft töluvert meiri áhrif á utanlandsferðir Íslendinga heldur en komur ferðamanna til landsins. „Þetta er sérlega áhugavert í ljósi þess að raungengið er mjög hátt núna, sem ætti að draga úr komum til landsins og hvetja til utanlandsferða Íslendinga,“ segir í hagsjá bankans. Ferðamenn fá minna fyrir peninginn sinn „Það má þó sjá áhrif hás raungengis í þróun kortaveltu erlendra ferðamanna. Það sem af er ári hefur kortavelta á hvern ferðamann nokkurn veginn staðið í stað samanborið við sömu mánuði í fyrra. Ef kortavelta á hvern ferðamann er leiðrétt með verðlagi sést að hún hefur dregist saman og var um 7,5% lægri að meðaltali fyrstu fjóra mánuði ársins borið saman við sama tímabil í fyrra.“ Út frá þessum upplýsingum má ætla að þó svo að ferðamenn séu að eyða jafn miklu og í fyrra séu þeir að fá umtalsvert minni þjónustu fyrir hverja krónu. Almyrkvi kemur sterkur inn en óvissa um framhaldið Útlitið fyrir sumarið er nokkuð gott og stendur ágúst þar upp úr vegna almyrkvans 12. ágúst. Þá er gisting meira og minna uppbókuð í kringum hann og útlit fyrir nokkuð góðan mánuð heilt yfir. Í tilkynningu hagsjárinnar kemur svo fram að mesta óvissan fyrir ferðaþjónustuna og efnahagsþróun almennt stafar svo af því hvenær samningar nást á milli Bandaríkjanna og Írans og hvenær Hormússund verður opnað fyrir skipaumferð. „Icelandair hefur til að mynda dregið úr flugframboði á öðrum ársfjórðungi um 2%, en einnig tilkynnt að flugframboð fyrir næsta haust verði minnkað, að stærstum hluta vegna hækkunar á olíuverði.“ Samt sem áður virðist aukið olíuframboð frá Bandaríkjunum og Noregi hafa dregið úr áhyggjum Evrópskra flugfélaga. Einnig hefur „mikil hækkun á verði flugvélaeldsneytis hefur hvatt olíuhreynsistöðvar í Evrópu til að forgangsraða framleiðslu á flugvélaeldsneyti“. „Það er því síður útlit fyrir skort á flugvélaeldsneyti en útlit fyrir að verð á flugfargjöldum verði aftur á móti nokkuð hærra en ella.“ Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Mótvindur í ferðaþjónustu Ferðamaðurinn er enn ófundinn Þýskur vorboði á Ísafirði Íslenskir fossar fá afleita dóma frá ferðamönnum „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Menningarstjórnmál í meirihlutaviðræðum Sigurður Már Jónsson Uppgjörið við þrælahaldið, hvað er satt og rétt? Fleira áhugavert Daði um undirskriftalistann: „Mjög impónerandi“ Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Krefja bankana um ábyrgð og afturköllun vaxtahækkana Íþyngjandi gullhúðun: „Búið að vera gríðarlega þungbært“ Aðsókn í Kringluna jókst um 15% Björn Brynjúlfur valinn hagfræðingur ársins Gunnar Egill nýr framkvæmdastjóri Eignaumsjónar Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Helgi Páll nýr tæknistjóri Snjallgagna Alvarleg staða á íbúðamarkaði Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Gunnar Egill nýr framkvæmdastjóri Eignaumsjónar Íþyngjandi gullhúðun: „Búið að vera gríðarlega þungbært“ Björn Brynjúlfur valinn hagfræðingur ársins Alvarleg staða á íbúðamarkaði Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Ný stjórn FKA Atvinnulífið varar við auknum regluþunga Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“ Pistlar » Sigurður Már Jónsson Menningarstjórnmál í meirihlutaviðræðum Sigurður Már Jónsson Uppgjörið við þrælahaldið, hvað er satt og rétt? Fleira áhugavert Miðflokksmenn óánægðir með ákvörðun Hildar Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Krefja bankana um ábyrgð og afturköllun vaxtahækkana Íþyngjandi gullhúðun: „Búið að vera gríðarlega þungbært“ Aðsókn í Kringluna jókst um 15% Björn Brynjúlfur valinn hagfræðingur ársins Gunnar Egill nýr framkvæmdastjóri Eignaumsjónar Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Helgi Páll nýr tæknistjóri Snjallgagna Alvarleg staða á íbúðamarkaði Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Gunnar Egill nýr framkvæmdastjóri Eignaumsjónar Íþyngjandi gullhúðun: „Búið að vera gríðarlega þungbært“ Björn Brynjúlfur valinn hagfræðingur ársins Alvarleg staða á íbúðamarkaði Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Ný stjórn FKA Atvinnulífið varar við auknum regluþunga Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“

Share this article