Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í Reykjavík vill taka til í Orkuveitu Reykjavíkur og ráðast í eignasölu hjá fyrirtækinu. Hildur Björnsdóttir, verðandi borgarstjóri, segir í samtali við Vísi að nýr meirihluti hafi meðal annars rætt um að selja Ljósleiðarann og Carbfix en standa vörð um grunnþjónustu Orkuveitunnar. „Inni í Orkuveitunni bíða stór og mikil verkefni. Það þarf að taka til í Orkuveitunni, við viljum ráðast í ákveðna eignasölu, við höfum talað um að selja Ljósleiðarann og Carbfix, standa vörð um grunnþjónustuna, kjarnaþjónustuna, rafmagnsveituna og vatnsveituna,“ segir Hildur við Vísi. Orkuveita Reykjavíkur er að fullu í eigu opinberra aðila. Reykjavíkurborg á stærstan hlut í fyrirtækinu en Akraneskaupstaður og Borgarbyggð eiga einnig hlut. Undir samstæðuna falla meðal annars Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix. Hildur segir að Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, verði boðið að taka við sem stjórnarformaður Orkuveitunnar. Miðflokkurinn verður ekki hluti af nýjum meirihluta í borginni, en Hildur segir að boðið til Ara sé ekki hugsað sem friðþæging. „Það verður mín tillaga að hann verði stjórnarformaður Orkuveitunnar. Það er ekki nein friðþæging, það er bara vegna þess að þarna erum við með reynslumikinn mann í fyrirtækjarekstri,“ segir Hildur. Sjá einnig Hildur leggur til að Ari verði stjórnarformaður OR Hún segist treysta Ara vel til að sinna verkefninu, taki hann það að sér. „Hann hefur þessa reynslu sem til þarf og það þarf reynslumikla manneskju inn í þetta verkefni, þannig að þótt hann sé í minnihluta þá ber ég fullt traust til hans, að hann klári þessi verkefni ef hann tekur þau að sér,“ segir Hildur við Vísi. Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn kynntu nýjan meirihluta í Reykjavík á blaðamannafundi í Viðey í dag. Hildur verður borgarstjóri samkvæmt samstarfi flokkanna. Hún segir jafnframt við Vísi að hún hafi reynt að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokknum en að það hafi ekki gengið eftir. Viðreisn hafi áður lýst því yfir að of langt væri á milli flokksins og Miðflokksins til meirihlutasamstarfs. Sjá einnig Svona líta áherslumál nýs meirihluta út