Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ætla að selja Ljósleiðarann og Carbfix

Read Full Article →

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi talað fyrir sölu á eignarhlutum í sumum af fyrirtækjum í eigu borgarinnar og fær flokkurinn nú tækifæri til að láta það verða að veruleika. Samkvæmt verkefnalista nýs meirihluta Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Viðreisnar í borginni stendur til að undirbúa sölu Ljósleiðarans og tryggja að Orkuveitan sinni aðeins kjarnastarfsemi í þágu borgaranna. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf talað fyrir því að hið opinbera eigi ekki að vera í samkeppnisrekstri við einkafyrirtæki. Þess vegna stefnum við að sölu Ljósleiðarans og Malbikunarstöðvarinnar Höfða á kjörtímabilinu. Við munum einnig beita okkur fyrir því að Orkuveitan sinni aðeins upprunalega kjarnahlutverki sínu frá því að rafmagns-, vatns- og hitaveitur borgarinnar voru sameinaðar undir merkjum Orkuveitunnar. Þar af leiðandi viljum við einnig selja hlut Orkuveitunnar í Carbfix. Með því að koma því verkefni í hendur fjárfesta mun fyrirtækið eigi mun meiri möguleika á að blómstra en undir núverandi eignarhaldi,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Stefnt er að því að nýta söluandvirði eigna til innviðafjárfestinga og niðurgreiðslu skulda. Ekki er vanþörf á en skuldir borgarsjóðs námu tæplega 222 milljörðum króna í lok síðasta árs og fjármagnsgjöld námu um 22 milljörðum á síðasta ári. Þá hyggjast flokkarnir þrír í meirihlutanum leita tækifæra til frekari raforkuframleiðslu á vegum Orkuveitunnar og sjá borgarbúum fyrir rafmagni á hagstæðum kjörum. Ráðist verði að innviðaskuld í veitukerfum borgarinnar og viðhald og fjárfesting til framtíðar tryggð hjá Orkuveitunni. Til viðbótar er stefnt að því að nýta jarðhitasvæði Orkuveitunnar til að sjá fólki og fyrirtækjum fyrir heitu vatni á hagstæðum kjörum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article