Vonir glæddust í dag um friðarsamkomulag á milli Bandaríkjanna og Íran. Ríkisfjölmiðlar í Íran fullyrtu að þeir hefðu komist yfir samningsdrög á milli landanna. Meðal þess sem samningurinn átti að fela í sér var að yfirvöld í Íran opnuðu fyrir skipaumferð um Hormússund á ný og í staðinn yrði herlið Bandaríkjanna dregið frá svæðinu ásamt því að hafnbanni yrði aflétt. Olíuverð féll um nærri fimm prósent á mörkuðum í dag eftir að fréttir af samningnum birtust. Stjórnvöld í Washington voru fljót að segja samninginn uppspuna frá rótum og sendu frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem sagt var að ekki væri hægt að treysta neinu sem fram kæmi í írönskum fjölmiðlum. Stjórnvöld í Íran fullyrtu í dag að ósennilegt væri að allsherjarátök myndu brjótast út að nýju. Friðarviðræður á milli Bandaríkjanna og Íran standa enn yfir. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að enn væri möguleiki á samningi en lýsti því yfir að Hormússund yrði opnað hvort sem friður kæmist á eða ekki. Donald Trump forseti Bandaríkjanna taldi samningsstöðu Írans komna í þrot þar sem sjó- og flugher landsins hefði verið nær útrýmt. Samkvæmt úttekt leyniþjónustu Bandaríkjanna, sem var til umfjöllunar hjá New York Times , hefur Íran þó enn aðgang að mörgum eldflaugasvæðum meðfram Hormússundi. Sú úttekt bendir til þess að her landsins sé sterkari en Trump hafi fullyrt. Íran sakaði í gær Bandaríkin um að brjóta gegn vopnahléi sem enn stendur á milli þjóðanna. Bandaríski herinn sagði að ráðist hefði verið í varnarskyni gegn írönskum flugskeytastöðvum og bátum sem komu fyrir tundurduflum bæði á mánudag og þriðjudag.