Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Segir samningsdrög liggja á borði Trump

Read Full Article →

Bandaríkin og Íran eru nálægt því að ná tímabundnu samkomulagi sem ætlað er að draga úr spennu milli ríkjanna og skapa grundvöll fyrir víðtækari samning um kjarnorkumál og öryggi á Persaflóasvæðinu. Þetta sagði Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, á fundi með blaðamönnum í Hvíta húsinu í gær. Wall Street Journal fjallaði um málið í gærkvöldi. Samkvæmt Bessent hafa ríkin skipst á tillögum að samkomulagi undanfarnar vikur og séu „forsendur fyrir samkomulagi“ fyrir hendi. Hann lagði þó áherslu á að endanleg ákvörðun væri í höndum Donalds Trump forseta. Drög að samkomulaginu gera ráð fyrir 60 daga rammasamningi þar sem báðir aðilar myndu vinna að því að aflétta gagnkvæmum hindrunum á siglingum um Hormússundið. Bandarísk stjórnvöld hafa sett fram skýr skilyrði fyrir samkomulaginu. Þar ber hæst að Íran losi sig við birgðir sínar af mjög auðguðu úrani, skuldbindi sig til að þróa ekki kjarnorkuvopn og opni Hormússundið að fullu fyrir alþjóðlegri skipaumferð. Hormússundið er ein mikilvægasta siglingaleið heims þar sem um fimmtungur af allri olíu sem flutt er á heimsmarkaði fer um. Truflanir á umferð um sundið undanfarna mánuði hafa stuðlað að hækkandi orkuverði og aukinni óvissu á fjármálamörkuðum. Íran hefur á móti farið fram á að frystar eignir landsins erlendis verði leystar úr haldi og að bandarískar refsiaðgerðir verði smám saman rýmkaðar. Bandarísk stjórnvöld hafa gefið til kynna að slík tilslökun komi aðeins til greina ef sannreynt verði að Íran standi við skuldbindingar sínar. Óvissa er þó enn um hvort samningurinn nái fram að ganga. Íranskir embættismenn hafa sagt að endanlegur texti liggi ekki fyrir og hafa jafnframt lýst áhyggjum af því að Trump kunni að hætta við samkomulagið undir þrýstingi frá Ísrael. Takist að ná samkomulagi yrði það fyrsta stóra skrefið í átt að varanlegri lausn á átökum sem hafa staðið yfir síðustu vikur og valdið verulegu tjóni á svæðinu. Jafnframt gæti það opnað leið fyrir umfangsmeiri viðræður um kjarnorkuáætlun Írans og framtíð refsiaðgerða gegn landinu. Olíuverð er stöðugt þessa stundina og hefur lækkað mikið síðustu daga vegna væntinga um samkomu. Norðursjávarolía (Brent) og WTI hráolían (Crude) liggja nú í kringum 90 dali, eftir að hafa farið upp í 120 dali þegar átökin voru hvað hörðust á milli Bandaríkjanna og Ísraela annars vegar og Írana hins vegar.

Share this article