Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Hornafjörður Tveir flokkar í meirihluta bæjarstjórnar Hornafjarðar Mist Þormóðsdóttir Grönvold Bæjarfulltrúar Framsóknar og stuðningsmanna og Sjálfstæðaflokksins í Hornafirði undirrituðu málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026-2030 í dag. Undirritunin fór fram í Verbúðinni í Miklagarði. Framsókn og stuðningsmenn hlutu 44,8% atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum og þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 26,0% atkvæða og tvo fulltrúa. Aðsend / Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Breið samstaða í nýrri bæjarstjórn Grindavíkur Mist Þormóðsdóttir Grönvold Oddvitar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Grindavík, allra þeirra flokka sem buðu fram í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum í vor, hyggja á samstarf á komandi kjörtímabili. Fram kemur í tilkynningu Grindavíkurbæjar að flokkarnir þrír hafi að undanförnu unnið saman að gerð samfélagssáttmála sem ætlað sé að vinna að krefjandi og spennandi verkefnum sem fram undan séu í sveitarfélaginu. Stefnt er að því að kynna samstarfssamninginn og áherslur nýrrar bæjarstjórnar á næstu dögum en fyrsti fundur bæjarstjórnarinnar verður haldinn 2. júní. Grindavíkurbær Fyrir 18 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Alls konar íslenskt fyrir tónelska Það er hressileg útgáfa þessa dagana og færri komast að en vilja í Undiröldunni þar sem var boðið upp á nýmeti frá Luigi ásamt Maron Birni, Nýdönsk, Hjálmum og mörgum fleirum. Fyrir 26 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Bretar hafa áhyggjur af ungdómnum – yfir ein milljón iðjulaus Ungu fólki í Bretlandi sem er hvorki með atvinnu eða í námi hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Yfir milljón Bretar á aldrinum 16–24 ára eru nú í þeirri stöðu. Fyrrverandi heilbrigðisráðherra landsins segir tækifæri fyrir ungt fólk skorta. Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ingimar Guðmundsson nýr bæjarstjóri í Hveragerði Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var kynntur í Hveragerði í dag. Ingimar Guðmundsson, oddviti Sjálfstæðismanna, verður nýr bæjarstjóri. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Aron Pálmarsson: „Mig langaði að vera aðalþjálfari“ Aron Pálmarsson er nýr þjálfari karlaliðs FH í handbolta. Fyrrum landsliðsmaðurinn tekur við liðinu af Sigursteini Arndal sem hættir þó ekki og gerist aðstoðarþjálfari liðsins. Aron hafði áður sagt að hann ætlaði sér ekki að gerast þjálfari. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Endurskoðun samgöngusáttmála möguleg án tafa Í samstarfssáttmálum meirihlutanna í Reykjavík og Hafnarfirði er áhersla lögð á að endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Framkvæmdastjóri Betri samgangna segir það velta á útfærslu hvort það leiði til tafa á framkvæmdum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar hvort Carroll hafi framið meinsæri Bandaríkjaforseti var dæmdur til að greiða E. Jean Carroll nærri 11 milljarða króna fyrir kynferðisbrot og ærumeiðingar. Forsetinn hefur ítrekað óskað eftir því við ráðuneytið að það rannsaki andstæðinga sína. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Viðræðurnar „snúast um frið í Evrópu til lengri tíma litið“ Utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna eru sammála um að mikilvægt sé að Evrópa eigi sæti við borðið í samningaviðræðum Úkraínu og Rússa um lok innrásarstríðsins. Áður en fulltrúi Evrópu verði valinn þurfi fyrst að auka þrýsting á Rússlandsforseta. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Vill 250 milljónir í skaðabætur frá Eik – hvað er að gerast á Glerártorgi? 250 milljóna króna skaðabótakröfu Ideal Company á hendur Eik fasteignarfélagi var vísað frá dómstólum vegna formgalla. Eigandi fyrirtækisins telur sig hafa orðið fyrir misnotkun og mismunun af hálfu Eikar og mun ekki leggja árar í bát. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Fjölda starfsmanna sagt upp hjá Rapyd Greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd hefur sagt upp fjölda starfsmanna á alþjóðavísu. Uppsagnirnar tengjast skipulagsbreytingum og innleiðingu gervigreindar. Greindin er sögð leysa störf fjölda starfsmanna af hólmi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Þingmenn greiða atkvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu Síðari umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er lokið. Til stendur að atkvæðagreiðsla hefjist klukkan 15 og verður henni sjónvarpað á RÚV. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Aron Pálmarsson tekur við FH Handknattleiksdeild FH tilkynnti í dag að Aron Pálmarsson muni taka við sem aðalþjálfari karlaliðs FH í handbolta. Aron hefur undanfarið ár verið aðstoðarþjálfari en mun nú hafa stólaskipti við Sigurstein Arndal, núverandi þjálfara liðsins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Fólk er að kaupa óafvitandi eitraðar vörur“ Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er ánægð með að DSA-reglugerðinni sé beitt af fullum þunga en netverslunin Temu þarf að greiða 30 milljarða sekt á grundvelli hennar. Unnið er að innleiðingu reglugerðarinnar í atvinnuvegaráðuneytinu. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Heilbrigðismál Mikil verðmæti í að vinna á fordómum Hlynur Jónasson starfar á geðsviði Landspítalans og brennur fyrir starf sitt sem snýr að því að koma fólki aftur í virkni og út á vinnumarkaðinn. Hann segir flesta eiga möguleika og mikil verðmæti séu falin í því að vinna á fordómum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelsher gerir loftárásir í Beirút og suðurhluta Líbanons Ísraelsher segir árásirnar beinast gegn Hezbollah-samtökunum. Herinn hefur skipað íbúum sunnan árinnar Zahrani að flýja norður yfir hana. Landsvæðið sem skipunin nær til þekur um 14% Líbanons. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Ekki lykilatriði hvort einkunnir eru gefnar í tölu- eða bókstöfum Formaður Kennarasambands Íslands segir kennara ekki vera á móti því að skipta úr bókstöfum yfir í tölustafi við námsmat. Áform ráðherra þess efnis hafa verið sett í samráðsgátt. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Air Atlanta selt stjórnendum og bandarísku félagi Flugfélagið Air Atlanta hefur verið selt lykilstjórnendum fyrirtækisins og bandarísku félagi. Engar breytingar verða á daglegum rekstri og starfsmannahaldi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Veittu ökumanni eftirför af Snæfellsnesi í Skorradal Lögreglan á Vesturlandi veitti ökumanni eftirför alla leið frá Vegamótum á Snæfellsnesi og í Skorradal fyrir hádegi. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og hafnaði utan vegar eftir um 80 kílómetra eftirför. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ari ætlar að íhuga vel boð Hildar Anna Lilja Þórisdóttir Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur ekki ákveðið hvort hann þiggur boð Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra, um formennsku í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Hildur tilkynnti í gær, þegar nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur, að hún hefði boðið Ara stjórnarformennskuna. Gylfi Magnússon, núverandi stjórnarformaður, var kosinn þegar ný borgarstjórn tók við 2022. Í skriflegu svari til fréttastofu segist Ari vera að íhuga málið, það þurfi að skoða vel og hann ætli að gefa sér tíma til þess áður en hann tekur ákvörðun. Ari Edwald á kjörstað í sveitarstjórnarkosningunum 2026. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin Litlar líkur virðast á að stjórn Ulf Kristerssons haldi velli í þingkosningum í Svíþjóð í haust. Stjórnarandstaðan hefur tæplega 10 prósentustiga forskot á stjórnarflokkana. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Segja Hannes haldinn barnagirnd og þurfa verulegan stuðning Dómkvaddir matsmenn telja að Hannes Valle Þorsteinsson, sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku í leikskóla, sé haldinn barnagirnd. Greindarvísitala hans er innan tornæmismarka. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Dæmdur hryðjuverkamaður fær að halda áfram námi í efnafræði Starfsfólk tækniháskólans KTH í Stokkhólmi vildi að manni yrði vikið úr skólanum eftir að hann var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að hafa ætlað að eitra fyrir gestum Eurovision með blásýru. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf 26 sagt upp hjá Bláa lóninu Bláa lónið hefur lagt niður 29 stöðugildi og fært 55 starfsmenn milli sviða í skipulagsbreytingum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bardagaíþróttir Markmiðið einfaldlega að vera bestur Atvinnuboxarinn Emin Kadri heldur nú út til Kaupmannahafnar þar sem hann keppir í íþróttinni. Emin er Íslendingur og keppir fyrir hönd Íslands en foreldrar hans koma frá Albaníu, hann segir það augljóst val að keppa undir merkjum Íslands. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Læknar ósáttir við ummæli Runólfs og stjórnar Landspítalans Brynjólfur Þór Guðmundsson Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur fordæmir ummæli Runólfs Pálssonar, forstjóra Landspítalans, og stjórnar spítalans um hlutastörf lækna sem vinna bæði á spítalanum og í einkarekstri. Fundurinn vísar til ummæla í Spítalapúlsi, fréttum og í grein í Morgunblaðinu. Runólfur sagði að á Landspítalanum væri mun hærra hlutfall lækna í hlutastarfi en gerðist á öðrum háskólasjúkrahúsum. Hann sagði að þetta kæmi niður á skipulagi, mönnun og þátttöku lækna í kennslu og vísindastarfi. Í ályktun læknanna segir að ummæli hans og stjórnar séu órökstudd og segir að þau séu ámælisverð. Landspítalinn við Hringbraut. RÚV / Guðmundur Bergkvist Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Starfsmaður sendiráðsins í Freetown kallaður heim af öryggisástæðum Utanríkisráðuneytið hefur flutt starfsmann við sendiráð Íslands í Síerra Leóne heim af öryggisástæðum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar 30 daga skilorð fyrir líkamsárás gegn dóttur Maður