Innlent | mbl | 28.5.2026 | 20:21 Fólk ekki upplýst um hvað taki við Sigmundur Davíð í pontu Alþingis í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Þremur breytingartillögum hafnað Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu samþykkt Mun Ísland beygja sig undir herskyldu ESB? Beint: Þingmenn takast á um ESB-málið Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ » Fleiri tengdar fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB) snýst ekki um að upplýsa þjóðina og leyfa henni svo að velja að mati Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins. „Þetta snýst um að Þorgerður Katrín vill fá umboð til þess að fara með óútfylltan tékka á fullveldi Íslands í viðræður við Evrópusambandið,“ segir Sigmundur í samtali við mbl.is. Þingsályktunartillaga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðsluna var samþykkt af Alþingi í dag. Að óbreyttu ganga landsmenn að kjörborðinu þann 29. ágúst. Frétt af mbl.is Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu samþykkt Umræðunni kippt úr sambandi „Við munum eiga von á því í sumar, sérstaklega í ágúst, að fá heimsóknir frá embættismönnum og meintum sérfræðingum sem ætla að útskýra fyrir Íslendingum að þetta sé nú allt hið besta mál,“ segir hann. „Um leið og búið er að taka þessa umræðu að miklu leyti úr sambandi því að þau vita, og þess vegna völdu þau þessa dagsetningu, að þjóðmála- og stjórnmálaumræða er afar takmörkuð á Íslandi á sumrin,“ bætir hann við. Hann segir fólk nú komast upp með að reka íslensk stjórnmál algjörlega án tengingar við raunveruleikann. „Ég held að mér sé óhætt að segja að hvergi annars staðar hefði stjórnvöldum dottið í hug að það væri hægt að telja almenningi trú um að það að falast eftir því að fá að ganga inn í Evrópusambandið snúist um eitthvað allt annað en hvort menn vilji ganga í Evrópusambandið,“ segir Sigmundur. Frétt af mbl.is Mun Ísland beygja sig undir herskyldu ESB? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. mbl.is/Anton Brink Kristrún gat ekki svarað Hann furðar sig einnig á því að ríkisstjórnin hafi enn ekki svarað því hvað gerist kjósi Íslendingar já eða nei í ágúst. „Nú síðast í dag gat Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ekki svarað því hvað myndi gerast ef svarið yrði nei, hvort það hefði einhverjar afleiðingar. Og það sem verra er, hefur ekki tekist að útskýra hvað gerist ef svarið er já.“ Þingið hafnaði í dag breytingartillögu minnihlutans um að samningsmarkmið og skilyrði Íslands í mögulegum samningaviðræðum við ESB yrðu tilgreind fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. „Það á að hafa sem minnsta umræðu, sem minnstar upplýsingar og sem minnsta vitneskju um hvað taki við segi fólk já,“ segir hann. Frétt af mbl.is Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ Sigmundur segir Kristrúnu ekki hafa svarað því hvað gerist segji landsmenn já í ágúst. mbl.is/Anton Brink Þingmenn fengu aðgang að trúnaðargögnum Þingmönnum sem ekki sitja í utanríkismálanefnd Alþingis var í dag veittur aðgangur að trúnaðargögnum sem utanríkismálanefnd hefur fengið send í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna og mögulega aðildarviðræður við ESB. „Okkur tókst að knýja á um að þingmenn fengju að skoða þau [trúnaðargögnin] en þeir mega reyndar ekki tjá sig um þau; almenningur má ekki vita í hvaða stöðu Þorgerður er búin að koma þessu máli áður en til atkvæðagreiðslu kemur,“ segir hann. Frétt af mbl.is ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Frétt af mbl.is Fá að sjá upplýsingar „í læstu leyniherbergi“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Þremur breytingartillögum hafnað Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu samþykkt Mun Ísland beygja sig undir herskyldu ESB? Beint: Þingmenn takast á um ESB-málið Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kominn aftur heim í Víking Fólk ekki upplýst um hvað taki við „Mér finnst það ekki sanngjarnt“ Parliament approves EU referendum proposal Landið sem þú ættir að heimsækja næst Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meiri niðurskurður en áður hefur sést Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Hafnar gagnrýni á örorkukerfið Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Mest lesið Í gær Í vikunni Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Nýjast á mbl.is » Kominn aftur heim í Víking Fólk ekki upplýst um hvað taki við „Mér finnst það ekki sanngjarnt“ Parliament approves EU referendum proposal Landið sem þú ættir að heimsækja næst Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Icelandair: Flugfarþegar þurfa ekki að hafa áhyggjur Hafnar gagnrýni á örorkukerfið Hildur vill skynsemi og sátt í borginni Miðflokksmenn óánægðir með ákvörðun Hildar Mest lesið Í gær Í vikunni Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum