Innlent | mbl | 30.8.2026 | 18:00 Segir unga fólkið hafa sigrað Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, hafa stutt nei-hreyfinguna. mbl.is/Eggert Jóhannesson Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Halla tjáir sig um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar ESB virðir vilja íslensku þjóðarinnar Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Utanríkismálanefnd kölluð saman » Fleiri tengdar fréttir Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir að á undanförnum vikum hafi átt sér stað mikil pólitísk vakning hjá ungu fólki á Íslandi um utanríkismál, efnahagsmál og framtíð þjóðarinnar. „Ef þetta er sigur einhvers staðar, er þetta sigur unga fólksins sem er búið að vinna alveg gríðarlega hörðum höndum allan tímann að því að vilja fá að ráða sínum málum sjálft,“ segir Lilja við mbl.is í kjölfar nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í morgun lágu úrslit atkvæðagreiðslunnar fyrir er lokatölur úr Suðvesturkjördæmi voru kynntar og var greint frá því að nei-hliðin hefði borið sigur úr býtum með 52,8% atkvæða á landsvísu. Er blaðamaður mbl.is náði tali af Lilju á kosningavöku Áfram Ísland, sem barðist fyrir nei-inu, í gærkvöldi kvaðst hún einmitt ánægð með unga fólkið sem vann með samtökunum í baráttunni, en samkvæmt seinustu könnun Gallups fyrir kosningarnar hygðust 60% þeirra sem eru á aldrinum 18-29 ára kjósa gegn því að hefja viðræður við Evrópusambandið. Frétt af mbl.is Lilja er hreykin af unga fólkinu „Það sem ég tek úr þessari baráttu er að þetta er breið fylking ungs fólks sem hefur mjög skýra sýn á framtíðina og vill leggja sitt af mörkum eins og fyrri kynslóðir hafa fengið að gera og það sem skiptir mig mestu máli er að unga fólkið hefur komið sterkt inn í þessa baráttu.“ Ríkisstjórnin mislas stöðuna Spurð hvernig hún líti á framtíð ríkisstjórnarinnar með tilliti til niðurstöðu gærdagsins segir hún Evrópusambandsvegferð ríkisstjórnarinnar hafa verið vanbúna frá upphafi. „Í fyrsta lagi var spurningin óskýr. Í öðru lagi var skortur á gögnum frá ríkisstjórninni. Hún sagði að samningsstaða Íslands hefði styrkst verulega en var þó ekki tilbúin til þess að sýna á þau spil með sannfærandi hætti. Í þriðja lagi skorti allar greiningar á stöðunni til þess að búa til trúverðugleika á þessa vegferð ríkisstjórnarinnar.“ Telur hún ríkisstjórnina hafa mislesið stöðuna, heimilin og fyrirtækin í landinu. Þau vilji að einblínt sé á efnahagsmálin. „Þau vilja að vextir og verðbólga lækki og ríkisstjórnin náði ekki að sannfæra þjóðina um það að ESB-aðild eða ESB-vegferð væri lausnin,“ segir Lilja. Mikilvægt að nei-hliðin hlusti á já-hliðina Að sama skapi segir hún mjög mikilvægt að nei-hliðin hlusti á það sem já-hliðin hefur að segja. „Og hvað er hún að segja að mínu mati? Það er ákall um þjóðarsátt í efnahagsmálum og að ná tökum á verðbólgu, vöxtum og að afnema verðtryggingu. Það er það sem ég les úr skilaboðum já-hliðarinnar.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Halla tjáir sig um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar ESB virðir vilja íslensku þjóðarinnar Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Utanríkismálanefnd kölluð saman » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nei við viðræðum ekki já við óbreyttu ástandi Hjörtur var hetjan Þjóðlegir íhaldsmenn höfðu betur á landsbyggðinni Segir unga fólkið hafa sigrað Robbie Williams íhugar að fá sér hárkollu Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dró saman milli já og nei í lokatölum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Engin leið að vita hvernig þetta fer“ „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ „Þetta er nei sem svíður í Brussel“ „Alveg lygilegt“ Beint: Brugðist við niðurstöðunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Beint: Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Íslendingar hafna aðildarviðræðum „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Nýjast á mbl.is » Nei við viðræðum ekki já við óbreyttu ástandi Hjörtur var hetjan Þjóðlegir íhaldsmenn höfðu betur á landsbyggðinni Segir unga fólkið hafa sigrað Robbie Williams íhugar að fá sér hárkollu Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Engin leið að vita hvernig þetta fer“ „Verðum að bera virðingu fyrir öllum sjónarmiðum“ Dró saman milli já og nei í lokatölum Nýjar tölur úr Suðvestur: Nei tekur fram úr Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ „Þetta er nei sem svíður í Brussel“ „Alveg lygilegt“ Beint: Brugðist við niðurstöðunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Beint: Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Íslendingar hafna aðildarviðræðum „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“