Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Óvenjuöflugt eldingaveður gekk yfir suður af landinu Markús Þ. Þórhallsson Skjáskot úr myndbandi sem sýnir eldingu. Mynd úr safni. Aðsent / Edda Rún Knútsdóttir Óvenjuöflugt eldingaveður gekk yfir hafið um tvö hundruð kílómetra suður af Íslandi í nótt að sögn Marcels de Vries, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Veðrið hefur færst til norðausturs að sögn Marcels og er líklega að mestu að fjara út. Ekki hafi borist tilkynningar um að eldingarnar hafi sést úr landi, þótt það sé ekki ólíklegt. Fyrir 46 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Tedros segir unnt að stöðva útbreiðslu ebólafaraldursins Aðalframkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar segir mögulegt að kveða niður ebólafaraldurinn sem geisar nú í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og hefur borist til nágrannaríkjanna. Hann heimsækir austurhluta Kongó í dag. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kanada Búist við að sextugur matreiðslumaður viðurkenni liðsinni við sjálfsvíg með eitri Talið er að sextugur fyrrverandi matreiðslumaður lýsi sig sekan um fjórtán glæpi fyrir rétti í dag. Hann var ákærður fyrir morð og liðsinni við sjálfsvíg með því að gefa ráð og útvega fólki um víða veröld efni í þeim tilgangi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía „Óþolandi stigmögnun“ að rússneskur dróni skall á húsþaki í borginni Galati Tveir menn særðust lítillega þegar rússneskur dróni skall á byggingu í rúmenskri hafnarborg skammt frá landamærum Úkraínu í nótt. Rúmenar segja atvikið óþolandi stigmögnun. Drónar hafa iðulega farið yfir landamæri Rúmeníu frá upphafi stríðsins. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi New Glenn-eldflaug Blue Origin leystist upp í eldhnött á skotpalli í Flórída Vandræði geimferðafyrirtækisins Blue Origin halda áfram. Í síðasta mánuði mistókst því að koma gervihnetti á sporbaug um jörðu og í gærkvöld leystist New Glenn-eldflaug þess upp í eldhnött þegar verið var að dæla á hana eldsneyti. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ísland sækist eftir sæti í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar Ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu er frambjóðandi Íslands til framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar fyrir næsta þriggja ára kjörtímabil. Sérstök áhersla er lögð á jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og heilsu barna og ungmenna. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þrír drepnir í drónaárás á Donetsk — dróni skall á húsi í Rúmeníu Markús Þ. Þórhallsson Þrír voru drepnir í drónaárás Úkraínuhers á Donetsk-hérað sem hernumið er af Rússum og nefnt Alþýðulýðveldið Donetsk. Hús stendur í ljósum logum eftir árás Rússlandshers á borgina Kramatorsk í Donetsk 25. maí. EPA / Maria Senovilla Leiðtoginn Denis Pushilin, Rússi sem ráðið hefur þar ríkjum síðan 2018, tilkynnti þetta í færslu á samskiptamiðlinum Telegram og sagði minnst fimm til viðbótar hafa særst, einn mjög alvarlega. Úkraínskum drónum hefur einnig verið beint að orkuinnviðum í rússneska héraðinu Volgogrod. Íbúðahús skemmdist en engin tíðindi hafa borist af manntjóni. Tveir særðust lítillega þegar dróni skall á íbúðahúsi í rúmensku hafnarborginni Galati í nótt. Borgin er nærri landamærunum að Úkraínu. Þarlend útvarpsstöð greindi frá atvikinu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Machado biðlar til Bandaríkjanna um að koma á fundi við bráðabirgðastjórnina Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela biður Bandaríkjastjórn að koma á viðræðum milli hennar og bráðabirgðastjórnarinnar í landinu við endurreisn lýðræðis í landinu. Hún ætlar að bjóða sig fram til forseta. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi Ísrael og Rússlandi bætt á svartan lista SÞ vegna kynferðisbrota í hernaði Ísraelskum og rússneskum öryggissveitum hefur verið bætt á svartan lista Sameinuðu þjóðanna yfir þau ríki eða vígahópa sem beita kynferðisofbeldi skipulega sem vopni í hernaði. Ísraelsk stjórnvöld andæfa því harðlega. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Austurríki Dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleikum Taylor Swift 21 árs gamall maður hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleika Taylor Swift í Vínarborg sumarið 2024. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Þetta er auðvitað einhvers konar gerviskoðanakönnun“ Utanríkisráðherra mætti þingflokksformanni Miðflokksins í líflegum þætti Kastljóss í kvöld þar sem þingsályktunartillaga um hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB að nýju var rædd. Þær greindi á um undirbúning og framsetningu tillögunnar. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Netanjahú vill að 70% Gaza verði undir stjórn Ísraels Forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað ísraelska hernum að ná stjórn á allt að 70% Gazasvæðisins og vill með því þrengja að Hamas. Áformin ganga þvert gegn vopnahléssamningi sem gerður var í október. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum „Við látum ekki það sem kom fyrir Palestínumenn henda okkur“ Íbúi sem er á flótta frá Suður-Líbanon segir Ísraela eiga að taka föggur sínar og fara heim. Ísraelsher skipaði íbúum um 300 bæja og þorpa í suðurhluta landsins að flýja í gær. Hann gerði umfangsmiklar loftárásir á Líbanon í dag. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Emil Barja tekur við Stjörnunni Anna Sigrún Davíðsdóttir Emil Barja tekur við sem aðalþjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Emil þjálfaði kvennalið Hauka sem urðu Íslandsmeistarar árið 2024 undir hans stjórn. Baldur Þór Ragnarsson var þjálfari Stjörnunnar en sagði starfi sínu lausu eftir tímabilið. Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrra en datt út í undanúrslitum í ár. Samningur Emils er til tveggja ára. Hann segist spenntur fyrir verkefninu. „Ég er spenntur að koma til Stjörnunnar og taka við þessu nýja starfi. Stjarnan hefur byggt upp öflugt starf og leikmannahópurinn er sterkur og verður gaman að verða þátttakandi í framhaldinu.“ Stjarnan Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur „Það þarf endurskoðun“ Það þarf einhverskonar endurskoðun, segir fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Ræða þarf fjármögnun, mikilvægt er að það tefji ekki framkvæmdir. 28. maí 2026 kl. 20:18INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Ég myndi hugsa mig tvisvar um áður en ég myndi kaupa svona á netinu“ Tollgæslan hefur lagt hald á þúsundir glasa af ólöglegum peptíðum sem reynt var að smygla hingað til lands síðasta árið. Fjöldi sýnishorna hefur verið sendur erlendis til efnagreiningar og er von á niðurstöðum fljótlega. 28. maí 2026 kl. 19:44INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Hafa breytt verkferlum og aukið fræðslu til starfsfólks vegna Múlaborgar Ekki er hægt að útiloka að mönnunarvandi á leikskólum hafi haft áhrif á þeim tíma sem Hannes Valle Þorsteinsson var ráðinn til starfa á Múlaborg. Sviðsstjóri Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir verkferla breytta í kjölfar málsins. 28. maí 2026 kl. 18:48INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Þörf á aðgerðum fyrirtækja og sveitarfélaga gegn verðbólgu Formaður VR kallar eftir aukinni þátttöku fyrirtækja og sveitarfélaga í aðgerðum til að stemma stigu við hækkandi verðbólgu. Aö öllu óbreyttu geti haustið orðið þungt. 28. maí 2026 kl. 17:53INNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Kallar eftir sérstöku frumvarpi um kyrkingar Einn helsti sérfræðingur Bandaríkjanna um kyrkingartak segir nauðsynlegt að setja sérstök lög um kyrkingar hér á landi. Ekki sé nógu markvisst að þær tilheyri almennum lögum um líkamsárásir. 28. maí 2026 kl. 17:35INNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Fresta útboði í brú yfir Djúpafjörð um óákveðinn tíma Óvíst er hvenær útboð hefst vegna smíði brúar yfir Djúpafjörð. Stefnt var að því að verkið yrði boðið út um síðustu áramót. 28. maí 2026 kl. 17:28ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Framlenging vopnahlés veltur á Trump Samninganefndir frá Íran og Bandaríkjunum hafa komist að samkomulagi um 60 daga framlengingu vopnahlés milli ríkjanna. Framhaldið er þó háð samþykki Bandaríkjaforseta. Ríkin hafa skipst á árásum þrátt fyrir gildandi vopnahlé. 28. maí 2026 kl. 17:06INNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Bjóða teppi, sængur eða hlutabréf upp í ullarskuldir Bændum býðst nú að fá ullarteppi, -sængur eða hlutabréf frá Ístex í skiptum fyrir ull sem þeir höfðu ekki fengið greitt fyrir. Framkvæmdastjórinn segir það ekki gott að geta ekki borgað en með þessu vilji fyrirtækið reyna að koma til móts við bændur. 28. maí 2026 kl. 16:38ERLENDAR FRÉTTIR Lettland Ný ríkisstjórn tekin við í Lettlandi Andris Kulbergs er nýr forsætisráðherra Lettlands. Hann heldur um stjórnartaumana í landinu fram að kosningum í október. 28. maí 2026 kl. 16:20INNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Breið samstaða í nýrri bæjarstjórn Grindavíkur Mist Þormóðsdóttir Grönvold Oddvitar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Grindavík, allra þeirra flokka sem buðu fram í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum í vor, hyggja á samstarf á komandi kjörtímabili. Fram kemur í tilkynningu Grindavíkurbæjar að flokkarnir þrír hafi að undanförnu unnið saman að gerð samfélagssáttmála sem ætlað sé að vinna að krefjandi og spennandi verkefnum sem fram undan séu í sveitarfélaginu. Stefnt er að því að kynna samstarfssamninginn og áherslur nýrrar bæjarstjórnar á næstu dögum en fyrsti fundur bæjarstjórnarinnar verður haldinn 2. júní. Grindavíkurbær 28. maí 2026 kl. 16:15INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Hornafjörður Tveir flokkar í meirihluta bæjarstjórnar Hornafjarðar Mist Þormóðsdóttir Grönvold Bæjarfulltrúar Framsóknar og stuðningsmanna og Sjálfstæðisflokksins í Hornafirði undirrituðu málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026-2030 í dag. Undirritunin fór fram í Verbúðinni í Miklagarði. Framsókn og stuðningsmenn hlutu 44,8% atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum og þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 26,0% atkvæða og tvo fulltrúa. Aðsend / Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir 28. maí 2026 kl. 16:13MENNING OG DÆGURM