Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ekki dugi að segja af því bara um verðmun á loðnu

Read Full Article →

„Við túlkum þetta þannig að það sé allt of lágt verð á Íslandi,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, um upplýsingar í svari atvinnuvegaráðherra á Alþingi um annars vegar loðnuverð á Íslandi og hins vegar í Færeyjum. Þrefalt hærra verð Í svari Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra kom fram að meðalverð á landaðri loðnu til frystingar á Íslandi fiskveiðiárið 2025/2026 væri 80,64 krónur á kíló samkvæmt gögnum Verðlagsstofu og að meðalverð á landaðri loðnu í Færeyjum samkvæmt svörum frá Vørn til Fiskistofu hefði verið 250 krónur á kíló, sem er þá ríflega þrefalt meira en á Íslandi. Vørn er stofnun sem annast fiskveiðieftirlit og björgunarstörf í færeyskri lögsögu. Fyrirvari vegna komandi uppgjörs „Menn verða að koma með einhverjar skýringar á þessu, það er ekki nóg að segja bara af því bara,“ heldur Valmundur áfram. „Við getum alveg verið sammála þeim í því að þetta var ekki mikið magn sem fór til Færeyja og þar voru þessar tvær stóru vinnslur að berjast um það en að verðið sé þrefalt hærra er náttúrlega ekki trúverðugt.“ Lokaverðið sé reyndar enn ekki vitað Valmundur undirstrikar þó að gera verði þann fyrirvara að ekki sé enn búið að gera upp loðnuvertíðina til sjómanna. „Það á að gera upp tveimur mánuðum fyrir vertíð og það eru fundir núna þessar vikurnar með sjómönnum og okkur í sambandi við uppgjör á loðnu. Þannig að við vitum ekki alveg hvert lokaverðið er,“ segir Valmundur, sem kveðst aðspurður ekki eiga von á því að verðið endi í að vera svipað áðurnefndu meðalverði í Færeyjum. Ekki öll kurl komin til grafar „Maður hefur heyrt eitthvað hærra en þeir greiddu hér en maður veit ekki hvað það er mikið,“ segir Valmundur og bætir því við að honum skiljist að ekki sé búið að selja stabbann af því sem var unnið á Íslandi. „Þannig að afurðaverð liggur ekki fyrir enn þá en sjómennirnir eiga ákveðið hlutfall af afurðaverðinu.“ Það eru því ekki öll kurl komin til grafar hvað verð til sjómanna varðar. Útgerðin skuldi sjómönnum skýringar Valmundur ítrekar að ef að verðið verði mikið lægra en í Færeyjum skuldi útgerðin sjómönnum skýringar. „Ég trúi því andskotakornið ekki að Færeyingarnir séu að kaupa loðnu til að tapa á því að vinna hana.“ Í svari atvinnuvegaráðherra er settur fyrirvari á sama grunni og Valmundur setur hér að framan. Þann fyrirvara má lesa hér að neðan. Fyrirvari í svari atvinnuvegaráðherra Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. © Aðsend mynd (AÐSEND) „Reglulegur frestur til að skila vigtar- og ráðstöfunarskýrslum til Fiskistofu er allt að einum mánuði og 20 dögum. Þar sem landanir loðnu á yfirstandandi fiskveiðiári eru að mestu síðustu tvo mánuði er ekki hægt að tryggja að um sé að ræða heildstætt yfirlit yfir verðmæti og ráðstöfun aflans. Samkvæmt kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna frá 6. febrúar 2024 byggist uppgjör til sjómanna á uppsjávarveiðum á umsömdu hlutfalli af áætluðu skilaverði afurða. Fyrirtæki hafa síðan allt að tvo mánuði til að skila lokauppgjöri til sjómanna. Það verð sem kemur fram í vigtar- og ráðstöfunarskýrslum, innsendum til Fiskistofu og sem þessi gögn byggja á, getur breyst eftir að lokauppgjör liggur fyrir. Birting eða frekari miðlun á sundurliðun niður á fyrirtæki gæti verið háð takmörkunum, m.a. vegna samkeppnissjónarmiða.“ Úr svari Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn Eydísar Ásbjörnsdóttur alþingismanns.

Share this article