Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Birti kynferðislegar myndir af barnsmóður sinni

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Birti kyn­ferð­is­leg­ar myndir af barns­móð­ur sinni Brynjólfur Þór Guðmundsson Landsréttur staðfesti í gær sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir karlmanni. Hann var sakfelldur fyrir að birta kynferðislegar myndir af barnsmóður sinni og fyrrverandi sambýliskonu sinni. Myndirnar af konunni birti hann á vefsíðu og Facebook-síðu sinni. Þegar maðurinn birti fyrstu myndina hótaði hann líka að birta nektarmynd af konunni á vefsíðunni. Maðurinn var líka dæmdur til að greiða konunni 800 þúsund krónur í miskabætur. Landsréttur. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Trúarbrögð Möltu­ridd­ari í 33 ár: „Ég vissi alveg hvað ég var að gera og þetta var hluti af mér“ Óperusöngvarinn Hreinn Líndal hefur verið Mölturiddari í 33 ár. Hann bjó lengi í Bandaríkjunum og kynntist Ronald Regan vel, klæddi Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu ár hennar í forsetatíð og hefur sinnt mannúðarstörfum af krafti. Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hálka og snjó­þekja á vegum Brynjólfur Þór Guðmundsson Hálka og snjóþekja er á vegum á norðaustan- og austanverðu landinu. Flughált er í Langadal á Möðrudalsöræfum og hálka á Vopnafjarðarheiði, Sandvíkurheiði, Brekknaheiði og Raufarhafnarvegi. Snjóþekja er á Hófaskarði og Háreksstaðaleið. Hálkublettir eru víða á Norðausturlandi. Víða er hált á Austurlandi og á Vatnsskarði eystra og Jökuldal er snjóþekja. Krapi er á Heiðarenda, Öxi og Breiðdalsheiði. Snjóþekja er víða á fjallvegum. RÚV / Ágúst Ólafsson Fyrir 31 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Ut­an­rík­is­ráð­herra Noregs í við­tali við RÚV: „EES-samn­ing­ur­inn er erf­ið­ari í fram­kvæmd en áður“ Espen Barth Eide er hreinskilinn um þær áskoranir sem EES-ríkin standa frammi fyrir í samstarfinu við Evrópusambandið. Hann segir að Ísland sé í dauðafæri að ná góðri niðurstöðu, fari aðildarviðræður af stað. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Kalt og blautt Slydda og snjókoma einkenna veðrið á norðaustan- og austanverðu landinu í dag og fram á kvöld. Hitastigið verður aðeins hærra annars staðar en rignir á sunnanverðu landinu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Óvenju­öflugt eld­inga­veð­ur gekk yfir suður af land­inu Markús Þ. Þórhallsson Skjáskot úr myndbandi sem sýnir eldingu. Mynd úr safni. Aðsent / Edda Rún Knútsdóttir Óvenjuöflugt eldingaveður gekk yfir hafið um tvö hundruð kílómetra suður af Íslandi í nótt að sögn Marcels de Vries, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Veðrið hefur færst til norðausturs að sögn Marcels og er líklega að mestu að fjara út. Ekki hafi borist tilkynningar um að eldingarnar hafi sést úr landi, þótt það sé ekki ólíklegt. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Tedros segir unnt að stöðva út­breiðslu eb­óla­far­ald­urs­ins Aðalframkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar segir mögulegt að kveða niður ebólafaraldurinn sem geisar nú í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og hefur borist til nágrannaríkjanna. Hann heimsækir austurhluta Kongó í dag. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kanada Búist við að sex­tug­ur mat­reiðslu­mað­ur við­ur­kenni lið­sinni við sjálfs­víg með eitri Talið er að sextugur fyrrverandi matreiðslumaður lýsi sig sekan um fjórtán glæpi fyrir rétti í dag. Hann var ákærður fyrir morð og liðsinni við sjálfsvíg með því að gefa ráð og útvega fólki um víða veröld efni í þeim tilgangi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía „Óþol­andi stig­mögn­un“ að rúss­nesk­ur dróni skall á hús­þaki í borg­inni Galati Tveir menn særðust lítillega þegar rússneskur dróni skall á byggingu í rúmenskri hafnarborg skammt frá landamærum Úkraínu í nótt. Rúmenar segja atvikið óþolandi stigmögnun. Drónar hafa iðulega farið yfir landamæri Rúmeníu frá upphafi stríðsins. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi New Glenn-eld­flaug Blue Origin leyst­ist upp í eld­hnött á skot­palli í Flór­ída Vandræði geimferðafyrirtækisins Blue Origin halda áfram. Í síðasta mánuði mistókst því að koma gervihnetti á sporbaug um jörðu og í gærkvöld leystist New Glenn-eldflaug þess upp í eldhnött þegar verið var að dæla á hana eldsneyti. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ísland sækist eftir sæti í fram­kvæmda­stjórn Al­þjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­inn­ar Ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu er frambjóðandi Íslands til framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar fyrir næsta þriggja ára kjörtímabil. Sérstök áhersla er lögð á jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og heilsu barna og ungmenna. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þrír drepn­ir í dróna­árás á Do­n­etsk — dróni skall á húsi í Rúm­en­íu Markús Þ. Þórhallsson Þrír voru drepnir í drónaárás Úkraínuhers á Donetsk-hérað sem hernumið er af Rússum og nefnt Alþýðulýðveldið Donetsk. Hús stendur í ljósum logum eftir árás Rússlandshers á borgina Kramatorsk í Donetsk 25. maí. EPA / Maria Senovilla Leiðtoginn Denis Pushilin, Rússi sem ráðið hefur þar ríkjum síðan 2018, tilkynnti þetta í færslu á samskiptamiðlinum Telegram og sagði minnst fimm til viðbótar hafa særst, einn mjög alvarlega. Úkraínskum drónum hefur einnig verið beint að orkuinnviðum í rússneska héraðinu Volgogrod. Íbúðahús skemmdist en engin tíðindi hafa borist af manntjóni. Tveir særðust lítillega þegar dróni skall á íbúðahúsi í rúmensku hafnarborginni Galati í nótt. Borgin er nærri landamærunum að Úkraínu. Þarlend útvarpsstöð greindi frá atvikinu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Mach­ado biðlar til Banda­ríkj­anna um að koma á fundi við bráða­birgða­stjórn­ina Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela biður Bandaríkjastjórn að koma á viðræðum milli hennar og bráðabirgðastjórnarinnar í landinu við endurreisn lýðræðis í landinu. Hún ætlar að bjóða sig fram til forseta. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi Ísrael og Rúss­landi bætt á svart­an lista SÞ vegna kyn­ferð­is­brota í hern­aði Ísraelskum og rússneskum öryggissveitum hefur verið bætt á svartan lista Sameinuðu þjóðanna yfir þau ríki eða vígahópa sem beita kynferðisofbeldi skipulega sem vopni í hernaði. Ísraelsk stjórnvöld andæfa því harðlega. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Austurríki Dæmdur í 15 ára fang­elsi fyrir að hafa skipu­lagt hryðju­verka­árás á tón­leik­um Taylor Swift 21 árs gamall maður hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleika Taylor Swift í Vínarborg sumarið 2024. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Þetta er auð­vit­að ein­hvers konar gervi­skoð­ana­könn­un“ Utanríkisráðherra mætti þingflokksformanni Miðflokksins í líflegum þætti Kastljóss í kvöld þar sem þingsályktunartillaga um hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB að nýju var rædd. Þær greindi á um undirbúning og framsetningu tillögunnar. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Netan­ja­hú vill að 70% Gaza verði undir stjórn Ísra­els Forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað ísraelska hernum að ná stjórn á allt að 70% Gazasvæðisins og vill með því þrengja að Hamas. Áformin ganga þvert gegn vopnahléssamningi sem gerður var í október. 28. maí 2026 kl. 21:33ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum „Við látum ekki það sem kom fyrir Palest­ínu­menn henda okkur“ Íbúi sem er á flótta frá Suður-Líbanon segir Ísraela eiga að taka föggur sínar og fara heim. Ísraelsher skipaði íbúum um 300 bæja og þorpa í suðurhluta landsins að flýja í gær. Hann gerði umfangsmiklar loftárásir á Líbanon í dag. 28. maí 2026 kl. 21:02ÍÞRÓTTIR Körfubolti Emil Barja tekur við Stjörn­unni Anna Sigrún Davíðsdóttir Emil Barja tekur við sem aðalþjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Emil þjálfaði kvennalið Hauka sem urðu Íslandsmeistarar árið 2024 undir hans stjórn. Baldur Þór Ragnarsson var þjálfari Stjörnunnar en sagði starfi sínu lausu eftir tímabilið. Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrra en datt út í undanúrslitum í ár. Samningur Emils er til tveggja ára. Hann segist spenntur fyrir verkefninu. „Ég er spenntur að koma til Stjörnunnar og taka við þessu nýja starfi. Stjarnan hefur byggt upp öflugt starf og leikmannahópurinn er sterkur og verður gaman að verða þátttakandi í framhaldinu.“ Stjarnan 28. maí 2026 kl. 20:54INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur „Það þarf end­ur­skoð­un“ Það þarf einhverskonar endurskoðun, segir fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Ræða þarf fjármögnun, mikilvægt er að það tefji ekki framkvæmdir. 28. maí 2026 kl. 20:18INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Ég myndi hugsa mig tvisv­ar um áður en ég myndi kaupa svona á netinu“ Tollgæslan hefur lagt hald á þúsundir glasa af ólöglegum peptíðum sem reynt var að smygla hingað til lands síðasta árið. Fjöldi sýnishorna hefur verið sendur erlendis til efnagreiningar og er von á niðurstöðum fljótlega. 28. maí 2026 kl. 19:44INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Hafa breytt verk­ferl­um og aukið fræðslu til starfs­fólks vegna Múla­borg­ar Ekki er hægt að útiloka að mönnunarvandi á leikskólum hafi haft áhrif á þeim tíma sem Hannes Valle Þorsteinsson var ráðinn til starfa á Múlaborg. Sviðsstjóri Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir verkferla breytta í kjölfar málsins. 28. maí 2026 kl. 18:48INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Þörf á að­gerð­um fyr­ir­tækja og sveit­ar­fé­laga gegn verð­bólgu Formaður VR kallar eftir aukinni þátttöku fyrirtækja og sveitarfélaga í aðgerðum til að stemma stigu við hækkandi verðbólgu. Aö öllu óbreyttu geti haustið orðið þungt. 28. maí 2026 kl. 17:53INNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Kallar eftir sér­stöku frum­varpi um kyrk­ing­ar Einn helsti sérfræðingur Bandaríkjanna um kyrkingartak segir nauðsynlegt að setja sérstök lög um kyrkingar hér á landi. Ekki sé nógu markvisst að þær tilheyri almennum lögum um líkamsárásir. 28. maí 2026 kl. 17:35INNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Fresta útboði í brú yfir Djúpa­fjörð um óákveð­inn tíma Óvíst er hvenær útboð hefst vegna smíði brúar yfir Djúpafjörð. Stefnt var að því að verkið yrði boðið út um síðustu áramót. 28. maí 2026 kl. 17:28ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Fram­leng­ing vopna­hlés veltur á T

Share this article