Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Móður brugðið eftir hún var bendluð við sprengjutilræði sona sinna

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 5 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Móður brugð­ið eftir hún var bendl­uð við sprengju­til­ræði sona sinna Markús Þ. Þórhallsson Christian Hatlo, lögfræðingur Oslóarlögreglunnar. EPA / Lise Aserud Móðir þriggja bræðra er afar ráðvillt vegna þess að hún hefur verið handtekin og ákærð ásamt þremur sonum sínum fyrir sprengjutilræði við bandaríska sendiráðið í Ósló fyrir tæpri viku. Norska ríkisútvarpið hefur þetta eftir skipuðum verjanda mæðginanna sem segir móðurina hvorki skilja upp né niður í hví henni er blandað í málið. Hún hefur verið yfirheyrð en verjandinn vill ekki tíunda hvað hún hafði fram að færa. Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Listi L-list­ans ákveð­inn L-listinn á Akureyri er búinn að stilla upp framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Óðinn Svan Óðinsson fjölmiðlamaður skipar efsta sætið og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi er í öðru sæti. Fyrir 31 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Tvö snjó­flóð lentu á bíl Davíðs á Súða­vík­ur­hlíð Íbúi í Súðavík óttaðist um líf sitt þegar snjóflóð lentu á bíl hans á veginum um Súðavíkurhlíð rétt áður en honum var lokað í gærmorgun. Litlu munaði að fyrra flóðið bæri hann út af veginum. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Sam­kvæm­in hjá Sillu svíkja ekki Í kvöld kl. 22:03 fer í loftið samkvæmissmellaþátturinn Partýverkin á Rás 2. Þar reynir Doddi að koma þjóðinni í gírinn fyrir helgina en fær aðstoð góðra gesta. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, dagskrágerðarkona af Rás 1 mætti í þáttinn fyrir viku. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Engin mis­kunn, bara til­vist­ar­kreppa í Fimm­unni Það er engin miskunn þennan föstudag í Fimmunni þar sem er boðið upp á glerharða stemmningu og pólitík frá Angine de Poitrine, Social Distortion, Iceage, Fontaines DC og Wet Leg. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Lárus leiðir lista Mið­flokks­ins Miðflokkurinn hefur birt sex efstu frambjóðendur á lista sínum í Garðabæ. Lárus Guðmundsson er oddviti listans aðrar kosningarnar í röð. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Dró fram prins­ipp­af­stöðu varð­andi Græn­land í heim­sókn til Wash­ing­ton Utanríkisráðherra fundaði í Bandaríkjunum í vikunni. Hún segir heimsóknina hafa nýst vel til að gera grein fyrir afstöðu Íslands í ýmsum málaflokkum. Samband Íslands og Bandaríkjanna sé mikilvægt þrátt fyrir ólíkar áherslur í viðskiptum og tollamálum Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Holta­vörðu­heið­in að opnast aftur Björgunarsveitir komu 25 manns til bjargar þar sem þeir sátu fastir í bílum sínum á Holtavörðuheiði og komust ekki lengra. Í dag hefur verið unnið að því að fjarlægja bíla og opna veginn. Umferð verður hleypt aftur á veginn hálf tólf. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Áfram­hald­andi gæslu­varð­halds kraf­ist yfir móður og bræðr­um sem grunuð eru um sprengju­til­ræði Markús Þ. Þórhallsson Áframhaldandi gæsluvarðhalds verður í dag krafist yfir þremur bræðrum og móður þeirra sem grunuð eru um sprengjutilræði við bandaríska sendiráðið í Ósló. Tæknimenn lögreglunnar að störfum við bandaríska sendiráðið. EPA / STIAN LYSBERG SOLUM Óslóarlögreglan birti fréttatilkynningu um meinta aðild móðurinnar í morgun og bræðurnir voru handteknir á miðvikudag. Mæðginin koma fyrir héraðsdómara í dag og hafa verið ákærð fyrir hryðjuverk, samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins. Einn bræðranna er sagður þegar hafa viðurkennt að hafa komið sprengjunni fyrir en hinir tveir neita sök. Verði þeir fundnir sekir gæti það kostað þá allt að 21 árs fangelsi. Óslóarlögregla hefur sagt bræðurna norska ríkisborgara sem eiga ættir að rekja til Íraks. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Orri áfram oddi­viti Fram­sókn­ar í Kópa­vogi Orri Hlöðversson, stjórnarformaður Frumherja og bæjarfulltrúi, verður áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Listi flokksins hefur verið samþykktur í heild sinni. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Eyja­list­inn kynnir fram­boðs­lista Eyjalistinn hefur samþykkt framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Listann leiðir Arndís María Kjartansdóttir. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar 480 fá end­ur­greiðsl­ur vegna tveggja ferða­stofa Ferðatryggingasjóður er byrjaður að endurgreiða viðskiptavinum Tango Travel og Komdu út vegna ferða sem aldrei voru farnar. Ferðaskrifstofurnar hættu starfsemi eftir að Play varð gjaldþrota. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Heg­seth segir stutt í að gengið verði milli bols og höfuðs á klerka­stjórn­inni og Ír­ans­her Bandaríkjastjórn hefur tímabundið slakað á hömlum á viðskipti gagnvart sölu á þeirri rússnesku olíu og bensíni sem þegar er um borð í flutningaskipum. Tilgangurinn er að draga úr olíuverðshækkunum. Blaðamannafundi er nýlokið í Pentagon þar sem varnarmálaráðherrann og formaður herforingjaráðsins, greindu frá stöðu mála í styrjöldinni. Bandaríkin boða enn harðari aðgerðir gegn Írönum. Donald Trump Bandaríkjaforseti ítrekar að gereyðing klerkastjórnarinnar blasi við og hvetur veröldina til að fylgjast með framvindu mála í dag. Varnarmálaráðherrann Pete Hegseth tók undir það á blaðamannafundi og sagði Íransher illa laskaðan. Fjórir fórust í sex manna áhöfn bandarískrar eldsneytisflugvélar sem hrapaði í vestanverðu Írak. Bandaríkjaher segir atvikið tengjast tveimur flugvélum en ekki árásum. Sprengingar hafa kveðið við í Teheran í morgun sem Ísraelsstjórn segir mega rekja til nýrra, stórfelldra loftárása á Íran. Flugskeytum hefur einnig verið skotið frá Íran, að sögn Ísraelshers. Tveir árásardrónar skullu á fjarskiptaturnum nærri Majnoon-olíuvinnslustöðinni í sunnanverðu Írak í morgun. Engin starfsemi var í þessari einni stærstu vinnslustöð landsins vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Hernaðaryfirvöld í Sádi Arabíu segjast hafa tortímt árásardrónum í lofthelginni og stjórnvöld í Dúbaí segja brak úr eldflaug hafa skollið á byggingu í miðborginni. Alls hafa yfir tólf milljónir barna ýmist verið drepin, særð eða misst heimili sín í Mið-Austurlöndum síðastliðin þrjú ár. FRÉTTAVAKT Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Enn bætir Duplant­is heims­met­ið Sænski stangarstökkvarinn Armand Duplantis bætti heimsmetið í greininni í gærkvöldi. Þetta er í 15. skipti sem hann setur heimsmet. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýr odd­viti Fram­sókn­ar í Fjarða­byggð Þuríður Lillý Sigurðardóttir verður oddviti Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð í komandi bæjarstjórnarkosningum. Framboðslistinn var samþykktur í gærkvöld. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum „Ekki bíða of lengi með að fara, tæki­fær­ið til þess gæti verið að renna út“ Starfsfólki ástralskra sendiráða í Ísrael, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Líbanon hefur verið gert að halda heim. Starfslið sem gegnir mikilvægustu skyldum verður þar áfram. Ríkisborgarar eru hvattir til að fara. Tíminn gæti verið á þrotum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Úkra­ína orðin helsta bit­bein­ið í kosn­inga­bar­átt­unni í Ung­verja­landi Óvægin barátta fyrir þingkosningarnar í Ungverjalandi hverfist þessa dagana aðallega um eitt málefni: Úkraínu og hver stefna stjórnvalda í Búdapest eigi að vera gagnvart öllu sem þar er að gerast. Kynlífsmyndband kemur einnig við sögu í baráttunni. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist „Það er jafn erfitt að mála fíg­úr­at­ífa mynd og að mála ab­strakt“ Langur og fjölbreyttur ferill Guðmundar Ármanns er tekinn til skoðuna á yfirlitssýningunni Aðflæði í Listasafninu á Akureyri. Nýkominn úr námi í Svíþjóð fyrir um hálfri öld fluttist Guðmundur til bæjarins fyrir tilstilli Harðar Ágústssonar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Bylt­ing­ar­vörð­ur­inn varar við mót­mæl­um gegn stjórn­völd­um Ásrún Brynja Ingvarsdóttir Íranski byltingarvörðurinn, hugmyndafræðilegur armur íranska hersins, varaði Írana í morgun við því að blása til nýrra mótmæla gegn stjórnvöldum. Mótmælum verði mætt af meiri hörku en í aðgerðum öryggissveita í janúar, þegar nokkur þúsund manns voru drepin. Frá mótmælum í Tehran í Íran 9. janúar 2026. AP / UGC Í yfirlýsingu segir að „hinum illa óvini hafi ekki tekist að ná markmiðum sínum á vígvellinum og reyni nú enn og aftur að vekja ótta og hvetja til óeirða á götum úti“. Verði af mótmælum verði tekið harðar á þeim en gert hafi verið 8. janúar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Davíð Odds­son jarð­sung­inn Útför Davíðs Oddssonar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Davíð fær opinbera útför. Hún er opin öllum og verður send út í sjónvarpi. Davíð var forsætisráðherra lengur en nokkur annar, borgarstjóri í hartnær áratug, utanríkisráðherra, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins. FRÉTTAVAKT Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Tvær skýrsl­ur frá 2014: Var­an­leg­ar und­an­þág­ur um sjáv­ar­út­veg aldrei veitt­ar en ekki úti­lok­að­ar Samkvæmt úttekt frá 2014 er ekkert fordæmi fyrir varanlegum undanþágum um fiskveiðar fyrir ríki sem sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu. Þó eru þær ekki taldar útilokaðar – í orði allavega. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Kallas segir ESB verða að mæta Banda­ríkj­un­um sem ein heild Brynja Dögg Friðriksdóttir Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins. EPA / OLIVIER HOSLET Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir í viðtali við fjölmiðilinn Financial Times að Bandaríkin reyni að sundra Evrópu. Kallas segir að það sé mikilvægt fyrir alla að skilja að Bandaríkin vilji með skýrum hætti sundra Evrópu. Hún segir þessa aðferð Bandaríkjanna áþekka aðferðum andstæðinga sambandsins. Kallas segir að Evrópusambandsþjóðir eigi að mæta Bandaríkjunum sem ein heild, frekar en að hver þjóð eigi í tvíhliða samskiptum við Bandaríkin. Bandaríkjunum líki ekki þegar Evrópusambandið standi saman, því þannig sé Evrópa jafningi Bandaríkjanna. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Blak Í dag: Verða óvænt úrslit í blak­inu? Undan

Share this article