Alls bárust til atvinnuvegaráðuneytis átta umóknir um embætti forstjóra Hafannsóknastofnunar. „Atvinnuvegaráðherra skipar forstjóra Hafrannsóknastofnunar til fimm ára í senn að undangengnu mati hæfnisnefndar. Hæfnisnefnd starfar í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hefur til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands,“ segir á vef stjórnaráðsins. Listi umsækjenda er í stafrófsröð: Arnljótur Bjarki Bergsson, sjávarútvegsfræðingur Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri Guðmundur Jóhann Óskarsson, sviðsstjóri Guðmundur Þórðarson, samningamaður Hrönn Egilsdóttur, sviðsstjóri Kristín Harðardóttir, fiskifræðingur Logi Einarsson, verkfræðingur Óliver Snær Stefánsson, nemi Embættið var auglýst 5. maí sl. og rann umsóknarfrestur út 22. maí.