Átta sóttu um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar. Embættið var auglýst í byrjun maí og verður skipað í það til fimm ára. Umsækjendurnir eru: Arnljótur Bjarki Bergsson sjávarútvegsfræðingur, Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri, Guðmundur Jóhann Óskarsson sviðsstjóri, Guðmundur Þórðarson samningamaður, Hrönn Egilsdóttur sviðsstjóri, Kristín Harðardóttir fiskifræðingur, Logi Einarsson verkfræðingur og Óliver Snær Stefánsson nemi. Næsti forstjóri kemur úr röðum átta umsækjenda.RÚV / Arnór Fannar Rúnarsson