Danske Bank ætlar að leggja niður 262 stöður í tengslum við skipulagsbreytingar hjá bankanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum, að því er Børsen greinir frá. Langstærstur hluti stöðugildanna, eða 199, er í Danmörku. Karsten Breum, mannauðsstjóri Danske Bank, segir í tilkynningu að ákvörðunin sé erfið. Breytingarnar skýrist af auknum breytingahraða og breyttri þörf fyrir hæfni innan bankans. „Þegar umhverfi okkar, fjármálageirinn og tæknin halda áfram að breytast, aðlögum við skipulagið stöðugt til að tryggja að við höfum rétta hæfni og nauðsynlega getu til staðar,“ segir Breum. Stöðugildin sem lögð verða niður eru víða í skipulagi bankans, þar á meðal í starfsemi sem snýr að einstaklingum í Danmörku. Danske Bank segir að bankinn hafi náð verulegri hagræðingu á síðasta ári með stafrænum lausnum og gervigreind. Á sama tíma sé hegðun viðskiptavina að verða sífellt stafrænni. Ákvörðunin hefur vakið hörð viðbrögð hjá Finansforbundet, stéttarfélagi fjármálafólks í Danmörku. Kirsten Ebbe Brich, formaður félagsins hjá Danske Bank, segist vonsvikin yfir ákvörðuninni, ekki síst í ljósi góðrar afkomu bankans. „Á góðum efnahagstímum fyrir bankann er ég svekkt og vonsvikin yfir því að Danske Bank telji nauðsynlegt að ráðast í svo umfangsmiklar uppsagnir, aðeins þremur mánuðum eftir sambærilega aðgerð,“ segir hún. Dorrit Brandt, formaður Finansforbundet, varar við því að niðurskurðurinn geti aukið álag á starfsfólkið sem eftir stendur. Hún segir einhliða áherslu á kostnaðarlækkanir ekki skila árangri til lengri tíma. „Við viljum vara mjög eindregið við hættunni á neikvæðri hringrás með lakari lausnum, fleiri mistökum, auknu álagi á starfsfólk og veikara trausti viðskiptavina,“ segir Brandt. Danske Bank er stærsti banki Danmerkur og er með meira en 20 þúsund starfsmenn. Bankinn starfar einnig annars staðar á Norðurlöndum, í Litáen, Póllandi og Bretlandi.