Innlent | Morgunblaðið | 29.5.2026 | 10:00 Lét teikna hagkvæmari íbúðir Hér má sjá fyrri teikningu af reitnum. Teikningar að nýrri útfærslu húsanna eru í vinnslu. Teikningar/KRark/ONNO Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Niðurrif og uppbygging í Vogabyggð Alvarleg staða á íbúðamarkaði Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Vilja byggja upp íbúðarhúsnæði í borginni Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði » Fleiri tengdar fréttir Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, hefur hafið uppbyggingu 177 íbúða við Hjallahraun í Hafnarfirði í trausti þess að niðursveiflunni verði lokið þegar þær koma á markað. Þá hafi hann látið endurhanna íbúðirnar með tilliti til eftirspurnar til að auka líkur á að þær muni seljast. Íbúðirnar verða í Hjallahrauni 2 í Hafnarfirði en þetta er fyrsti áfanginn hjá Þingvangi í uppbyggingu 390 íbúða á reitnum. Þingvangur keypti lóðina fyrir fimm árum og væri uppbyggingin langt komin ef haldið hefði verið við upphafleg áform. „Við erum ekki í lóðabraski þar sem við lítum á okkur sem húsbyggjendur og það versta sem getur gerst hjá okkur er að framleiða lager af óseldum/óleigðum fasteignum sem standa ónýttar til lengri tíma,“ segir Pálmar sem frestaði verkefninu vorið 2024 til að eiga ekki á hættu að sitja uppi með margar óseldar íbúðir vegna markaðsaðstæðna. Það stöðumat reyndist rétt og er nú rætt um að 1.700 nýjar íbúðir séu óseldar á höfuðborgarsvæðinu. Bætir við 37 íbúðum Til stóð að byggja 140 íbúðir á reitnum í einu U-laga fjölbýlishúsi. Því skipulagi var breytt og stendur nú til að reisa 177 íbúðir í tveimur L-laga fjölbýlishúsum. Því verða 37 fleiri íbúðir en áður var gert ráð fyrir. „Ég hef látið teikna blokkina upp á nýtt og er hún orðin að tveimur blokkum með 177 íbúðum. Jafnframt er ég búinn að skafa af henni 800 fermetra með bættri nýtingu. Það hefur kostað sitt að láta endurhanna blokkina og þeirri ákvörðun að bíða með framkvæmdir á óbyggðri lóð hefur fylgt aukinn vaxtakostnaður sem er að lágmarki ein og hálf milljón króna á íbúð. Ég treysti því að þegar íbúðirnar koma á markað eftir 25 til 30 mánuði verði búið að ganga mikið á lager óseldra íbúða og að ég verði þá einn fárra verktaka sem verða með rétta stærð af íbúðum. Allar fimm herbergja íbúðirnar hjá okkur eru 100 fermetrar, fjögurra herbergja íbúðirnar eru 90 fermetrar, þriggja herbergja íbúðirnar 70 til 80 fermetrar og tveggja herbergja íbúðirnar 50 til 60 fermetrar og stúdíóíbúðirnar undir 50 fermetrum, með geymslu og bílastæði á hverja íbúð,“ segir Pálmar. Með öðrum orðum hafi íbúðirnar verið minnkaðar en haldið í herbergjafjöldann. Með því verði hægt að bjóða ódýrari íbúðir og höfða þannig til breiðari hóps kaupenda en um 60 af þessum 177 íbúðum muni uppfylla skilyrði hlutdeildarlána. Greiða við fokheldi „Uppbyggingin sætir tíðindum því Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) greiðir fyrir hlutdeildarlánaíbúðirnar við fokheldi sem lækkar fjármögnunarkostnað. Þakka ber Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, HMS, Hafnarfjarðarbæ, fjárfestum og Íslandsbanka fyrir að taka þátt í verkefninu,“ segir Pálmar. Á móti komi að lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað, sem var komin niður í 35% 2023 en hafði lengst af verið 60% síðan hún hófst 1990, muni nú þurrkast út ef hún verður að veruleika hjá stjórnvöldum. „Það mun auka kostnað við hverja íbúð um 2 milljónir. Miðað við hvert markaðurinn stefnir ætti frekar að hækka úrræðið í 100% eins og áður hefur verið gert á erfiðum tímum til að halda peningunum inni í hagkerfinu, sporna gegn svartri atvinnustarfsemi og fækka fólki á atvinnuleysisskrá,“ segir Pálmar. Leiðir til offramboðs Pálmar hefur gagnrýnt kvaðir í skipulagi um fjölda og stærðir íbúða á höfuðborgarsvæðinu, enda hafi þær leitt til offramboðs af stórum og dýrum íbúðum sem erfiðara sé að selja. Það eigi þátt í að sumir verktakar sitji nú uppi með lager af óseldum íbúðum. „Íbúðir sem þykja óhagkvæmar seljast síður,“ segir Pálmar og vísar til íbúða sem hafa hlutfallslega fá herbergi miðað við fermetra, til dæmis 100 fermetra þriggja herbergja íbúðir, en vel sé hægt að byggja góðar þriggja herbergja íbúðir sem séu um 70 fermetrar. Hertar reglur Þá hafi hertar reglur Seðlabankans um greiðslumat haft mikið að segja. „Ef þessar handbremsur Seðlabankans væru ekki fyrir hendi myndu íbúðir seljast sem þykja óhagkvæmar í dag. Þá held ég að fólk myndi stökkva á þær af því að það er ekkert annað í boði. Þeir sem geta keypt íbúðir gera það. Salan er almennt ekki hræðileg. Hins vegar gengur mjög erfiðlega að selja íbúðir í nýbyggingum sem eru af röngum stærðum. Kaupendur 100 fermetra þriggja herbergja íbúða voru kannski ekki mikið að velta því fyrir sér hvort hægt væri að byggja þriggja herbergja íbúð sem er um 70 fermetrar. Nú spyr þetta fólk sig hvers vegna það sé að greiða vexti og fasteignagjöld af þessum 30 fermetrum. Það hugsar kannski með sér að það þurfi ekki að hafa bæði eldhúsborð og borðstofuborð í þriggja herbergja íbúð.“ Þannig að strangara greiðslumat veldur því að fólk fær ekki lán og síðan bætast við háir vextir sem takmarka hversu mikið fólk getur fengið lánað og eykur kostnað við að byggja? „Já.“ Allir að draga saman Hvaða áhrif mun þetta hafa á hraða uppbyggingar á næstunni? „Ég held að það séu allir að draga saman seglin.“ Þú hefur verið í þessum bransa lengi. Er hægt að líkja þessari niðursveiflu við eitthvert fyrra skeið? „Já, ég man til dæmis þegar við vorum að byggja Brynjureit við Hverfisgötu að þá var sölutregða.“ Óþolandi áhætta Það var 2019, eftir fall WOW air? „Já. Þetta minnir svolítið á það nema að þá var greiðslumatið ekki svona strangt og sennilega aðrir orsakavaldar fyrir lítilli sölu. Hlutdeildarlánakerfið var þá nýfarið af stað og við náðum að selja nokkrar íbúðir með slíkum lánum en fólk var þá almennt ekki búið að kveikja á þeim möguleika.“ Þú ert kjarkaður maður? „Kannski en það er náttúrulega óþolandi að þurfa að vera að standa í svona áhættu í rekstri félagsins, því að ef ég veðja á vitlausan tímapunkt með framkvæmdina er ég að lenda í sömu stöðu og margir eru í dag,“ segir Pálmar að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Niðurrif og uppbygging í Vogabyggð Alvarleg staða á íbúðamarkaði Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Vilja byggja upp íbúðarhúsnæði í borginni Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Er að missa sig yfir nýju kærustunni Brixton gjaldþrota Fjórtán ár fyrir 30 kíló af efnum Börsungar vilja leikmann Arsenal Kynferðisbrotamál: Gera kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald Umræðan Evruland og Krónuland Maður mjólkar ekki dauða kú Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólk ekki upplýst um hvað taki við Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Víðir vill ekki tjá sig Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Varar við umgjörð „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Skoðað að taka upp klippikort Þæfingsfærð á Fjarðarheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Er að missa sig yfir nýju kærustunni Brixton gjaldþrota Fjórtán ár fyrir 30 kíló af efnum Börsungar vilja leikmann Arsenal Kynferðisbrotamál: Gera kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald Umræðan Evruland og Krónuland Maður mjólkar ekki dauða kú Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Fólk ekki upplýst um hvað taki við Lét teikna hagkvæmari íbúðir Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Varar við umgjörð „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Skoðað að taka upp klippikort Þæfingsfærð á Fjarðarheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „