Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Alvarleg staða á íbúðamarkaði

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 23.5.2026 | 20:31 | Uppfært 24.5.2026 12:47 Alvarleg staða á íbúðamarkaði Byggt í Reykjavík. mbl.is/Baldur Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Vilja byggja upp íbúðarhúsnæði í borginni Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Eins og borgin hafi kveikt í húsinu » Fleiri tengdar fréttir Alvarleg staða er komin upp á íslenskum fasteignamarkaði sem mun að óbreyttu hafa slæmar afleiðingar fyrir marga verktaka. Þá gætu gjaldþrot og vanskil verktaka haft mikinn kostnað í för með sér fyrir banka. Þetta segja verktakar í samtali við Morgunblaðið. Vegna þess að þeir hafa íbúðir í sölu vilja þeir ekki koma fram undir nafni. Nefndi einn þeirra að vaxtakostnaður óseldra íbúða myndi kosta fyrirtæki hans einn milljarð króna í ár. Þá sagði annar að margir húsbyggjendur sætu uppi með íbúðir sem væru of dýrar. Nú væru fyrst og fremst fjársterkir kaupendur að kaupa íbúðir og fyrstu kaupendur sem sumir fái aðstoð frá foreldrum eða hlutdeildarlán. 1.700 óseldar íbúðir Síðastliðinn fimmtudag birtist aðsend grein í Morgunblaðinu eftir Jóhann Halldórsson, framkvæmdastjóra S8 ehf., með fyrirsögninni Í forheimskunnar landi , sem vakið hefur athygli. Þá ekki síst sú niðurstaða hans að það kosti verktaka varlega áætlað 57,5 milljónir króna á dag að hafa um 1.700 óseldar nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins, um þessa stöðu í Morgunblaðinu í dag. Lýsir Ingólfur þar því hvernig byggingarfyrirtæki með lakari fjárhagsstöðu kunni að fara í þrot vegna þessarar þróunar. Einnig má nefna samtal við Ástu Ásgeirsdóttur, deildarstjóra greiningardeildar hjá Vinnumálastofnun, í Morgunblaðinu fyrir helgi en hún sagði aðspurð að staðan í byggingargeiranum hefði verið þung í vetur og geirinn ekki tekið við sér í apríl eins og vonast var til. Á þessi þróun þátt í auknu atvinnuleysi. Vaxtahækkanir hafa í för með sér að dýrara verður að byggja íbúðir með lánsfé. mbl.is/Baldur Eins og í stríðshrjáðum löndum Jóhann gagnrýndi í áðurnefndri grein vaxtahækkanir Seðlabankans. „Eins og alkunna er hefur Seðlabanki Íslands hækkað vexti aftur og aftur í þeim tilgangi að reyna að lækka verðbólgu á Íslandi. Þess má enn fremur vænta að þeir hækki enn frekar í næstu viku. Fara þarf til stríðshrjáðra landa til þess að finna sambærilega stýrivexti og gilda á Íslandi. Hækkandi vextir leiða óhjákvæmilega til þess að vörur og vinnuafl verður dýrara vegna aukins fjármagnskostnaðar fyrirtækja. Það er ávísun á enn meiri verðbólgu, eins og reyndar sést vel í íslensku hagkerfi í dag. Þótt yfirskinið sé að reynt sé með þessum hætti að hafa áhrif á neyslu og þenslu í hagkerfinu þá er það margreynt að stýrivextir virka illa til að berjast við verðbólgu í verðtryggðu hagkerfi. Þetta sér hver heilvita maður nema um sé að ræða starfsmann í Seðlabanka Íslands,“ skrifaði Jóhann. Fáir standast greiðslumat „Seðlabanki Íslands trúir því einnig að hægt sé að nota stýrivexti til að hafa áhrif á fasteignaverð þar sem húsnæðisliðurinn í neysluverðsvísitölunni sé einn af drifkröftum verðbólgu. Þegar það virkar ekki er gripið til þess ráðs að breyta reglum um greiðslumat með engum fyrirvara fyrir byggingariðnaðinn. Þetta hefur sannarlega haft áhrif. Það fær nánast enginn kaupandi greiðslumat nema viðkomandi sé svokallaður fyrsti kaupandi þar sem aðrar reglur gilda um þá. Reyndar er engin lagaheimild fyrir þessum ráðstöfunum Seðlabanka Íslands og aðgerðin því kolólögmæt. Það er önnur saga. Hvað gerist þá? Fasteignaverð hefur lækkað að raunvirði. Það breytir hins vegar engu því venjulegt fólk fær ekki greiðslumat vegna fyrrgreindra breytinga sem gerðar voru vorið 2025. Afleiðingar þessara ráðstafana Seðlabanka Íslands eru að byggingarverktakar hlaða upp gríðarlegum vaxtakostnaði á hverjum einasta degi. Íbúðir seljast ekki þrátt fyrir undirliggjandi eftirspurn og birgðir hlaðast upp. Í dag er staðan þannig að það eru um það bil 1.700 óseldar nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Meðalstærð þessara íbúða er um það bil 95 fm. Markaðsverð þeirra er því ca. 161,5 milljarðar. Vaxtakostnaður af þessum íbúðum er varlega áætlaður 21 milljarður á ári eða 57,5 milljónir á hverjum degi. Þessi heimatilbúni kostnaður Seðlabanka Íslands mun óhjákvæmilega leiða til hækkandi fasteignaverðs,“ skrifaði Jóhann. Hefur engan tilgang Vegna þessarar þróunar muni draga verulega úr nýfjárfestingu í íbúðarhúsnæði. „Allt framangreint hefur síðan leitt til stöðvunar á byggingarframkvæmdum hjá mjög mörgum verktökum sem byggja íbúðarhúsnæði. Aðrir hafa hægt á framkvæmdum. Það er enginn tilgangur í því að auka fjárfestingu í vöru sem ekki er hægt að selja. Það er ekki skynsamlegt. Fjárfestar sem hafa lagt fjármagn að veði til þess að byggja íbúðarhúsnæði eru að tapa miklum fjármunum. Afleiðingar þess eru óhjákvæmilegar. Færri eru tilbúnir til þess að fjárfesta í íbúðarverkefnum og verða það um ókomin ár. Það er ekkert traust til staðar vegna ófyrirsjáanleika í greininni. Augljóst er að færri íbúðir verða byggðar. Þessi þróun byrjaði reyndar fyrir rúmu ári og íbúðum í hönnunarferli hefur fækkað allt síðasta ár. Lausum störfum í byggingariðnaði hefur fækkað að undanförnu. mbl.is/Eggert Þegar upp er staðið verða enn færri íbúðir byggðar næstu ár og það mun myndast skortsástand á byggingarmarkaði innan tveggja ára. Það mun síðan leiða til gríðarlegra verðhækkana á íbúðarhúsnæði. Þetta gerðist árið 2020 og er að gerast aftur vegna aðgerða Seðlabanka Íslands. Það mun síðan óhjákvæmilega hafa verðbólguaukandi áhrif í gegnum allt samfélagið enn og aftur. Ráðstafanir Seðlabanka Íslands til þess að stemma stigu við hækkandi húsnæðisverði eru ekki að gera neitt annað en að hækka íbúðarverð til framtíðar. Að auki eru þær að skapa stórkostleg vandræði og tjón fyrir alla hagaðila: íbúðarkaupendur, birgja á byggingavörumarkaði, iðnaðarmenn, fjárfesta og byggingarverktaka,“ skrifaði Jóhann að lokum. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Vilja byggja upp íbúðarhúsnæði í borginni Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Eins og borgin hafi kveikt í húsinu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Uppgjörið við þrælahaldið, hvað er satt og rétt? Sigurður Már Jónsson Dótakassar borgarstjórans Fleira áhugavert Verða með stíft eftirlit alla helgina Byssumaðurinn við Hvíta húsið nafngreindur Aukið eftirlit yfir helgina Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða á íbúðamarkaði Atvinnulífið varar við auknum regluþunga Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Ný stjórn FKA Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Anna Hildur til Ísland Duty Free Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Ný stjórn FKA Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Greinin stendur á tímamótum Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Arnaldur skipaður nýr formaður „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“ Pistlar » Sigurður Már Jónsson Uppgjörið við þrælahaldið, hvað er satt og rétt? Sigurður Már Jónsson Dótakassar borgarstjórans Fleira áhugavert Hefja formlegar viðræður í Hafnarfirði Geirfuglinn á lestarstöð í Cincinnati Enn mikil hætta í Kaliforníu Verða með stíft eftirlit alla helgina Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða á íbúðamarkaði Atvinnulífið varar við auknum regluþunga Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Ný stjórn FKA Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Anna Hildur til Ísland Duty Free Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Ný stjórn FKA Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Greinin stendur á tímamótum Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Arnaldur skipaður nýr formaður „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“

Share this article