Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Læknisvottorðs ekki krafist fyrr en við 75 ára aldur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.5.2026 | 11:45 Læknisvottorðs ekki krafist fyrr en við 75 ára aldur Markmiðið er að einfalda umsóknarferlið og gera það mannlegra og nútímalegra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini. Veigamesta breytingin felur í sér í að læknisvottorðs verður framvegis ekki krafist sjálfkrafa sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri, í stað 65 ára aldurs áður. Þessi breyting á reglugerðinni var unnin í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Markmiðið er að einfalda umsóknarferlið og gera það mannlegra og nútímalegra, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. „ Helstu rök heilbrigðisráðuneytisins fyrir breytingunni eru að heilsa fólks hefur batnað samhliða hækkandi lífaldri . Þá hefur reynslan sýnt að við endurnýjun ökuskírteina hjá þessum aldurshópi er læknisvottorð veitt nær undantekningalaust. Breytingarnar munu því draga úr álagi sem skapast vegna reglulegrar endurnýjunar ökuskírteina og er því jákvæð breyting fyrir eldri ökumenn auk þess að draga úr óþarfa vottorðaskrifum heimilislækna. Eftir sem áður gildir meginregla 48. gr. umferðarlaga um að ökumönnum tryggi að þeir séu líkamlega og andlega færir um að stjórna ökutæki í hvert sinn, sama á hvaða aldri þeir eru,“ segir í tilkynningunni. Eftirtaldar breytingar hafa einnig verið gerðar á reglugerð um ökuskírteini (nr. 830/2011): Umsækjandi um ökuskírteini fær nú rýmri tíma til að ljúka verklegu prófi frá því að hann stóðst bóklegt próf, eða allt að tólf mánuði. Samkvæmt fyrri reglugerð gildir bóklegt próf í sex mánuði en í tólf mánuði vegna tiltekinna flokka. Kveðið er á um fimm ára gildistíma starfsleyfis ökuskóla. Kveðið er með skýrari hætti en áður um að atvinnubílstjórar eigi að ljúka endurmenntun fyrir hverja endurnýjun ökuréttinda. Gildistími endurmenntunar er birtur í ökuskírteini og því bundinn gildistíma ökuskírteinis sem er til fimm ára. Felld er burt krafa um að í sjálfskiptri kennslubifreið skuli vera gírstöng eða annar slíkur búnaður í stað fótstigs fyrir kúplingu svo að ökukennari geti rofið aflrás. Samkvæmt Samgöngustofu er kröfunni ekki framfylgt og sjálfskiptar kennslubifreiðir ekki búnar slíkum búnaði. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Læknisvottorðs ekki krafist fyrr en við 75 ára aldur Fréttirnar um Zlatan komu Svíanum í opna skjöldu Segir ESB-umræðu hafa skyggt á kosningarnar Inga farin í veikindaleyfi Disney-stjóri dæmdur í fangelsi í Rússlandi Umræðan Evruland og Krónuland Hvað felst í aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Víðir vill ekki tjá sig ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Umfangsmikil umbótavinna í kjölfar banaslyss Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Skoðað að taka upp klippikort Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Varar við umgjörð Búast má við töfum á landamærum „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Lést við barnsburð á Landspítalanum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Nýjast á mbl.is » Læknisvottorðs ekki krafist fyrr en við 75 ára aldur Fréttirnar um Zlatan komu Svíanum í opna skjöldu Segir ESB-umræðu hafa skyggt á kosningarnar Inga farin í veikindaleyfi Disney-stjóri dæmdur í fangelsi í Rússlandi Umræðan Evruland og Krónuland Hvað felst í aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Haustið ber með sér óvissu Fólk ekki upplýst um hvað taki við Breytingar boðaðar í borginni Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Skoðað að taka upp klippikort Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Varar við umgjörð Búast má við töfum á landamærum „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Lést við barnsburð á Landspítalanum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Loka

Share this article