Innlent | mbl | 29.5.2026 | 12:37 Skoða lög um ríkisborgararétt: Umsóknum fjölgað um 290% Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Dómsmálaráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp til að greina gildandi lög og skilyrði fyrir veitingu íslensks ríkisborgararéttar. Markmiðið er að fá heildstæða yfirsýn yfir þróun umsókna, framkvæmd við veitingu ríkisborgararéttar og hvort ástæða sé til breytinga á lagaumhverfi eða verklagi. Haft er eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að það að fá ríkisborgararétt séu forréttindi. „Að fá íslenskan ríkisborgararétt er, og á að vera, stór stund í lífi þeirrar manneskju sem hann fær,“ segir hún og bætir við að umsóknum hafi fjölgað mikið, bæði hjá stjórnvöldum og Alþingi. „Það er tímabært að rýna reglur og verklag um veitingu ríkisborgararéttar,“ segir hún. Starfshópinn skipa Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir, Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir og Vilhjálmur Hilmarsson sem jafnframt er formaður starfshópsins. Tveir starfsmenn ráðuneytisins verða hópnum innan handar. Frétt af mbl.is Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Dæmi um frávik miðað við nágrannaríki Umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt til Útlendingastofnunar hefur fjölgað um 290 prósent á síðustu fimm árum. Á sama tíma hefur þeim einnig fjölgað sem sækja um ríkisborgararétt til Alþingis. „Hópurinn mun leggja áherslu á að greina gildandi skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar og bera þau saman við sambærileg skilyrði á hinum Norðurlöndunum. Dæmi eru um að íslensk löggjöf og framkvæmd víki að einhverju leyti frá því sem tíðkast í nágrannaríkjunum,“ segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. „Við vinnu hópsins verður höfð hliðsjón af þeim markmiðum sem nefnd eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að gæta skuli samræmis við reglur nágrannaríkja á sviði útlendingamála, eftir því sem við á, og tryggja að lagaumhverfi og framkvæmd séu skýr, skilvirk og í samræmi við þær kröfur sem ber að gera til veitingar ríkisborgararéttar.“ Starfshópnum er jafnframt falið að meta hvort ástæða er til breytinga og þá að hvaða leyti, greina helstu áskoranir í málaflokknum og koma með tillögur að úrbótum á lagaumhverfi og stjórnsýslu. Starfshópurinn á að skila ráðherra tillögum sínum eigi síðar en 1. október. Frétt af mbl.is Herða kröfur um ríkisborgararétt Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stjórnvöld vilja samstarf við kortlagningu áfallaþols Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá 25 ára hitamet fallið í Portúgal Skoða lög um ríkisborgararétt: Umsóknum fjölgað um 290% Á förum eftir aðeins ár í Manchester? Umræðan Evruland og Krónuland Maður mjólkar ekki dauða kú Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Meiðyrðamáli foreldranna vísað frá „Sýnir að þessar slár eru að gera sitt gagn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Inga farin í veikindaleyfi Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Búast má við töfum á landamærum Skoðað að taka upp klippikort Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Varar við umgjörð Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Lést við barnsburð á Landspítalanum Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Stjórnvöld vilja samstarf við kortlagningu áfallaþols Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá 25 ára hitamet fallið í Portúgal Skoða lög um ríkisborgararétt: Umsóknum fjölgað um 290% Á förum eftir aðeins ár í Manchester? Umræðan Evruland og Krónuland Maður mjólkar ekki dauða kú Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólk ekki upplýst um hvað taki við Víðir vill ekki tjá sig „Sýnir að þessar slár eru að gera sitt gagn“ Varar við umgjörð Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Inga farin í veikindaleyfi Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Búast má við töfum á landamærum Skoðað að taka upp klippikort Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Varar við umgjörð Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Lést við barnsburð á Landspítalanum Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Loka