Lettneska flugfélagið airBaltic og Isavia fagna um þessar mundir tíu ára samstarfsafmæli en flugfélagið hóf reglubundið flug á milli Ríga-flugvallar, heimaflugvallar síns í Lettlandi, og Keflavíkurflugvallar í maí 2016. Á þessum áratug hefur airBaltic flogið um tvö þúsund flugferðir á milli Keflavíkur og Ríga með yfir tvö hundruð þúsund farþega. „Samstarfið við airBaltic hefur skapað mikilvæga flugtengingu á milli Íslands og Eystrasaltsríkjanna sem hefur verið vel nýtt undanfarinn áratug. Það hefur ekki bara opnað greiða leið á milli Íslands og Lettlands, heldur einnig opnað á fjölbreyttar tengingar til landanna í kring og áframhaldandi flugtengingar um Evrópu og víðar,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga- og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli. Sjá einnig Bjóða starfsfólki Play aðstoð við atvinnuleit Flugfélagið airBaltic er stærsta flugfélag Eystrasaltsríkjanna og rekur einn yngsta flugvélaflota Evrópu, sem byggir á Airbus A220-300 flugvélum, sem tengir Eystrasaltsríkin við 80 áfangastaði í Evrópu og víðar. „Síðastliðinn áratug hefur flugleiðin milli Keflavíkurflugvallar og Ríga gegnt mikilvægu hlutverki við að styrkja tengsl Íslands og Lettlands og gefið ferðalöngum frá Íslandi tækifæri til að heimsækja eina stærstu borg Norður-Evrópu, ásamt því að kynnast ríkulegri menningu og fallegri náttúru Lettlands,“ segir Mantas Vrubliauskas, framkvæmdastjóri leiðakerfis hjá airBaltic. Í sumar verður flogið leiðina fjórum sinnum í viku en eins og er flýgur airBaltic þrisvar sinnum í viku milli Keflavíkurflugvallar og Ríga-flugvallar.