- What: Tourism growth in North Iceland
- Impact: Increased visitor numbers and economic activity in the region
Komufarþegum til Akureyrarflugvallar fjölgaði um 9,5% á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri að sögn Markaðsstofu Norðurlands. Í tilkynningu segir að talsverður vöxtur sé í ferðaþjónustu á Norðurlandi og þá sérstaklega í vetrarferðaþjónustu. Þá eru einnig vísbendingar um að erlendir ferðamenn sem heimsækja Norðurland leiti sérstaklega í annars konar afþreyingu en ferðamenn sem koma um Keflavíkurflugvöll. Fjallað var um stöðu og horfur í ferðaþjónustu á Norðurlandi á ráðstefnu í vikunni sem Markaðsstofa Norðurlands stóð fyrir. Þar fluttu fulltrúar Isavia og Icelandair ásamt forsvarsfólki nokkurra ferðaþjónustufyrirtækja erindi um ferðaþjónustu á svæðinu. Sjá einnig Bæta við flugferðum frá London til Akureyrar „Þrátt fyrir að það séu sannarlega blikur á lofti í ferðaþjónustunni þá er mikill hugur í fólki hér á Norðurlandi og mörg spennandi uppbyggingarverkefni í deiglunni. Sem dæmi má nefna að yfirstandandi fjárfestingar aðeins þeirra fyrirtækja sem þátt tóku í ráðstefnunni nema um 45 milljörðum króna,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. Sjá einnig Beint flug frá Akureyri til Manchester Samkvæmt tölum frá Isavia voru komufarþegar erlendis frá til Akureyrarflugvallar 107.214 árið 2025, samanborið við 97.910 árið 2024 og 92.746 árið 2023. Það jafngildir 9,5% fjölgun milli áranna 2024 og 2025. Mestu munar um aukningu í vetrarflugi easyJet en það félag hefur á síðustu tveimur árum fjölgað ferðum og lengt vetrartímabilið í báða enda. Millilandaflug til Akureyrar virðist heldur ekki vera í beinni samkeppni við Keflavíkurflugvöll um erlenda gesti. Sem dæmi höfðu 53% erlendra farþega sem flugu til Akureyrar áður komið til Íslands, samanborið við 17% þeirra sem komu um Keflavíkurflugvöll.